sunnudagur, maí 06, 2007
Í fréttum er þetta helst
Fagnaði "megrunarlausa deginum" með því að borða gulrótarköku í hádegismat og súkkulaði í kaffinu. Gaman að hafa einu sinni afsökun fyrir lífsstíl sem ég stunda annars alla daga vikunnar. Sem dæmi um téðan lífsstíl er nýjasta æðið sem Ólöf kynnti fyrir mér um daginn ("takk" Ólöf) þ.e. kaffisúkkulaði með súkkulaðiespresso. Beint á eftir hádegismat. Hrikalega gefandi.
Annars er það helst í fréttum að ég er byrjuð að kynna mér sænska tungu, enda í bígerð að flytja einhvern tímann þangað til að ljúka námi (sem er nú þegar búið að vera í gangi s.l. 9 ár). Er herfileg í sænskunni eins og er, sænska fyrir mér er bara danska með "inte" í staðinn fyrir "ikke", "jætte bra", "jobba, "jogga" og "huuuuus". Enginn Svíi skilur mig og ég skil þá ekki heldur. Lærði svakalega flott orð af sænskri hjúkku um daginn "kandidaaats schjeeerl", sem þýðir víst kandidatsæðar (eða æðar sem er auðvelt að stinga í) og er víst ekki skrifað svona (kemur á óvart, ekki satt).
Nína Þorbjörg er alltaf að bæta við sig orðum og er farin að læra að stjórna almennilega á heimilinu. Kann að heimta vatn og nammi (sem er allur matur, sérstaklega rúsínur), hún kann líka að heimta að fara út (kemur þá með húfu og flíspeysu og segir "út"). Hún hefur mjög sérkennilegan matarsmekk, borðar helst bara banana, pasta, rúsínur, lifrarpylsu og harðfisk, líka ólívur og alla osta. Ánamaðkar eru líka kræsilegir, en alls ekkert annað (fiskur og kjöt??? Ullabjakk).
Spurning dagsins(rúsínan í lifrarpylsuendanum): Skil ekki stjórnmálaflokka sem slá um sig með loforðum um að hækka skattleysismörk, eyða biðlistum, byggja fullt af hjúkrunarrýmum, gera alla skólagönguna og leikskólann ókeypis, gefa allar skólabækur ókeypis, hafa heilbriðgiskerfið ókeypis, stórbæta samgöngur....og síðan er ekki orð um það hvaðan peningarnir eiga að koma! Eins og það séu stórar fúlgur á glámbekk úti um allt sem engin fattar að nota í velferðarmál heldur hafi bara til skrauts eða til að baða sig upp úr. Sömu mönnum er hætt við að vilja stöðva alla stóriðju...en þaðan virðast einmitt peningarnir koma. Kannski það sé ómældur auður fólginn í eldfjallagarði og fjallagrasatepokum. Kannski?

Comments:
<< Home
Tilvitnun í sænskukennarann minn:
"Vi Svenskarna låter faktiskt lite dumma därför att danskarna förstår oss och Norrmännen också men vi förstår ingenting."
Og í mörgum tilfellum er þetta satt. Ef maður segir orð ogguponsupínulítið vitlaust skilja þeir ekki neitt!
Sendu inn athugasemd