mánudagur, júlí 16, 2007
Skelltum okkur síðan í lautarferð í Laugardalinn í dag, með góðum hópi fólks. Laugardalurinn er tilvalinn í svoleiðis, ótrúlega fínn og snyrtilegur og greinilega passað að hlutirnir séu í lagi (enda leggja sannar húsmæður mikið upp úr því að hlutir séu í lagi svona almennt). Mæli með þessu (og Nína Þorbjörg líka...hún er enn að velta fyrir sér stjörnugjöf en mér heyrist að tímamótadómur sé í uppsiglingu).

