föstudagur, júní 29, 2007

 

10, 9, 8, 7, 6, 5, 4, 3, 2, 1......Sumarfríííí!!!

Er stödd á kvöldvakt á Landspítala við Hringbraut og á 1 klst. og 1 mín. eftir þangað til að sumafrí hefst....get EKKI BEÐIÐ. Fer beint heim í bjórinn. Verð úti í sólinni í alla nótt. Árni Grímur sér alfarið um Nínu Þorbjörgu á morgun meðan ég kíki í eftirpartý í Grafarvoginum. Fer svo beint úr partýinu á laugardagsdjammið.
Hef reyndar ekki haft mikinn tíma á vaktinni til að útfæra þessa glæsilegu fantasíu. Sendi hér með yfirlit yfir tímasetningar síðustu 10 pípa sem ég hef fengið í fína píptækið mitt:
21:25
20:45
20:43
20:42
20:39
20:36
20:04
18:59
18:52
18:15
Eins og glögglega sést fóru hjúkrunarfræðingar í mat á tímabilinu 19:00-20:00.
Meðmæli dagsins:
Scrubs. Alltaf ógeðslega skemmtilegir.
Belle & Sebastian. Bílatónlistin þegar það er sól og blíða.
Hamingjuóskir dagsins:
Jens og Erna voru að trúlofa sig í kastala í Udaipur á Indlandi og fá stórkostlegar hamingjuóskir fyrir vikið. Við trúlofuðum okkur í sófa í Reykjavík á Íslandi. Já.

Comments:
Tilhamingju með að vera komin í sumarfrí!!!
Jíbbi jei
Innilega tilhamingju með brósa.
Við trúlofuðum okkur við rúmstokk í Reykjavík - var mjög syfjuð, vera vakin kl. 7 á laugardagsmorgni. Sagði næstum því: "farðu aftur að sofa drengur" (fast á sænsku)!
 
Takk fyrir hamingjuóskirnar!! Og til hamingju sjálf með að vera komin í sumarfrí. Hafið það nú eins notalegt og mögulegt er!!
 
Trúlofanir rokka!
 
amazing stuff thanx :)

rH3uYcBX
 
Sendu inn athugasemd



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?