mánudagur, júní 25, 2007

 

Næturvaktatröllið


Veit ekki einu sinni hvað maður er búinn að vera að gera s.l. daga. Var að klára næturvaktir sem valda undantekningalaust gríðarlegur minnisleysi, óáttun og þunglyndi. Veit ekkert hvaða dagur er, veit ekkert hvað ég gerði í gær og nenni ekki neinu. Svaf í 4 tíma í nótt vegna viðsnúins sólarhrings og er frekar súr í dag. Tókst samt að skreppa í bæinn í góða veðrinu (17,4 gráður fyrir aftan hús hjá okkur takk) með Árna Grími, Nínu og Pétri. Fórum á kaffihús á Austurvelli, en sú ferð einkenndist af miklu stressi við að halda Nínu góðri meðan beðið var eftir súper-slow-motion afgreiðsludömunum (sem NB láta mann borga 1000 kall fyrir eina kökusneið). Endaði með að við Árni höfðum vaktaskipti, annað spjallaði við Pétur og borðaði köku á meðan hitt spilaði fótbolta við Nínu Þorbjörgu. Nína er síðan orðin betri í fórbolta en ég (þ.e. þegar ég er í háhæluðum skóm). Hún kann líka að kasta bolta á hárnákvæman hátt í kókglas þannig að innihaldið hellist á hárnákvæman hátt yfir mig og rússkinnstöskuna mína. Eftir kaffihúsaferðina var farið niður að tjörn að gefa öndunum brauð, sem er algjört banastuð (án gríns). Skúföndin mætti á svæðið og var með brjálaða frekju, mávarnir voru með múgæsingu og svanirnir slógust. Nína Þorbjörg toppaði allt með því að hafa eingöngu áhuga á að vaða beint út í tjörnina og reyndi það ítrekað. Varð alveg snar þegar þetta athæfi var ekki viðurkennt af viðstöddum.
Við erum svo að fara í sumarfrí í lok vikunnar sem er vægast sagt langþráð. Ætla að byrja á að taka til heima hjá mér, þar sem þá væri jafnvel mögulega hægt að bjóða einhverjum í heimsókn. Svo er maður barasta ekki búinn að hugsa lengra....hugmyndir???

Comments:
Takk fyrir myndirnar. Hún verður nú bara sætari og sætari sú litla og tekur sig vel út í nýju Hello kitty fötunum :-)

Við komum á klakann að morgni 6. júlí og verðum í rúmar 2 vikur. Ætla að vona að veðrið verði gott svo að við getum gert margt skemmmtilegt saman. Hugmyndir: Brúðubíllinn, sund, leikvellir, húsdýragarður..og kannski eitthvað alveg sérstakt an barna stuð!
 
Það hljómar eins og Nína sé að ná mér í fótboltahæfni... nú er næst að þjálfa hana í að hitta svona í rauðvínsglas þegar þú ert í ljósum fötum.... þá er fullkomnun náð


kveðja Dögg
 
Hugmyndir fyrir sumarfrí:
1) hjálpa Pétri, vini ykkar, að sortera frímerkjasafnið.
2) slappa af í baði og allt.
 
Ertu ekki örugglega búin að taka frá hádegið þann 5. júlí fyrir mig? (fimmtudaginn í næstu viku ;) )
 
Sumafríið er farið að taka á sig mynd...þegar ég er ekki ljósklædd í fótbolta með rauðvínsglas í hönd verð ég að sortera frímerkjasafnið hans Péturs. Síðan er ég þokkalega búin að taka 5. júlí frá og auðvitað líka tíma fyrir Brúðubíl o.fl. Það verður spennandi að sjá hvað Nína Þorbjörg mun ná miklu af Brúðubílsfjörinu...vonandi reynir hún ekki að ráðast til atlögu við bílinn eins og við tjörnina.
 
Mæli með Laugardalnum. Ég verð ókrýnd drottning Laugardalsins eftir fæðingarorlofið. Mæli með
a) göngutúr
b) piknikk
c) kaffihúsaferð
d) það var örugglega eitthvað djé...
Fyrst að koma við og ná í mig samt ;-)
 
Úúúú tillögurhorn er sko alltaf skemmtileg!
Mæli með dagsferðum af ýmsum toga innanlands t.d.
a. Ævintýragarðinn á Stokkseyri... þar eru "barna"útgáfurnar af öllum heimilisdýrum, risahoppidýna og stundum gott veður (en bara inni í garðinum)
b. Þórsmörk eða nærlægari staðir með tjald og amk eitt holl af góðvinum til gistingar og útileikja með börn, buru og gítar....
c. Grasagarðurinn...kenna fjörkálfinum á grös ( mjög mikilvægt í uppeldi) og taka með nesti í körfu með rauð-og hvítköflóttum dúk yfir (dúkurinn er ekki aukaatriði).
d. Koma í Álfatúnið þar sem bakgarðurinn framleiðir leikfélaga og gefur kaffiþyrstum fullorðnum fullkomið næði til að nærast og spjalla á meðan yfirsýn yfir athafnir fjörkálfa er algjör. T.d. kjörið svæði fyrir kollhnísaæfingar.
Heyrumst
Addý
 
Mér líst vel á snemmbúna hæfileika Nínunnar í sushi-gerð!
Annars finnst mér að þú eigir að skella þér í skreppitúr til Boston í sumarfríinu :)
 
Sendu inn athugasemd



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?