mánudagur, febrúar 05, 2007

 

Irðildi og framhaldssagan, 3. hluti


Nína Þorbjörg er farin að segja fiðrildi...eða "irðildi" með hennar orðum. Er frekar mikið stolt yfir þessu, daman greinilega mjög vandvirk með það hvaða orð hún kýs að læra. Er t.d. enn þá ekki orðin neitt sérstaklega sleip í að segja mamma (þetta er mest bara mammamamammamammam), en fiðrildi, ekki málið! Hún er reyndar umkringd fiðrildurm hérna á heimilinu og er rosalega spennt fyrir þeim, þau eru í loftinu á baðinu, forstofunni og á veggjunum í herberginu hennar (sem við Árni Grímur fáum að sofa í líka). Þori varla að setja upp nýja fiðrilda óróann, fólk fer að halda að þetta sé einhver bilun...
Fyrst maður er byrjaður að skrifa, ætli maður verði ekki að reyna að hundskast eitthvað áfram með framhaldssöguna. Að þessu sinni mun ég kasta fram því kræsilega efni "Gæsuninni", versgú!:
Ég fékk minn skerf af fjöri 30. desember og byrjaði dagurinn um hádegið þegar það birtist skyndilega mótorhjólakappi fyrir framan húsið. Fékk að vita síðar að það hafi verið í gangi miklar pælingar um hver ætti að sækja mig og á tímabili hafi nýrnasérfræðingur af spítalanum verið ofarlega á blaði, en hann á einmitt eiturgrænan prumpubíl (eða metanbíl, fyrir þá sem vilja vera tæknilegir). Losnaði við þann ófögnuð og fékk í staðinn þvílíkan rúnt á rosalega móturhjóli með pabba hennar Addýjar (vinkonu og fyrrverandi bekkjarsystur) við stýrið. Þetta var fyrsti (og líklega síðasti) mótorhjólarúnturinn minn og ég skemmti mér konunglega. Addýjarpabbi gerði alls konar kúnstir og ætlaði á tímabili að skilja mig eftir fyrir utan Harðfiskgerð Ísafjarðar...skilaði mér svo loks á áfangastað í "brunch" á Drafnarstígnum í boði Helgu. Eftir kampavín og amerískar pönnsur fékk ég hrikalega smart eiturgrænan (hvað er þetta með þennan eiturgræna lit???) satínsamfesting, hliðartagl og agalega smart meik öpp (a la eighties). Var svo send í bæinn í ratleik í þessari múnderingu, auðvitað með stelpurnar á hælunum svo það væri einhver þarna til að hlæja að mér og passa að ég færi ekki úr eiturgræna samfestingnum. Fórum í skartgripabúð, bókabúð, listasafn og í Hið íslenska Sögufélag, þar sem við fengum meira kampavín og mín leyst út með gjöfum. Mjög menningarleg gæsun og er ég miklu nær um forseta íslenska lýðveldisins, nútímalist, ljóðagerð og bara allt. Að þessu loknu hafði ég safnað mér í "komplett eighties galla" með grifflum og legghlífum og svitabandi og eiturbleiku leðurbelti. Var svo brunað í "street" dans (voða mikið af gæsalöppum í gangi hérna), sem var meira svona notalegt óléttuskopp, þar sem flestir voru óléttir (eða í samfestingi og legghlífum yfir gallabuxur og peysu og því orðnir of sveittir eftir að hafa labbað niður tröppurnar inn í danssalinn til að geta gert neitt meira). Eftir skoppið var dekur í Laugum, fullt af gufuböðum og heitum pottum og hvítvíni. Var óþekk gæs og neitaði að fara ofan í risa-tunnu fulla af ísköldu vatni, enda væri ég örugglega enn á lungnadeildinni ef ég hefði lagt í þann óþverra. Eftir dekur og drykkju var farið á Maru í sushi-veislu þar sem ég gúffaði í mig alls konar fínerí án þess að taka mikið eftir bragði eða öðru sökum ölvunar. Lokahnykkur kvöldsins var partý hjá Ólöfu þar sem ég smakkaði Bacardi Breezer í öllum bragðtegundum og endaði svo á kveðjuballi Í svörtum fötum á NASA. Grét þar í kór við hina áhangendurnar, enda mjög súrt að "Nakin komstu inn í hugarheiminn minn" muni ekki hljóma aftur á dansgólfinu, a.m.k .ekki "læv". Kom heim kl. 4:30, heilli klukkustund fyrr en Árni Grímur eftir steggjunina sína, og verð því að játa mig sigraða í keppninni um það hver er meira töff. Ég er meira töff. Steinunn.

Comments:
Ég sakna samt meira laglínunnar: "Þúúúúú, ég vil vera eins og þúúúúú, því ééééég, ég er nakin eins og þúúúú"

Gaman að fá svona review, ég er ekki viss um að margir gætu rifjað upp gæsapartíið sitt svona löngu á eftir...
 
Það er naumast, bara þriggja atkvæða orð! Ekki byrjað á einföldustu orðunum. Mjög skrýtið hvaða orð þau taka upp á að læra, eins og Eyjó með gluggi, sem hann þusar um í tíma og ótíma.
 
Bara að kíkja í bæinn. Styttist í að frúin hætti að taka vaktir og þá getur maður nú kannski verið duglegri við heimsóknir og heimboð.... þ.e. ef þið hjónin eruð ekki á alternerandi vöktum alla daga!!!
heyrumst
Addý
 
Sendu inn athugasemd



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?