miðvikudagur, janúar 31, 2007
Við erum LASNAR
Það er búinn að vera algjör strákadagur hjá Árna Grími, fyrst fótbolti og síðan eru fullt af gaurum mættir á heimilið til að spila póker. Ég hraktist því inn í vinnuherbergið (þetta hugtak "vinnuherbergi" er alveg svakalegt, ætla að reyna að nota það sem mest hér eftir) og hef ekki úr mörgu að moða nema tölvunni (og 12 metrum af draslhaugum sem komast ekki fyrir í geymslunni og hafa því fengið samastað í "vinnuherberginu"). Hér er ég með hljóðfæri fyrir 7 manna hljómsveit, 1 stk. hljóðver, læknisfræðibókasafn, tölvuver, 1 stk. Rauðakross fatabúð og svo snúrur sem ná hringinn í kringum jörðina.
Annars var þetta hugsað sem meirháttar vælfærsla. Er búin að vera að gíra mig upp í þessa færslu í allan dag og hugsa hvernig ég get lýst þessu á sem dramatískastan hátt. Málið er að við Nína Þorbjörg höfum átt við þvílíkan lasleika að stríða undanfarið og þurfum klapp á bakið. Hef ekki upplifað svona síðan ég var sjálf á hennar aldri, fór meira að segja á sýklalyfjakúr um jólin og man ekki eftir því að hafa nokkurn tíman farið á sýklalyf áður (var lúmskt ánægð með mig, fannst svalt að vera á sýklalyfjum). Nína Þorbjörg var að greinast með þriðju eyrnabólguna á stuttum tíma í dag og er komin á þriðja sýklalyfjakúrinn. Hún vill ekki sættast við sýklalyfið þótt það sé nammigóð sykurdrulla...skil ekkert í þessu. Ég hóstaði úr mér rif í mínum veikindum og gifti mig meira að segja rifbrotin (það var ekkert spes að láta faðma sig fast x100). Nú er ég komin á Nezeril vegna nefstíflu (í fyrsta sinn á ævinni) og það virkar! Ég er þvílíkt hissa...hef svo rosalega vantrú á öllum þessum kveflyfjum og verkjalyfjum og hef þurft að éta þetta allt ofan í mig. Nezeril og Vóstar-S rokka! Það stendur ekkert lyfjafyrirtæki á bak við þessa yfirlýsingu...
Fyrir þá sem eru enn að lesa eftir sjálfsvorkunina hér að ofan koma nýjustu orðin hennar Nínu Þorbjargar:
"Voff voff"
"Mmmmmmmatur" (eða eitthvað sem hljómar eins og mmmmódjei og við vitum ekkert hvað þýðir)
"Goggologú"
"Penni" (hefur sagt þetta einu sinni og hefur ekki áhuga á að endurtaka leikinn)
Svo er hún farin að snúa sér í hringi þangað til hún dettur og standa á öðrum fæti. Hún er líka alveg farin að skilja þegar maður er ósáttur við hana og setur þá venjulega upp sakleysissvip og segir "datt".
Meðfylgjandi er mynd af Nínu Þorbjörgu að raða til og snyrta. Hún er í lopapeysu sem margir telja að Árni Grímur hafi snarað fram, en svo er ekki. Staðreyndin er að dagmamman hennar Nínu prjónaði svona flottar peysur á alla dagmömmukrakkana sína fyrir jólin. Geri aðrir betur!

Comments:
<< Home
Mikið er hún Nína Þ. mikil dúlla. Hér með færðu klapp á bakið! Þú mátt sko eiga það að þrátt fyrir brotið rif og lasleikavesen varstu obboslega sæt á brúðkaupsdaginn. En sem reynd smábarnalasarusamamma segi ég:Þetta batnar allt með vorinu. Við skulum vona að það vori snemma!
Hún er algjör snúsíbommsínúmsílomms.
Ég veit hvað emmmmódjei þýðir. Ég get ekki skrifað það hér. Þeir fylgjast með öllu sem skráð er á Alnetið. En ég skal gefa þér vísbendingu:
Það þýðir ekki matur, merkingin er á sviði alþjóðabankaviðskipta NOS.
Sendu inn athugasemd
Ég veit hvað emmmmódjei þýðir. Ég get ekki skrifað það hér. Þeir fylgjast með öllu sem skráð er á Alnetið. En ég skal gefa þér vísbendingu:
Það þýðir ekki matur, merkingin er á sviði alþjóðabankaviðskipta NOS.
<< Home

