miðvikudagur, nóvember 28, 2007
Ljúfa lífið...
Man að áður en ég eignaðist Nínu Þorbjörgu fannst mér ótrúlega notalegt að hitta foreldra með börn í kerrum og barnavögnum í bænum. Þetta lítur eitthvað svo vel út, að rölta í miðbænum með vagninn í rólegheitum, kíkja í búðir, setjast á kaffihús og njóta lífsins með eitt stk. krúsídúllumús með í för. Raunveruleikinn hefur engan veginn verið í takt við þessa rjómabolluímyndun. Nýjasta dæmið er frá því í fyrradag þegar ég var harðákveðin í að upplifa miðbæjarröltsdrauminn. Sótti Nínu á leikskólann með kerruna og þrammaði niður Skólavörðustíginn. Mjög fljótlega fór að bera á því að Nínu langaði bara heim og vildi EKKI vera í kerrunni og EKKI fara í búðir. Var komin með helminginn af kvöldmatnum (fiskinn) og stödd við MR þegar ég tók allt í einu eftir að það var sprungið á kerrunni. Á þessum tímapunkti var Nínan að springa úr pirringi yfir þessum ömurleika að vera á labbinu í bænum. Vildi alls ekki vera í kerrunni og heldur EKKI labba sjálf. Það endaði með því að ég dröslaðist heim með kerru með sprungnu dekki, fullt af pokum og leikskóladóti og 14 kg barn í fanginu. Öll leiðin að sjálfsögðu upp í móti. Þetta leiddi til örmögnunar, harðsperra og rennandi svitakófs. Þrátt fyrir þessa mannraun var ég ekki komin með allan kvöldmatinn í hendurnar og Nína orðin svo svekkt að það var ekki fræðilegur möguleiki að hún mundi haga sér eins og manneskja á almannafæri. Þar með tók við 1 1/2 klst. "kælingar- og dekurtímabil", þar sem ég tróð í hana mat og skemmtiefni til að geta loksins dröslast aftur út í búð með hana. Endalaus kæti.
Aðrar fréttir:
1) Þrautagangan sem fylgir því að hafa Árna Grím í Chicago heldur áfram. Nú er nánast allt á heimilinu sem getur bilað búið að bila og ég hef ekki hugmynd um hvernig maður reddar því. Bilað dót:
- Fjölvarpið. Kannast einhver við "smartcard wrong insert"? Ekki ég.
- Fjarstýringin að Margmiðlunarmiðstöð Árna Gríms. Virkar ekki. Veit ekki af hverju.
- Ipodinn minn. Er búin með rafhlöðuna. Kann ekki að hlaða rafhlöðuna.
2) Nína Þorbjörg er farin að raða út úr sér gullkornum. Sá t.d. mynd af jólasveini í blaðinu um daginn, benti á skeggið á honum og sagði "núðlur". Síðan var litla stelpan í fanginu á jólasveininum að sjálfsögðu "mamma".
3) Nína Þorbjörg samþykkti að fara í kjólinn sem gerður var úr jólapakkabandinu og hálsklútnum og er algjört meistaraverk sbr. meðfylgjandi mynd. Vill helst ekki vera í öðru...þannig að stoltið á fullkomlega rétt á sér...
4) Er búin að vera agalega dugleg í vinnunni (ef einhver skildi halda að lífið snerist bara um sprungin kerrudekk og vafasaman saumaskap). Verð allan daginn á morgun að kenna læknanemum að mæla blóðþrýsting, fer á endurlífgunarnámskeið hinn daginn og held fyrirlestur á rannsóknarráðstefnu sama dag. Er að undirbúa þetta allt af mikilli samviskusemi. Bara svona svo það sé á hreinu.
Comments:
<< Home
Flottur kjóll! Þú ert algjör snillingur:-) Verður gaman fyrir prinsessu eins og Nínu að geta valið efni í kjólana sína sjálf síðar meir..
"Eftir leikskóla tími" tveggja ára barna getur verið frekar flókinn. Auðveldara að hafa yngra eða eldra barn með sér í kósí röltið ;-)
knús og kremjur
L
"Eftir leikskóla tími" tveggja ára barna getur verið frekar flókinn. Auðveldara að hafa yngra eða eldra barn með sér í kósí röltið ;-)
knús og kremjur
L
Þetta er ekkert smá fyndið, ég grenja úr hlátri hérna...vona að fiskurinn hafi verið ljúffengur
kv Dögg
kv Dögg
Smartcort wrong insert
- endurræsa myndlykil
Fjarstýringin virkar - vittu til
Stingdu ipod við tölvu
kv
Jón Þorkel
- endurræsa myndlykil
Fjarstýringin virkar - vittu til
Stingdu ipod við tölvu
kv
Jón Þorkel
Almennileg komment!
Jón: Þetta smellpassaði bara allt saman hjá þér....nema "smartcard wrong insert". Árni Grímur er ekkert að ráða við atburðarrásina sem er enn í gangi hér á heimilinu varðandi þetta s.k. "smart"card.
Sendu inn athugasemd
Jón: Þetta smellpassaði bara allt saman hjá þér....nema "smartcard wrong insert". Árni Grímur er ekkert að ráða við atburðarrásina sem er enn í gangi hér á heimilinu varðandi þetta s.k. "smart"card.
<< Home



