mánudagur, júlí 16, 2007
Mætt á Austuvöll í gær í brakandi hita og sól. Nína Þorbjörg krítaði listaverk á gangstéttina og laðaði að sér herramenn á sama aldri. Hún stundaði það líka að leggjast þversum á bakið yfir gagnstéttina og hindra þannig almenna umferð um hana (upprennandi róttæklingur?). Austuvöllurinn er alltaf jafn exótískur, aldrei að vita hvenær maður dettur niður á hland, glerbrot og/eða sígarettustubba. Nammigott. Best að sleppa því að fara úr skónum.

