fimmtudagur, september 27, 2007
Allir boltar á lofti

Aðlögunin...
...er enn í gangi. Erum enn að skilja við Nínu Þorbjörgu á leikskólanum hágrátandi, eða í verri tilfellum að berjast við grátinn. Þetta rífur úr manni hjartað. Svo á maður bara að bruna í vinnuna eins og ekkert hafi í skorist og hætta að pæla í þessu. Meingallað fyrirkomulag. Held samt í vonina að þetta sé allt að koma. Fórum á foreldrafund á leikskólanum um daginn þar sem starfssemin var kynnt og þetta hljómaði æðislega. Miklu betur en að hanga heima með 1 stk. foreldri í náttslopp sem nennir ekki neinu og reynir ítrekað að laumast til að leggja sig í sófanum. Eða láta mann horfa á Skoppu og Skrítlu í Húsdýragarðinum daginn út og inn á meðan viðkomandi les Moggann og fer á netið (já, já, veit að ég er sko ekki ein um þetta...).
Djammið...
...gengur mjög vel hjá mér þessa dagana en ekki Árna Grími (alls ekki sanngjarnt, bara svo að það komi fram). Geng hratt á kvótann sem ég safnaði á meðgöngunni. Fór í mjög hresst stelpupartý til Sigurdísar s.l. föstudag þar sem hún hélt uppi fjörinu með gítarleik og hópsöng. Slagarar eins og "á Spáni er gott að djamma og djúsa diskótekunum á, hei!" voru að sjálfsögðu teknir. Daginn eftir var svo hópefli unglækna í sérnámi í lyflækningum (grípandi nafngift) sem samanstóð af óvissuferð og mat og áfengi. Byrjað var í keilu og kom ég sjálfri mér á óvart með því að vera lang lélegust af öllum í þeirri "íþrótt". Héðan í frá telst þetta ekki "íþrótt" heldur afþreying fyrir bjórvambir og sófakartöflur (er ekkert svekkt). Næst var laser-tag og rokkaði ég gjörsamlega á því sviði (var alveg í 7. sæti, enda stefndi ég fast á akkúrat það). Eftir átökin var farið í æðislegt matarboð og partý og auðvitað skörtuðu menn rennsveittum fötum og strigaskóm við það tækifæri. Það er enn þá saltbragð af mér. Ef menn vilja vita hvað var í matinn má kanna málið hér: ragnarfreyr.blog.is (já, það þarf að slá þetta inn, nei, insert link virkar ekki hjá mér). Ótrúlega vel heppnaður dagur.
Framtíðin...
...nú erum við Urðarstígsbúar að undirbúa innrás til Svíþjóðar í þeim tilgangi að kanna hvort þeir hafi ekki áhuga á að fá okkur til starfa. Árni ætlar að sjá um að taka röntgenmyndir af Svíum á meðan ég vil passa gamla Svía. Hlýtur að heppnast. Erum komin mjög langt í þessum spekúleringum. Ég er búin að finna draumahúsið en hins vegar er enginn búinn að hafa samband til að bjóða okkur vinnu. Skil þetta ekki alveg. Síðan stefni ég á Boston heimsókn í desember, til að heimsækja Ólöfu og leggjast í hrikalegt búðarráp og jólagjafaæði. Árni Grímur ætlar aftur á röntgenráðstefnu (að þessu sinni í Chicago, þar er ekkert skíðasvæði, þannig að maður veit ekki alveg hvað verður gert...). Brúðkaupsferðin verður enn að bíða betri tíma, þótt við höfum reyndar náð sameiginlegri brúðkaupsferð með Jóni Þorkeli og Álfhildi í sumarbústað um daginn. Halli og Guðný fengu að fljóta með þar sem þau eru einnig gift. Þetta var reyndar frekar fyndin ferð, allt á kafi í snjó og jólastemning í loftinu...algjört æði (og tilheyrir fortíðinni, þannig að ég veit ekki hvað það er að gera undir þessari fyrirsögn).
Mao...
...menn kunna að spyrja sig af hverju Mao er með í færslunni. Vildi bara mæla með Mao-bókinni svo kölluðu sem ég er búin að liggja yfir frá því að ég fékk hana í afmælisgjöf og hún gleypti mig alveg. Ekki fyrir viðkvæma, en mjöööög merkileg. Og lærdómsrík. Lesið hana og sjáið ljósið. Góða nótt.
