sunnudagur, maí 06, 2007
Viðauki
Skyndilegt málæði búið að grípa um sig....gleymdi bara að minnast á þessa agalega fínu Nouvelle Vague tónleika sem ég fór á um daginn. Þetta gefur meira að segja tilefni til að setja inn mynd og ekki seinna vænna, bloggið er farið að líta frekar niðurdrepandi út.
Tónleikarnir voru sem sagt mjög skemmtilegir og hljómsveitin seyðandi á sviðinu, jafnvel þótt þetta hafi verið voðalega smurt og æft og allt það. Þekkti mjög marga á þessum tónleikum, þannig að þetta var farið að minna á gömlu góðu vísindaferðirnar eða bara menntaskólaball. Mjög gott kvöld.
Fyrst maður er kominn í dægurmenningardeildina mætti mæla með ítölsku dögunum í Ríkinu, Panś Labyrinth og Eymundsson í Austurstræti (var bara að sjá búðina eftir endurbæturnar og hún er hrikalega flott).
Svo sakna ég ca. 7.348 bleikra snuða, bæði úr silikoni og latexi. Finnandi vel þeginn. Skil ekki hvernig stendur á því að við erum ekki veltandi út úr íbúðinni okkar á stórri snuðskriðu.
