sunnudagur, október 28, 2007

 

Svenska familinskí

 
Mætt til Feneyja norðursins...
Við Árni Grímur erum komin heim eftir geysilega öfluga Svíþjóðarferð þar sem allt var lagt í sölurnar. Flugum fyrst til Kaupmannahafnar (ekki spyrja af hverju...löng saga) og gistum þar eina nótt. Ég byrjaði að gera vel við sjálfa mig strax í Leifsstöð og fékk mér smörrebröd með laxi (mjög sænskt og fínt). Þetta tiltekna smörrebröd olli síðan svæsinni matareitrun sem hófst akkúrat 6 klst. síðar, beint fyrir framan tívolí. Náði að harka þetta af mér meðan við keyptum okkur nýjasta iPod Nano (vægast sagt glæsilegt apparat þótt ég geti enn ekki horft á það án þess að fá í magann) og litum við í nokkrum fatabúðum. Harkaði áfram af mér í gegnum 6 réttaða máltíð á frábærum veitingastað, sem reyndist reyndar verða 3 rétta fyrir mig og 9 rétta fyrir Árna Grím þar sem hann þurfti að klára nánast allan matinn minn. Eyddi svo nóttinni í hressilegt matareitrunarfjör og líka lestarferðinni til Stokkhólms.
Við Árni Grímur fórum bæði í viðtöl og skoðunarferðir um sjúkrahús morguninn eftir komuna til Stokkhólms og gekk það vonum framar. Ég hitti Ragnheiði sem er í sérnámi í öldrun á Huddinge (sem er stokkhólmskur spítali) og hún kynnti mig fyrir yfirlækninum, fullt af öðru starfsfólki, spítalanum, tölvukerfinu á spítalanum, hverfinu í kringum spítalann og ég veit ekki hvað og hvað. Árni Grímur fékk líka meiriháttar skoðunarferð um röntgendeildina á sjúkrahúsinu í Solna (annar stokkhólmskur spítali) sem spannar marga kílómetra og menn þurfa að vera í rokna formi til að koma yfirleitt til greina í vinnu. Okkur leist mjög vel á okkur þarna og erum spennt að flytja út, sem verður vonandi næsta vor/sumar. A.m.k. tóku Svíarnir bara vel í að fá okkur. Kíktum líka í kaffi til Elínar bekkjarsystur okkar, en hún býr í hverfi sem er nálægt spítalanum sem Árni myndi vinna á. Þannig erum við komin með yfirgripsmikla þekkingu á hverfum nálægt spítölum í Stokkhólmi. Áhugavert og ekki það fyrsta sem þú lest um í ferðahandbókum... Okkur sýnist að það sé auðvelt að finna róleg og góð hverfi sem samt eru stutt frá miðbænum, þannig að maður missi ekki af stemningunni sem fylgir því að búa í svona frábærri stórborg.
Að lokum fórum við út að borða með Jens og Ernu og endaði það í svæsnu djammi í Södermalm, þar sem var fullt af börum og göturnar troðnar af fólki. Laugavegur hvað?
Posted by Picasa

Comments:
Frábært að þetta gekk vel hjá ykkur, spennandi tímar framundan!
 
Vei! Við erum a.m.k. mjög ánægð með þetta allt saman :) Þá er líka tvöfalt meiri ástæða til að kíkja í heimsókn til Stokkhólms...
 
Magnað! Sunna mágkona fékk einmitt sennilega matareitrun af samloku úr flugstöðinni þegar hún var á leiðinni til okkar síðasta vetur. Maður verður greinilega að passa sig á þessu...
 
Sendu inn athugasemd



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?