fimmtudagur, desember 13, 2007

 

Susie segir frá


Ferðahornið:
Skrapp til Boston um helgina til að kanna aðstöðu Ólafar þar í borg. Þetta var algjör dekurferð, a.m.k. er langt síðan að ég hef borðað svona mergjaðan mat. Hver getur annars annað en slefað yfir gæsalifur, hráskinku, kræklingi og sushi. Já, og svo var pizzan líka æðisleg. Að sjálfsögðu. Ég er enn smjattandi. Mæli með Butcher Shop, Oishii og Sonsie, ef einhver er á leiðinni til Boston (þessar hugmyndir koma beint frá bostóníaninum Ólöfu).
Ólöf býr annars í frekar athyglisverðu hverfi, Roxbury, þar sem ekki er hægt að svipast um eftir leigubíl án þess að vingjarnlegir vegfarendur stoppi til að vara mann við: „ekki líta út eins og þið séuð týndar“, „ekki tala við ókunnuga“ (eins og þessa ákveðnu vegfarendur kannski?), „ ekki brosa“, „þetta er ekki fyndið“. Manni var nú ekkert alveg sama. Fórum í bíltúr um hverfið þar sem íbúarnir gengu um hlaðnir gettó gulli og helst með lepp fyrir öðru auganu. Tróðu sér síðan 10 saman inn í risastóra ameríska bensínháka, helst samansetta úr mörgum bútum héðan og þaðan. Ekki annað að gera en að opna topplúguna og hækka tónlistina í botn.
Fórum að sjálfsögðu út að skemmta okkur og í búðir. Gekk undir nafninu Susie á fyrrnefndum stöðum til að forðast fimmfalda „ha“-ið sem kemur á eftir „Steinunn“. Susie þessi er mjög hress týpa og hefur greinilega margt misjafnt í pokahorninu. Lýgur svo augljóslega til nafns að menn geta ekki annað en hlegið að því. Susie keypti annars mest lítið þar sem hún fór í uppreisn vegna fregna um hegðun annarra Íslendinga í sömu borg. Gat einhvern veginn ekki hugsað sér að fylla 3 ferðatöskur með dóti úr einhverju Outlet-i sem hún vissi ekki að hana vantaði. Æfa svo stíft alla leiðina heim í flugvélinni hvernig hún ætlaði að svína á tollurunum („systir mín, sem býr í Bandaríkjunum, gleymdi þessarri fartölvu hjá vinkonu minni“, „ þetta er fartölva kærastans míns, sem ég er nýbyrjuð með, og ég veit ekkert hvar hann keypti hana“, „látiði mig vera, ég eyddi bara 700 dollurum og það MÁ“). Miðað við verðlagið hérna heima hef ég þó fulla samúð með þeim sem reyna að fá sem mest fyrir peningana sína.
Peningahornið:
1) Keypti jólakort fyrir 5000 kr. á netinu. Borgaði 2250 kr. Í skatta og gjöld af þessu dótarí. Innifalið í því er gjald sem tollurinn tók fyrir að láta mig gera tollskýrslu þar sem það „vantaði“ upplýsingar um verð og innihald sendingarinnar. Þegar ég fékk hana í hendurnar stóð skýrum stöfum á kassanum „Cards“ og „49 Euros“. Svoldið spes.
2) Fyllti á bílinn fyrir litlar 8000 kr. Mundi ganga allra minna ferða ef það væri ekki enn þá sprungið á kerrunni hennar Nínu. Úps.
3) Er bitur.
Jólahornið:
Nína Þorbjörg er farin að þekkja jólakúlur og jólatré, auk jólageitanna. Hún kann að syngja Jólasveinar einn og átta og Ég sá mömmu kyssa jólasvein (svo fátt eitt sé nefnt). Hún fékk í skóinn í fyrsta sinn í dag og það féll í afar góðan jarðveg, enda vissi Stekkjastaur alveg hvað hana langaði í. Loðið bleikt armband með silfurborðum...en ekki hvað?
Ég tók nýtt áhlaup á aðventukransagerðina, þar sem mér ofbauð verðlagning á aðventukrönsum á hinum almenna markaði (sjá nánar í peningahorninu). Fyrsta smíðin var úrskurðuð of eldfim af húsbóndanum (enda gerð aðallega úr hvítum fjöðrum), en smíð númer tvö er bara hið besta mál þótt ég segi sjálf frá. Hrúgað bara fullt af jólakúlum á bakka og smellti með 4 stk. af eplakertum. Værsegod! Afgreitt mál.

Mæli með Baggalúts jóladisknum, þótt hann sé frá því í fyrra....

Ég sakna friðarsúlunnar :-(

Comments:
Skemmtilegt að vanda. Forvitinn lesandi hefði getað hugsað sér að sjá mynd af aðventukransatýpu 1 og 2... svona do´s and dont´s nálgun.
Annars segi ég velkomin aftur heim og við sjáumst nú vonandi eitthvað á meðan við erum "að venta" på julen...
Addý
 
Hey ég notaði sömu hugmynd að aðventukransi. Ögn einfaldari þó.. skellti fjórum eplakertum í kertastjaka sem tekur 4 kerti... voila!!!

Bara mjög flott þó ég segi sjálf frá

kv Dögg
 
SusieQ! Stórkostleg lýsing á Roxbury!

Takk kærlega fyrir komuna, Roxbury er ekki samt við sig eftir að hin dularfulla Susie hvarf á braut...
Þetta var æði - ég mæli með því að vera gerum þetta aftur sem fyrst :)
 
Sendu inn athugasemd



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?