þriðjudagur, ágúst 28, 2007

 

2 ára

 
Við héldum upp á 2 ára afmælið hennar Nínu Þorbjargar á laugardaginn og gekk það bara glimrandi vel. Ákváðum að klára þetta í einni atrennu og buðum fjölskyldunni fyrst og vinunum beint á eftir. Sem var eins gott því í seinna hollinu hefðum við ekki getað troðið einni manneskju í viðbót inn með skóhorni...andrúmsloftið var sveitt og rakinn lak af gluggunum. Hugsunin á bakvið þetta var sú að á þessum árstíma er fólk mikið í burtu og því eru afföll svona 50% (eins og hjá okkur í fyrra). En, þetta reiknilíkan er ekki alveg 100% nákvæmt, þannig að það fór eins og það fór. Að sjálfsöðgu hefði það besta í stöðunni verið að innrétta leikaðstöðu/setsvæði í kjallaranum og nýta þannig alla okkar 100 fm. En, verandi á síðustu stundu eins og alltaf, þá endaði kjallarinn sem allsherjar ruslakista þangað sem öllu lauslegu var hent 5 mín. áður en gestirnir komu. Okkur er nú smá vorkunn, Árni Grímur var að vinna á sólahringsvöktum á föstudeginum og sunnudeginum og ég að reyna að baka og þrífa þegar Nína var sofnuð.
Þrátt fyrir allan þennan hamagang og troðning vorum við fjölskyldan mjög hress með daginn og þakklát fyrir allar flottu gjafirnar og hjálpina. Nína Þorbjörg hefur eignast a.m.k. 1-2 nýja rúmmetra af dóti og er hægt og rólega að læra á því tökin. Fékk m.a. dúkkur og dúkkuvagn, sem hún keyrir stolt með um íbúðina (eftir að hún hefur fjarlægt dúkkur, sæng og kodda og dýnu úr vagninum og hent á gólfið). Held að hún hafi annars klárlega umbreyst í vitrara og þroskaðra barn á afmælisdaginn. Er að verða algjör snyrtipinni, vill bara vera í pilsi og láta skreyta sig með kórónum og perlufestum. Geymir síðan skartgripina sína í ballerínuskartgripaskríni, þannig að veröldin hefur aldrei verið bleikari á þessu heimili.
Posted by Picasa

Comments:
Til hamingju með afmælið, sæta prinsessu-Nína!
 
Sendu inn athugasemd



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?