miðvikudagur, nóvember 14, 2007

 

Unglingurinn Nína Þorbjörg, jólaóða mamman og vaktatryllti pabbin

 
Nína Þorbjörg vex hratt úr grasi þessa dagana og er með óþekkt á heimilinu. Neitar nánast öllu sem lagt er til og er í gríðarlegri sjálfstæðisbaráttu. Vill vaka lengi fram eftir, vera fínt klædd og láta teikna sig. Vill ganga um í háhæluðum skóm, helst appelsínugulum. Sem betur fer fyrirfinnst eitt slíkt par hér á heimilinu (sem má alls ekki sjást á morgnana, því þá vill hún fara í því á leikskólann).
Ég tók eitt stykki jólaflipp í dag, sem er algjörlega án fordæmis í mínu lífi. Fór í hið jólaóða Blómaval og ætlaði að skella mér á einn aðventukrans til að vera bara búin að þessu. En, hver reyndist síðan vera sá jólaóði? Ég eða Blómaval??? A.m.k. eru engir kransar komnir í hillurnar þar enn þá... Keypti í staðinn ljósaperu í útiljósið okkar sem hefur verið perulaust í 1-2 ár. Blaðberar og póstberar (og allt þetta lið sem keppist við að drekkja mér daglega í pappírsflóði) hljóta að senda mér blóm og nammi fyrir afrekið.
Árni Grímur er alltaf að vinna, þ.m.t. í kvöld. Ákvað því að blogga til að hann geti séð hvernig dóttir hans lítur út. Annars er honum sérstök vorkunn í kvöld. Fór í fótbolta á undan vaktinni og hefur ekki enn komist í sturtu og heldur ekki í kvöldmat. Mæli ekki með að leita á slysó í kvöld...a.m.k. ekki ef maður þarf að láta röntgena sig.
Posted by Picasa

Comments:
Ó mæ, hvernig verður stúlkan þegar hún verður orðin 13 ára! Nema bara að hún klári unglingaveikina núna, það væri ekki slæmt.

....og svona þér til huggunar þá er ég ekki heldur komin með krans, þótt búðirnar hér séu að komast í jólagírinn :)
 
Ein besta fjárfesting mín til þessa var Georg Jensen aðventukertastjaki, ár hvert þarftu bara að kaupa ný kerti...
 
Þið eruð æði!
kveðja úr jólaskapshreiðrinu Álfatúni..
Addý
p.s. förum til Kaupmannahafnar eftir 2 vikur í jólastemmninguna á Strikinu.. á ég að safna smá jólastrik-stemmningu á flösku fyrir þig og taka með heim??
 
p.s.s.
Ég er algjörlega að fíla þennan bloggdugnað frú Steinunnar
(og nú er ég hætt. Ekki gott þegar pé-essin eru miklu lengri en aðalskilaboðin ;)
 
Þakka góðar jólaábendingar og mundi þiggja með þökkum jólastriks-stemningu í flösku :)
Stefni á að reyna að herða mig í blogginu...líka gaman að vita að einhverjir lesa!
 
Áfram Steinunn. Er sko ekki jafn framtakssöm og þú í jólaundirbúningi, aftur áfram Steinunn. Þurfum að finna hentugan dag bráðum fyrir bæjarskrepp, Trilogía, jólahúsið og Lækjarbrekka. Jibbí
 
Sendu inn athugasemd



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?