þriðjudagur, júlí 10, 2007

Hélt upp á þrítugsafmælið mitt föstudaginn 6. júlí...þ.e. á sjálfan afmælisdaginn. Gat ekki annað, þótt ég sé sérstaklega afmælislöt manneskja og nenni ekki að gera mikið veður út af svoleiðis tímamótum (kannski af biturri reynslu þar sem venjulega komast sérstaklega fáir í afmælið mitt sökum tímasetningar um hásumar). Var með sushi, osta, ávexti og aðrar sumarlegar veitingar og fullt af hvítvíni og bjór. Þetta fór rólega og notalega af stað og endaði síðan í svalli, almennum látum og hávaða og stuði niðri í bæ. Nágrannarnir hringdu ekki á lögguna frekar en fyrri daginn og sannar þetta enn og aftur hvers konar eðalfólk er hérna í kring.
Meðfylgjandi mynd var tekin undir lok partýsins og nefnist: "Sigurdís kann að dansa og skemmta sér".
