mánudagur, október 15, 2007

 

Iðnar býflugur

 
Vildi stundum að maður gæti tvöfaldað sig...ekkert slor það...
Erum búin að vera á haus, en auðvitað byrjar maður fréttaskotið á því nýjasta nýja hjá Nínu Þorbjörgu. Hún er bara orðin miklu sáttari í leikskólanum og við erum alveg hrikalega ánægð með það. Hún talar vel um Grænuborg (eða "Læbo") og er stundum virkilega æst að komast þangað. Hleypur hress út í bíl og hleypur mjög hress inn á Dropadeildina sína. Algjört æði. Síðan er hún náttúrlega ofurlímheili og músíkant, kann fullt af lögum og textum og finnst gaman að sýna sig og fá klapp og hrós fyrir. Tekur slagarana "Krummi krunkar úti", "Allir krakkar", "Gulur, rauður, grænn og blár", "Fagur fiskur í sjó" (með leikrænum tilburðum), "Dansi, dansi dúkkan mín" og "Höfuð herðar hné og tær", oft á dag. Því miður finnst henni líka alveg hreint meiriháttar gaman að drasla til og skvetta matvælum og það þýðir ekkert að skamma hana því þá fer hún að gráta og snöktir "allir krakkar..." eða "allt í lagi...", og þá er auðvitað ekki hægt að halda áfram að vera með vesen. Eyðum síðan flestum kvöldum í að þurrka af og raða og snurfusa.
Bjó annars til yfirlit í ellefu liðum yfir viðburði síðustu daga. Mæli með að yfirlitið sé lesið í heild sinni og í réttri röð, í undartekningartilfellum gætu menn þó viljað lesa um eitthvað ákveðið sérstaklega.
1. Svíþjóðarferðin.
Erum á leiðinni til Stokkhólms á næstu dögum til að kíkja á sérnám þar. Létum loksins verða af því að hafa samband og mönnum líst held ég bara vel á að hitta okkur. Ætlum að æfa viðtalstækni eins og brjálæðingar og taka þetta á keppnisskapinu. Þetta verður líka að teljast einhvers konar brúðkaupsferð (þær verða greinilega margar og fjölbreytilegar) þannig að stefnan er að fá sér barasta bjór og kannski kíkja á veitingahús.
2. Prófið.
Ég fór í lyflæknisfræðiprófið ógnvænlega annað árið í röð s.l. föstudag og kom ágætlega undan því. Prófið er sem sagt harðsvírað krossapróf sem tekið er á 8 klst., með smá matarpásu og er ætlað til að meta stöðu manns í sérnáminu. Einkunnin er ekki komin en hins vegar er komið í ljós að staða hálsvöðvanna er greinilega ekki sem skyldi. Það var bilun að halda þessu þunga höfði bograndi yfir prófgögnum í 8 klst., ég er enn pikkfrosin með nefið í gólfinu.
3. Októberfest.
Fór beint á októberfest unglækna og læknanema eftir prófið (þrátt fyrir alvarlegt svefnleysi og einkennileg meltingareinkenni). Skemmti mér alveg frábærlega, enda ókeypis bjór í boði. MEÐMÆLI DAGSINS: Föstudagskvöld. Maður gerir sér minni vonir. Öll helgin er framundan. Það eru fáir í bænum. Það getur allt gerst.
4. Margumrædd vísindagrein.
Sendi frá mér vísindagreinina mína í síðustu viku eftir nokkurra ára streð. Er ótrúlega ánægð með að vera loksins búin með þetta á sama tíma og ég er að byrja á næstu vísindagrein. Maður lærir aldrei neitt.
5. Bílamál. AKA Lozer-mobile part 14.
Lozer-mobile var innlagður hjá Brimborgarmönnum í dag og kom strax í ljós að hann var í krítísku ástandi. Einhvern veginn hefur okkur tekist að rústa bremsunum bæði að framan og aftan, rústa einhverri olíusíu og það lekur eitthvað í stýrisbúnaðnum og í olíusysteminu og ég veit ekki hvað og hvað. Og maður var að bruna á þessum bíl um landið. Það er ekki í lagi með mann.
6. Næturvaktir.
Er búin að massa þónokkrar næturvaktir og hefur tekist að halda mér ótrúlega ferskri í gegnum þetta. Bara ef einhver skyldi hafa áhuga á að vita það.
7. Aðalfundur Læknafélags Íslands.
Sat Aðalfund Læknafélags Íslands (eða ALI) einhverja helgina um daginn. Tókst að standa mig einstaklega vel af byrjanda. Mætti ekki fyrr en eftir hádegi fyrsta daginn af því að ég fattaði ekki að ALI hefðu byrjað um morguninn. Var ekki með nein fundargögn af því að þau voru send í pakkasendingu niður á pósthús sem ég hafði ekki nennt að sækja. Týndi á fyrsta degi kostningaréttinum mínum (en á ALI er maður með svona blátt blað með nafninu sínu á sem er "kostningarétturinn" manns og maður á að veifa ef maður er sammála). Gerði mér engan veginn grein fyrir mikilvægi þessa blaðs og leyfði Nínu Þ að eyðileggja það strax fyrsta daginn. Þrátt fyrir þessi skakkaföll var gaman á ALI og ég gerði eitthvað gagn fyrir mitt fólk. Að fundi loknum var síðan meiriháttar skemmtilegur kvöldmatur og skemmtiatriði þar sem Sigurdís var að sjálfsögðu aðalmanneskjan með gítarinn. Skemmdi reyndar aðeins fyrir sér með bleikri "Heavy metal" gítarnögl...en það var bara smáatriði.
8. Facebook.
Kynntist þessu fyrirbæri fyrir nokkrum dögum og er alltaf eitthvað að kíkja þarna inn. Hélt að þetta myndi aldrei koma fyrir mig. Í alvöru.
9. Skerðingin á leikskólanum.
Vegna manneklu á leikskólanum þurfum við tímabundið að sækja Nínu Þorbjörgu fyrr á daginn, eða kl. 15:15. Vissulega er þetta aukið stress, en á hinn bóginn er ég lúmskt sátt. Hér með er ég neydd til að hafa barnið mitt klukkutíma styttra á leikskólanum á dag og ég held að þrátt fyrir það sé hún yfrið nógu lengi þarna. Samfélagið er vægast sagt ekki nógu barnvænt í núverandi mynd.
10. Mál OR og REI og GGE.
Er á móti þessu öllu. Virkilega.
11. Atriði ellefu.
Þetta atriði er að eigin vali. Bætið inn eigin atriði.

Bestu kveðjur,
Steinunn
Posted by Picasa

Comments:
Aldeilis flott startmynd, bara eðalspeglun í gangi og sérlega skemmtileg færsla.
Heyrumst
Addý
 
Hæ. Bara benda á að það gleymdist að segja frá merkisviðburðum vikunnar, þ.e. að við höfum náð að hittast tvisvar sinnum! Þokkalegt það! Góða skemmtun í Svíþjóð. P.s. Nennið þið að sækja um fyrir okkur í leiðinni? Ég ætla í gigt og Þorgeir er ekki búinn að ákveða sig, en þið getið bara sótt um eitthvað sem ykkur líst vel á fyrir hann. Takk svakalega. Helgó
 
11. Atriði ellefu.
Fór í sturtu og skolaði á mér á hárið. Þvoði litaðan þvott og gerði að götum í sokkum. Skellti loks í pönnsur ... og útbjó kotasælu Hollands.
Kveðja, Ásgeir og Pétur.
 
Sendu inn athugasemd



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?