þriðjudagur, janúar 23, 2007
Brúðkaupsmyndir, 2. þrep

Er loksins komin að síðustu myndinni í þessari lööööngu seríu og það passar akkúrat, það er komin háttatími fyrir mína (og þá meina ég ekki Nínu Þorbjörgu). Fyrir þá sem kunna ekki á Blogger þarfnast þetta kannski útskýringa, maður setur neðstu myndina inn fyrst og síðan koll af kolli. Neðsta myndin var sem sagt sett inn morguninn eftir brúðkaupið og hér er ég enn, rúmum 2 vikum seinna....ha,ha,ha, ekki alveg, en samt næstum því. Meiriháttar myndabloggerævintýri að baki.
Þrep nr. 2 af brúðkaupsmyndum hefur sem sagt litið dagsins ljós (þrep nr. 1 er hér fyrir neðan). Ákvað að kalla þetta þrep til að rugla þessu ekki saman við kaflana í framhaldssögunni, þá fyrst væri allt í skralli á síðunni. Framhaldssagan verður hins vegar að bíða betri tíma, varð að víkja fyrir athyglissýki brúðhjónanna.
Fyrsta mynd seríunnar (eða bara þreps 2) er af Árna Grími kl. 18:01 í kirkjunni. Sallarólegur þótt brúðurinn sé bara í bíltúr í miðbænum í krumpuðum kjól.
Síðustu skilaboð kvöldsins frá Bloggernum, lokin á frábæru sambandi:
This server is currently experiencing a problem. An engineer has been notified and will investigate.
Status code: 1-500-20
Comments:
<< Home
Og hvað? Finnst þér þetta ekki traustvekjandi villuboð :-D
Hef hugsað mér að nota þennan texta í forritun minni í framtíðinni!
Sendu inn athugasemd
Hef hugsað mér að nota þennan texta í forritun minni í framtíðinni!
<< Home

