laugardagur, desember 22, 2007

 

Jólóhlaðborð 2007

 
Allar myndirnar frá árlega jólahlaðborðinu í einni svipmynd. Agalega áramótalegt!
Hápunktur hlaðborðsins þetta árið var massívt jólastressleysi (sem er víst í tísku) sem fólst í því að maturinn var pantaður frá Fylgifiskum. Gasalega sniðugt. Pakkaleikurinn var meiriháttar og spilið "Kasta gris" kom óvænt og gríðarlega sterkt inn. Lofar góður fyrir komandi Svíþjóðarflutninga. Fyrirfram mundi maður halda að það væri ekkert spes stuð að kasta tveimur plastsvínum til skiptis og sjá hvort þau lenda á rófuni eða trýninu eða hvort maður nær hinu eftirsótta "tvöfalda beikoni". En trúið mér. Þetta er svakalegt.
Posted by Picasa

Comments:
Good times. Agalega fínar myndir og sniðugt að skeyta svona saman. Takk fyrir jólakortið og prógramm-kortið sem var æði. Vil samt að þú sendir þetta aftur og hafir myndina af mér þar sem ég er opinmynnt og agalega fín, í enn fleiri eintökum. Takk ;) Helgó
 
Sendu inn athugasemd



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?