miðvikudagur, maí 23, 2007

 

Eitruð stemning


Tvö atriði hafa átt sér stað í flokki skammarlegra hluta undanfarið:
1) Erum enn á nagladekkjum. Eigum á hættu að vera sektuð um 5000 kr., Á HVERT DEKK, ef löggan nær okkur. Mætti halda að þetta virkaði sem hvatning til að drífa sig á dekkjaverkstæðið. Nei nei. Okkur finnst við líka vera í frekar sérstökum aðstæðum...setjum venjulega ekki naglana undir fyrr en eftir áramót, svo með réttu eigum við fullt af naglatíma eftir. Áfram naglar.
2) Erum með svæsnasta garð mannkynssögunnar. Í þessum garði er úrgangur alls konar dýrategunda, njólar, fíflar, sóleyjar, dagblaðasnifsi, sígarettustubbar, rakettuafgangar, afklipptar trjágreinar, dauðar trjágreinar og ógeðslegasta gasgrill á jarðkringlunni sem hefur ekki verið notað í a.m.k. 5 ár (og nágranninn reyndar á). Tók mig til og sló garðinn og úðaði eitri á allt illgresið. Úðaði reyndar yfir allt ruslið líka (smá klikk í forgangsröðuninni) þannig að það er alveg ómögulegt að týna þetta eitraða rusl. Nú er garðurinn fullur af dauðu illgresi og eitruðu rusli. Hef engan tíma til að uppræta hræin og líður bara illa að horfa upp á eyðilegginguna sem ég hef valdið. Finnst nefnilega fíflar lúmskt skemmtilegir...gulir og sterkir. Verst að nærliggjandi garðaeigendur deila ekki þessari hrifningu minni.
Önnur mál:
Nína Þorbjörg er eldhress og talar og talar, hoppar og skoppar. Hún er farin að taka bangsa og snuð með sér allt sem hún fer og er alveg eyðilögð ef annað hvort glatast. Lenti í verulegri krísu um daginn þegar hún hugðist snæða banana, auk þess að halda í bangsa og tvö snuð. Þetta reyndist ekki lífeðlisfræðilega mögulegt vegna skorts á höndum og olli það gríðarlegum vonbrigðum.

Comments:
Ellan er líka bangsaóð. Bangsímon hefur farið óvíða með henni þennan veturinn og því ekki tekið vel ef að lagt er til að hann geri það ekki. Bangsinn fór síðan í vorbað um daginn og Ojjj hvað hann var skítugur...

Brósi hefur sko aldrei nennt svona bangsastússi;)

Bestu kveðjur til Nínunnar :) Fer ekki að koma tími á myndir af henni?
 
Sting upp á lausn við öðru vandamálinu: Gleyma að setja bílinn á vetrardekk, þannig gerast hlutirnir hér á bæ. Við hinu vandamálinu hef ég enga patent lausn. Nema ef vera skyldi að fá einhver dugleg unglingshró til að ráðast á eitrið í garðinum, borga þeim vasapeninga. Bara muna að lána þeim hlífðargalla og eiturgrímur ;) Vantar Sjonna ekki einmitt verkefni ;)
Skemmtileg færsla eins og alltaf!
 
Sendu inn athugasemd



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?