laugardagur, janúar 13, 2007

 

Erum búin að bralla ýmislegt...


Það er orðið verulega langt frá síðustu færslu og ástæðan auðvitað annríki sem fylgir þessum árstíma. Við Árni Grímur tókum okkur til og giftum okkur 6. janúar, bara til að krydda stemninguna enn frekar. Fannst vanta veislur og eitthvað við að vera. Stiginn niður í kjallara var settur upp einni viku fyrir jól, síðan komu jólin með öllu tilheyrandi (þ.á.m. vöktum) og svo var það brúðkaupið. Við erum ótrúlega ánægð með hvernig þetta gekk allt saman fyrir sig og skemmtum okkur gríðarlega vel. Síðasta eftirpartýið eftir brúðkaupið kláraðist kl. 8 morguninn eftir og við nýbökuðu hjónin komum varla niður morgunmatnum sökum timburmanna. Maður verður að fara í gegnum þetta allt frá A-Ö við fyrsta tækifæri, þetta var svo ótrúlegur dagur og á skilið almennileg skrif.
Aðaltilgangur þessarar færslu var að þakka gestunum okkar fyrir æðislegt kvöld, frábær atriði, fínar gjafir og hörkustuð! Þetta var ólýsanlegt...
Kveðjur frá vikugömlu hjónunum!

Comments:
Til hamingju aftur, og takk fyrir okkur - frábært brúðkaup!
 
Kæru hjón!!
Innilegar hamingjuóskir í tilefni þessa stóráfanga!
Kv
Gunna Dóra

ps kannski maður láti nú loksins verða af því að líta í kaffi (svona áður en orlofið er búið?)

p.s Æðisleg mynd af ykkur!!
 
Takk kærlega fyrir hamingjusóskirnar! Það væri nú æði að fá þig í kaffi :) Og þig líka Mæja!
 
Tek undir það, æðisleg mynd af ykkur! Enn og aftur takk fyrir okkur. Lít kannski bara líka í kaffi einhvurn tímann ;) Helgó
 
Einmitt, kaffi á línuna...Vei! :)
 
Sendu inn athugasemd



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?