miðvikudagur, júní 13, 2007

 

Löng og flókin færsla: Eingöngu fyrir atvinnumenn

Hetjan
Nína Þorbjörg fór í kollhnís í fyrsta skipti í dag....hlýtur að vera met (eða þá að ég veit ekkert um hreyfiþroska hjá börnum). Verst að hún hefur frekar litla tilfinngu fyrir hæð hluta og reynir nú að fara kollhnís fram af sófa, borðum og öðrum flötum í mikilli hæð. Hún er líka farin að reyna að syngja lög og kann að heimta alls konar nýtt. Fór í heimsókn til Gísla, Eddu og Hildar Vöku og var svo ómöguleg þegar foreldrar hennar sýndu litla barninu athygli að jörðin hristist og tárin streymdu. Greinilega ekki tilbúin í systkini...
Sicko
Mæli með nýjustu Michael Moore myndinni. Segir allt sem segja þarf um viðbjóðinn sem bandarísk tryggingafélög og heilbrigðiskerfi eru. Held að við Íslendingar ættum að fara varlega í að kvarta undan okkar aðstæðum. Þarna gengur allt út á að fá sem hæst iðgjöld og borga sem minnst til baka. Her sérfræðinga gerir allt til að komast hjá því að borga þeim sjúku það fé sem þeir hafa þegar lagt inn til tryggingafélaganna. Algjört reginsvínarí.
Garðurinn
Það hlýtur að vera einhver garðáhugamaður þarna úti sem hefur átt erfitt með svefn frá śíðustu færslu. Sem betur fer er biðinni lokið og ég get tilkynnt að garðurinn er bara nokkuð brattur. Hef fjarægt allan eitraðan úrgang og sett í poka sem síðan hurfu af lóðinni á einhvern ótrúlegan hátt. Er þakklát þessum óþekkta velgjörðarmanni og vona að hann fari ekki að gæða sér á innilhaldinu.
Finnland
Lagði land undir fót í síðustu viku og skellti mér til Oulu í Finnlandi með Sigurdísi og Álfhildi. Ferðinni var heitið á norræna hjartaráðstefnu og við vorum allar með eldheitt vísindalegt efni til að kynna. Það er erfitt að segja á skemmtilegan hátt frá vísindaráðstefnum sem maður sækir. Hvernig er hægt að krydda hluti eins og sýningu lyfjafyrirtækja, veggspjaldakynningar og fyrirlestra um hjartsláttartruflanir? Bjórinn var a.m.k. fínn, finnskan falleg og fáránlega óskiljanleg og ég rokkaði á veggspjaldakynningunni minni. Fékk engan lit, tókst að kaupa hálfa H&M án þess að máta og fór á djammið x1. Það var kannski það skondnasta í ferðinni að Finnarnir, sem voru búnir að vera samanlímdir alla ráðstefnuna og höfðu ekki gefið frá sér svo mikið sem píp, voru allt í einu allir komnir upp á borð í trylltan dans við skandínavísk þjóðlög.
Stokkhólmur
Kom við í Stokkhólmi á leiðinni heim frá Oulu (það leggur enginn heilvita maður allt þetta ferðalag á sig í einum rykk) og hitti Lindu og fjölskyldu. Þau eru búsett í hinu stórkostlega hverfi Vasastan (mjög Borat-legt heiti) sem er alveg í hjarta Stokkhólms og mjög skemmtilegt. Kíkti út í bjór og thailenskan mat með Lindu, við skoðuðum miðbæinn hátt og lágt og maður sá sér að sjálfsögðu fært að heimsækja H&M. Vakti mikla lukku hjá börnunum, fékk kúr á morgnana og stanslaust stuð á daginn. Hjálpaði aðeins við að undirbúa sjóræningjaafmæli fyrir Sindra Dag og dáist að Lindu fyrir gríðarlegan metnað í afmælisbransanum. Byrgði mig að lokum upp af sænskum bókum enda ekk seinna vænna að fara að bæta við sig orðaforða.
Aðeins fyrir Little Britain aðdáendur
Nína Þorbjörg er búin að læra eftirfarandi: Kisa segir mjá, hundur segir voff, "computer" segir "nooo".

Comments:
Little Britain aðdáandi skrifar:
HAHAHA... þvílík snilld!
 
Takk fyrir síðast, pæja!
Nína er nú meiri íþróttaálfurinn:)
 
Helvíti ertu skemmtilegur penni stelpa!
kv.
Addý
 
Erg ætla heldur betur að kenna Pálma að "computer segir nooo"
 
Sendu inn athugasemd



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?