sunnudagur, desember 23, 2007

 
 
Nínu Þorbjörgu finnst jólatréð ÆÐISLEGT. Finnst gaman að henda skrauti í það og sjá hvar það lendir. Ég er búin að vera að reyna að kenna henni að "segja aaaa" við jólakúlurnar og strjúka þeim, en hún er ekki alveg að kaupa þetta "aaaa" dæmi. Sem hefur leitt til splundrunar á 2 stk. af jólakúlum s.l. klukkustund. Hef reynt að koma henni í skilning um að það sé alvarlegt mál og sorglegt þegar jólaskraut splundrast. Hún hlær hins vegar bara að mér og segir "drasl og rusl" þegar brotunum er hent.
Posted by Picasa

Comments: Sendu inn athugasemd



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?