þriðjudagur, júlí 10, 2007

 

Vagninn kvaddur


Fréttaskot (reyndar nokkurra daga gamlar fréttir, en þetta er nú heldur engin atvinnu fréttaþjónusta): Nína Þorbjörg er hætt að sofa á daginn. Punktur. Hún er víst heldur snemma í þessu, enda ekki orðin tveggja ára. Hins vegar staðfestir þetta bara allar mínar fyrri grunsemdir um það hvað hún þarf lítinn svefn og hefur alltaf þurft. Finnst sjöhundruð sinnum skemmtilegra að vaka en að sofa (svolítið öfugt við mig sko).
Þetta er bæði frábært og glatað, eftir því hvernig á það er litið. Nú er vagninn bara krónískt í kerrustillingunni og ekkert vafstur lengur í sambandi við að koma henni í hann í hádeginu og fá hana til að sofna (= frábært). Á móti kemur að hún er orðin syfjuð og arfapirruð upp úr kl. 19 á kvöldin, sem drepur alveg félagslíf fjölskyldunnar utan heimilis (= glatað). Héðan í frá verða sem sagt öll matarboð heima hjá okkur í draslinu. Verið velkomin!

Comments: Sendu inn athugasemd



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?