mánudagur, júní 25, 2007

 

Myndir


Fyrir þá sem hafa gleymt hvernig Nína Þorbjörg lítur út þá kemur hér fersk sending af myndum. Þetta er nú einu sinni Barnaland Nínu Þorbjargar (ekki einhver vettvangur fyrir mig að tíunda eigið stúss). Hún hefur nú kannski ekki breyst mikið...hugsanlega bætt við sig kílógrammi og smá krullum. Ástæða myndaskortsins er sú að ég lánaði ljósmyndara myndavélina mína og viðkomandi aðili breytti öllum stillingunum þannig að ég réði ekki neitt við neitt. Ég er sem sagt manneskja sem hefur gaman af því að dröslast um með stóra myndavél hangandi framan á sér en kann síðan bara á eina stillingu ("Auto").
Hér sjást feðginin að hnoðast. Það er vinsælla að hnoðast með Árna en með mér. Klassískt.

Comments: Sendu inn athugasemd



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?