þriðjudagur, júlí 10, 2007
Myndaárás

Hörður, Tomoko og Sólrún Maya eru á landinu í fyrsta skipti síðan þau fluttu til Nýja Sjálands fyrir 5 árum. Þau eru auðvitað búin að reyna að fá eins mikið út úr heimsókninni og hægt er og m.a. var farið í sumarbústað um helgina og í heimsókn til Snæju frænku í hennar sumarbústað. Þar fengu krakkarnir (Nína Þorbjörg, Sólrún Maya og Úlfur Máni) flottar gjafir og voru óstöðvandi að leika sér í sólinni. Hitinn fór víst yfir 25 stig og menn (þ.e. ég) skaðsólbrunnu. Ég elska íslenska sumarið. Í alvöru.
Comments:
<< Home
Okkur finnst mjög týpískt að veðrið sé svona gott heima akkúrat þegar við erum í útlöndum en gleðjumst fyrir ykkar hönd. Ótrúlega heppilegt og gaman að fá svona gott veður þegar Hörður og co mæta til landsins. Hann hefur kannski bara pantað þetta, veðurfræðingurinn sjálfur.
Það er voða gaman að skoða myndir af ykkur svo endilega hendið fleirum inn sem oftast! :)
Sendu inn athugasemd
Það er voða gaman að skoða myndir af ykkur svo endilega hendið fleirum inn sem oftast! :)
<< Home

