þriðjudagur, júlí 10, 2007

Hér sést Nína Þorbjörg í kunnuglegri pósu, að þessu sinni með speglagleraugu og pís-merki. Hún er ókrýnd drottning Austuvallarins og er búin að borða oft á öllum kaffihúsunum þar. Hún hefur tekið saman smá veitingahúsagagnrýni sem fer hér á eftir:
Thorvaldsen **
Svæsið hæg þjónusta, allt of mörg borð og allt of fáir þjónar. Dýr. Of heitt. Stjörnurnar tvær eru fyrir útsýni og frumlegheit í framreiðslu.
Domo ***
Hæg þjónusta (þó ekki svæsið). Grátandi og þreyttir þjónar. Mjög góður matur. Gott útsýni.
Kaffi París **1/2
Glæsilegt útsýni. Fín þjónusta, þó ekki á íslensku. Ekkert spes matur, en heldur ekkert spes dýr.
Farið eftir þessu. Þið verðið ekki svikin.

