sunnudagur, mars 25, 2007
Fjölskyldufaðir á fertugsaldri og bílhræið
Það er sko margt búið að gerast frá því að við komum frá Austurríki. Árni Grímur er búinn að vera á vöktum, ég er búin að vera á vöktum, margir hafa átt afmæli, þ.m.t. Árni sem varð þrítugur. Við erum búin að fagna öllum þessum afmælum, þ.m.t. Árna Gríms afmæli, en fjölskyldan fór út að borða á La Primavera. Kvöldið var meiriháttar, Nína Þorbjörg í pössun í Hellulandinu og við foreldrarnir enduðum í tómu sukki. Drukkum kokteila, bjór og hvítvín úti um allan bæ, enduðum á Sirkus með Þorgerði og vesenuðumst þar þangað til að ég varð að fara heim sökum ölvunar. Sofnuðum í sófanum heima (gamall og góður fídus) og vorum sérlega þunnildisleg í afmælinu hans Dags frænda daginn eftir. Held að mér hafi aldrei tekist að vera timburmannalaus í því afmæli, enda er allra meina bót að mæta í gott köku- og brauðréttaboð eftir djamm.
Svo er Árni Grímur bara aftur kominn á skíði og núna í Davos. Sem sagt:
1) Í Sviss en ekki í Austurríki.
2) Ekki með mér heldur með Áskeli.
3) Tæknilega ekki á skíðum heldur á bretti.
4) Tæknilega ekki í skíðaferð, heldur á röntgen"ráðstefnu" með skíðaívafi (sleipir þessir röntgenlæknar).
Svo er það framhaldssagan um bílinn...hún er sko ekkert búin ef einhver hélt það. Árni Grímur fór, eins og svo oft áður, á bílflakinu okkar á næturvakt einn daginn. Bíllinn var sem sagt enn þá klesstur að framan, koldrulluskítugur og númerslaus (að framan þar sem hann er klesstur). Þetta er svo sem ekki í frásögu færandi nema þegar Árni kemur út úr spítalanum um miðja nótt sér hann að það er búið að spreyja LOZER (takið eftir, með Zetu) yfir aðra hliðina á honum með agalega flottu gullspreyi. Þetta var einmitt punkturinn sem vantaði yfir i-ið. Við vorum ekki lengur á einu af mörgum flottum bílflökum bæjarins heldur á því allra flottasta. Tek það fram að það er búið að gera við bílinn núna og engin leið að sjá að eitthvað óeðlilegt hafi nokkurn tíman átt sér stað.
Hjólahornið: Árni Grímur fékk hjól í afmælisgjöf frá Pétri þetta árið. Ekki sama flakið og síðast en það var samt sprungið á því. Ofsa fínt. Sjáum til hvað við látum það gerjast lengi úti á lóð áður en því verður skilað með tilheyrandi flottheitum.
Barnahornið: Gaman frá því að segja að Magga Stína og Mæja eru báðar búnar að eignast myndarlega stráka á síðustu vikum. Höfum hvorugan séð enn þá en erum rosalega spennt...
Brúðkaupsferðarhornið: Hvert á maður eiginlega að fara í helgarferð??? Parísar? Barcelona? Budapest? Prag? New York? Eitthvað annað?????

Comments:
<< Home
Til hamingju með afmælið, Árni Grímur!
Fyndin saga með bílinn:)
Er ekki bara málið að finna einhverja svala borg sem hvorugt ykkar hefur komið til áður?

Þessi bílasaga var akkúrat það sem mig vantaði núna, enn flissandi yfir þessu. Allar þessar borgir eru æði, mæli mikið með Prag og ef þið verðið lengur en helgi, því ekki Prag og Búdapest?
Já og til hamingju með afmælið Árni Grímur! Betra seint en aldrei. Þú fréttir kannski af því þegar þú kemur heim að það var haldinn þessi fíni afmælisbolti fyrir þig í gær. Verst bara að afmælisbarnið komst ekki ;) Helga
Sendu inn athugasemd
<< Home