fimmtudagur, júlí 05, 2007

 

Draslið


Erum að reyna að nota sumarfríið að hluta til í tiltekt. Sem er hryllilega blóðugt akkúrat í fína veðrinu...enda hefur maður hangið í bænum alla daga og tekið til á nóttunni í staðinn.
Það er líka eins gott að láta hendur standa fram úr ermum, síðasti dagurinn í dag sem maður er tuttuguogeitthvað ára. Á ævinni (skuggalegt?). Get ekki hugsað mér að verða 30 ára með ársgamla hrúgu af óopnuðum gluggapósti á eldhúsgólfinu, heila leikfangabúð undir sófanum og hauga af ómerktum, eldgömlum VHS spólum í kringum sjónvarpið. Erum búin að vera eins og stormsveipir í ruslinu og þetta er allt að gerast. Bangsinn hennar Nínu Þorbjargar fékk meira að segja bað í dag (sjá mynd) og mín ætlaði ekki að ná sér yfir þeim hamförum. Fnykurinn af bangsanum (sem fer alltaf með henni í rúmið) var samt orðinn það óbærilegur að maður lét sig hafa þetta.
Nöldurhornið (loksins meira nöldur!):
Af hverju er jafnrétti kynjanna ekki löngu orðið staðreynd? Hvað er málið???
Fáum fleiri karla í hjúkrun, leikskólakennaraháskólann og húsfeðraskólann og leysum málið. Fleiri karla í 70% vinnu. Fleiri karla í nám með barneignum. Kynjakvóta í ummönnunarstörf. Já, og svo eiga ALLIR að mæta á völlinn þegar stelpurnar okkar keppa í fótbolta.
P.S. Hættum síðan þessum endemis fegurðarsamkeppnum.

Comments:
HIPP HIPP HURREY!!!
STEINUNN 30 ÁRA!!!!!!
Innilega tilhamingju með daginn elskan mín!!!
Koss og knús
Magga Stína
 
Kærar þakkir fyrir þessa veglegu afmæliskveðju! :)
 
Sendu inn athugasemd



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?