mánudagur, júlí 16, 2007

 

"Sunar, sunar, sunar og sól"

Þetta er sko besta sunarið (beint úr orðabók Nínu Þorbjargar) sem ég hef nokkurn tíman upplifað. Hef fyllst innblæstri af þessum sökum og nú eru í garðinum tjald, garðstólar, pottablóm og ég veit ekki hvað. Einnig er í garðinum skaðbrunnið, gulbrúnt gras sem hefur vægast sagt séð sinn fífil fegri (fíflarnir sjá engan fífil lengur, enda allir dauðir). Reyndi af veikum mætti að vökva grasið með garðkönnu í dag og þurfti að hlaupa allmargar ferðir í kranann til að fylla á. Að sjálfsögðu er ekki til nein garðslanga hér á bæ....enda barasta algjör fásinna þar sem rigningin er vön að sjá um bæði garðinn og bílinn.
Helsta taugaspennan í mínu lífi þessa dagana tengist:
1) Grasofnæminu hans Árna Gríms. Nefstíflur eru ekki það sem við þurfum akkúrat núna. Er miður mín yfir þessu máli og finnst vera skítalykt af því.
2) Mótmælendurnir sem eru enn og aftur á kreiki á vegum "Björgum Íslandi" pródjektsins. Í rauninni er kannski bara hið besta mál að einhverjir hafi enn hugsjónir sem þeir eru tilbúnir að berjast fyrir og svífi ekki í gegnum lífið í einhverju algleymi og láti algjörlega að stjórn annarra. Hins vegar verð ég enn og aftur að undra mig á að þetta sé besti málstaðurinn sem menn finni sér til að berjast fyrir (þ.e.a.s. útlendingar). Það eru til svo miklu MIKLU meiri skepnuskapur og ósanngirni í heiminum. Og þessi vitleysa að hætta mannslífum með því að loka Snorrabrautinni (stofnbraut sjúkraflutninga) í leyfisleysi og vera síðan með vesen og ólæti og skrílshátt við lögregluna. Nett óþolandi.
3) Hotel Rwanda. Sá loksins þessa mynd og er ekki búin að jafna mig enn þá. Hef eiginlega ekki treyst mér í hana hingað til, enda farin að taka svona hluti alveg svakalega inn á mig. Tilhugsunin um að svona hlutir viðgangist, jafnvel akkúrat á þessarri sekúndu, er óbærileg.

Comments:
Ég hef ekki ennþá treyst mér í að horfa á þessa mynd. Ég tek líka allt svona svakalega inn á mig. Ég varð að biðja Grím um að lesa Flugdrekahlauparann á undan mér til að fullvissa mig um að það væri ekki of mikið ofbeldi í bókinni. En sú bók stóð vel undir væntingum. Mæli með henni ef þú hefur ekki lesið hana.
Kv Dögg
 
Heisan!
Æðislegar myndir úr íslensku hágæðasumri. Góður tíser núna í rigningunni.... Maður er nú samt svoddan Íslendingur að það er bara svolítið notalegt (?kunnuglegt) að vera komin með al-og þungskýjaðan himinn aftur... Þá getur maður hangið inni og gert alls konar innihluti sem maður hefur ekki samvisku til að gera þá sjaldan sólin gægist út úr skýjunum.
Hún Nína ykkar er augljóslega mjög litríkur karakter, sniðug lítil skellibjalla..og nokkuð ljóst að ég verð að fara að hitta hana í eigin persónu enda nokkuð um liðið frá því síðast....
kær kveðja úr Álfatúnsbakaríinu
Addý
 
Hellóbellóselló.. nei þetta er ekki hægt Nína Þorbjörg. Ég toppa ekki þitt heita rapp. Alltaf skemmti ég mér jafn mikið við lestur bloggsins ykkar. Ekki af verri endanum það. Alveg sammála með svo margt, eins og sjokkið og skömmin við að vera hvítur þegar horft er á Hotel Rwanda, fleiri stráka í hjúkrun og jú mikið rétt, það stendur til brúðkaupsferð austur fyrir Reykjavík. Mínir menn munu hafa samband við þína. takk sömuleiðis fyrir síðast í Oulu og til hamingju með afmælið Steinunn. Hjartanlega. Er ekki Nína Þorbjörg næst?
Nína þú ert töffari. Takk fyrir kveðjuna á einarslandi. Sjáumst vonandi sem fyrst. Kveðja
Álfhildur á næturvaktinni LSH
 
Sendu inn athugasemd



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?