sunnudagur, ágúst 05, 2007
ÚTSÖLUR
Hef bara keypt á Nínu Þorbjörgu á þessum útsölum, aðallega vegna þess að þá þarf ekkert að máta og maður getur leyft sér að kaupa föt sem eru með klikkuðum mynstrum og í skerandi litum. Vildi óska þess að það fengist meira svona á fullorðna...þótt ég sé nú reyndar ekki viss um að ég myndi nýta mér það mikið þar sem mér finnst ég þurfa að vera svo settleg, sérstaklega í vinnunni. Það þýðir ekki að framkalla ógleði og svima hjá sjúklingunum bara með því að vinda sér aðeins of hratt inn um dyrnar. Hér sést Nína, á bílnum að sjálfsögðu, í mjög töff útsölusamfellu.
Comments:
<< Home
Þakka pistill úr sumarfríinu, alltaf gaman að fá að fylgjast með. Okkar pistill hljómar sem svo: sól, heitt, bjór, hvítvín, rússibanar, góðar bækur. meiri bjór og aðeins meira hvítvín.
Kv Dögg
Kv Dögg
Mjög freistandi pistill...sól, heitt og bjór slær alltaf í gegn! Mæli með að þú farir að koma þessum pistlum á blogg, með myndum af ykkur hjónum á ströndinni að sjálfsögðu.
Sendu inn athugasemd
<< Home


