föstudagur, september 07, 2007
Aðlögun

Finnst eiginlega að Árni Grímur eigi að eiga heiðurinn að fyrsta leikskóla-blogginu... Hann hefur nefnilega verið með Nínu Þorbjörgu í aðlögun á Grænuborg alla vikuna og gengið nokkuð vel. Ég vesenast á taugadeildinni á meðan og fæ að fylgjast með gangi mála með þéttum símtölum og myndböndum af fjörinu sem Árni tekur á símann sinn.
Skilst að málin standi nokkuð vel, þótt það sé auðvitað alltaf erfitt að kveðja stað sem maður er mjög ánægður á og þekkir vel til að byrja á glænýjum og ókunnugum. Nínan hefur staðið sig eins og hetja og ekki kvartað neitt óeðlilega mikið. Það er alltaf hægt að róa hana með því að bjóða henni að róla eða dansa. Þetta tvennt er toppurinn á tilverunni og fær mann til að gleyma stund og stað. Svo er leikskólinn auðvitað gríðar spennandi og fullur af krökkum sem hægt er að læra af (t.d. að tala).
Eigum pottþétt eftir að sakna Þórunnar dagmömmu alveg hrikalega, það er ekki auðvelt að kveðja fólk sem maður skilur barnið sitt eftir hjá á hverjum morgni í heilt ár og treystir fullkomlega fyrir því. Ég þarf aðlögun!
Comments:
<< Home
Mikið að gerast hjá fjölskyldunni þessa dagana. Til hamingju með betri sjón, Steinunn. Nína Þorbjörg á örugglega eftir að blómstra á leikskólanum. Gaman að kynnast fleiri jafnöldrum og jafnvel eldri börnum:-)
Þar sem ég var nánast orðrétt með setningarnar hennar Daggar hér að ofan í huga....þá bara dobbla ég þær kveðjur hérmeð ;)
kveðja
Addý og fj.
Sendu inn athugasemd
kveðja
Addý og fj.
<< Home


