föstudagur, september 07, 2007
Kveðjubréf handa nærsýninni

Erfið en góð vika að baki. Fór í laser augnaðgerðina á föstudaginn og gekk það bara glimrandi vel. Ef einhver vill ímynda sér herlegheitin sem ég gekk í gegnum má sjá þau á meðfylgjandi mynd. Aðalatriðið er að hugsa ekkert (og þá meina ég ekkert) um það sem er í gangi. Treysta augnlækninum fullkomlega og njóta þess að vera í fríi frá vinnu og fjölskyldu meðan hnífurinn sneiðir ofan af hornhimnunni. Namm. Fá svo að fara heim að sofa undir Panodil-áhrifum í stað þess að sitja sveittur í vinnunni. Dagana á eftir var ég í súrrealískri veröld augnþurrks og nýfenginnar furðulega góðrar sjónar. Er enn að taka af mér gleraugun áður en ég fer að sofa eða í sturtu og gríp alltaf í tómt. Geng enn í rigningunni með nefið í gangstéttinni til að forðast að rennbleyta téð gleraugu og er alltaf jafn hissa þegar ég lít upp og sé eins og Árni Grímur (sem er með fullkomna sjón eins og flestir vita).
Aðalvandamálið (f.u. augnþurrkinn ógurlega) er að geta ekki verið málaður í vinnunni. Ég er svo svæsin pjattrófa að ég sýni mig ekki ómálaða úti í sjoppu á sunnudagsmorgni, hvað þá á vinnustað. Hef verið gegnsæ og guggin alla vikuna og get ekki beðið eftir að því tímabili ljúki. Mæti kannski bara í drag-i eftir helgi til að bæta upp fyrir litleysið. Ætla að vera drottning í anda rúsínuskvísunnar "Sun-Maid". Með banana,ananas og vínber í hárinu, í sígaunadressi með alls konar glingri og svo mikinn glimmer í andlitinu að fólk fær ofbirtu í augun. Sá hlær best sem síðast hlær, ekki satt...
