sunnudagur, nóvember 25, 2007
Stoltið
Ég sóaði tíma mínum ótæpilega s.l. föstudag þegar ég beið í 2 klst. á dekkjaverkstæði meðan verið var að nostra við að skipta um dekk hjá mér. Er þrátt fyrir þessa sólundun alveg ótrúlega stolt af mér þar sem þetta er í fyrsta skipti síðan að ég komst yfir bifreið sem ég er komin á naglana fyrir áramót. Svo er mér alveg sama hvað fólki finnst almennt um nagla og svifryk. Ég er ekki á jeppa þannig að ég hef alveg efni á þessu.
Annars er Árni Grímur staddur á ráðstefnu í Chicago þessa dagana og Nína Þorbjörg hefur náð að ganga alveg ótrúlega á lagið. Ég ræð ekkert við hana svona alein og ástandið á heimilinu er eftir því. Tókst ekki að koma í veg fyrir innflutning í pizza-ofns hilluna (sbr. meðfylgjandi myndir). Tókst ekki að koma í veg fyrir að hún henti uppáhalds eyrnalokkunum mínum í klósettið. Tókst ekki að koma í veg fyrir að hún klæddist bláa jólakjólnum sínum síðan hún var 4 mánaða þótt hann sé á sársaukamörkum vegna smæðar (sbr. meðfylgjandi myndir). Tókst ekki að koma í veg fyrir að hún klæddist brúðarkjólnum sem ég gifti mig í (þ.e. hún hvarf einhvern veginn í allt tjullið). Ef menn halda að mér hafi eingöngu verið fyrirmunað að koma í veg fyrir hluti þá er það alrangt. Það voru líka ýmsir hlutir sem mér tókst ekki að fá framgengt. Fékk hana ekki til að borða gríðar ljúffengar fjallagrasaflatkökur eða jólamandarínur. Fékk hana ekki til að klæðast fyrsta kjólnum sem ég saumaði á hana í saumavélinni minni... Hef átt þessa saumavél í meira en ár, en týndi pedalanum og rafmagnssnúrunni fyrir löngu, þannig að hún hefur verið ónothæf. Gerði heiðarlega tilraun til að nálgast annan pedala hjá "umboðinu"...það var í ágúst og þeir eru enn ekki búnir að hringja. Sveiattan! Alla vegana þá fann ég pedalann í jólaskrautinu (???) núna um daginn og hef verið óstöðvandi í að sauma viðbjóð síðan. Hef saumað tösku úr viskustykki, kjól úr gardínu og annan kjól úr hálsklút og jólapakkabandi. Nína Þorbjörg sýnir þessu megna fyrirlitningu og þegar hún sá gardínukjólinn sló hún í hann og sagði "nei". Síðan reif hún hann af mér og tróð honum undir borð. Ég er að rifna úr stolti yfir þessu.
Og, pedali er víst íslenskt og það er víst beygt svona. Góðar stundir.
Comments:
<< Home
Okkur grunar að Árni hafi falið pedalann í jólaskrautinu.
Af hverju er einhver að gagnrýna það hvernig orðið pedali er notað?
Af hverju er einhver að gagnrýna það hvernig orðið pedali er notað?
Vildi bara kæfa alla gagnrýni á þessa orðnotkun í fæðingu...þetta er annars mjög rótgróið orð í minni fjölskyldu :)
Mér líst afar vel á þessa nýtilkomnu saumahæfileika! Gerir amk jólagjafaleit mun auðveldari fyrir þig, ef allt annað bregst má alltaf skella einni viskustykkjatösku í pakkann :)
Hlakka til að sjá þig!! Hlakka líka til að heyra hvaða brögðum Nína beitir á pabba sinn þegar þú ert í Boston.
Hlakka til að sjá þig!! Hlakka líka til að heyra hvaða brögðum Nína beitir á pabba sinn þegar þú ert í Boston.
Hver veit hvaða heppnu einstaklingar munu fá jólagjöfina í ár...viskustykkjatösku!
Tek kannski bara nokkur stk. með mér til Boston til að leifa innfæddum að njóta dýrðarinnar...
Sendu inn athugasemd
Tek kannski bara nokkur stk. með mér til Boston til að leifa innfæddum að njóta dýrðarinnar...
<< Home


