þriðjudagur, ágúst 28, 2007

 

2 ára

 
Við héldum upp á 2 ára afmælið hennar Nínu Þorbjargar á laugardaginn og gekk það bara glimrandi vel. Ákváðum að klára þetta í einni atrennu og buðum fjölskyldunni fyrst og vinunum beint á eftir. Sem var eins gott því í seinna hollinu hefðum við ekki getað troðið einni manneskju í viðbót inn með skóhorni...andrúmsloftið var sveitt og rakinn lak af gluggunum. Hugsunin á bakvið þetta var sú að á þessum árstíma er fólk mikið í burtu og því eru afföll svona 50% (eins og hjá okkur í fyrra). En, þetta reiknilíkan er ekki alveg 100% nákvæmt, þannig að það fór eins og það fór. Að sjálfsöðgu hefði það besta í stöðunni verið að innrétta leikaðstöðu/setsvæði í kjallaranum og nýta þannig alla okkar 100 fm. En, verandi á síðustu stundu eins og alltaf, þá endaði kjallarinn sem allsherjar ruslakista þangað sem öllu lauslegu var hent 5 mín. áður en gestirnir komu. Okkur er nú smá vorkunn, Árni Grímur var að vinna á sólahringsvöktum á föstudeginum og sunnudeginum og ég að reyna að baka og þrífa þegar Nína var sofnuð.
Þrátt fyrir allan þennan hamagang og troðning vorum við fjölskyldan mjög hress með daginn og þakklát fyrir allar flottu gjafirnar og hjálpina. Nína Þorbjörg hefur eignast a.m.k. 1-2 nýja rúmmetra af dóti og er hægt og rólega að læra á því tökin. Fékk m.a. dúkkur og dúkkuvagn, sem hún keyrir stolt með um íbúðina (eftir að hún hefur fjarlægt dúkkur, sæng og kodda og dýnu úr vagninum og hent á gólfið). Held að hún hafi annars klárlega umbreyst í vitrara og þroskaðra barn á afmælisdaginn. Er að verða algjör snyrtipinni, vill bara vera í pilsi og láta skreyta sig með kórónum og perlufestum. Geymir síðan skartgripina sína í ballerínuskartgripaskríni, þannig að veröldin hefur aldrei verið bleikari á þessu heimili.
Posted by Picasa

 
 
Strákar að tala um strákahluti í sófanum. Undarlegt hvernig kynin aðskiljast alltaf á einhvern dularfullan hátt yfir í sitt hvort hornið.
Posted by Picasa

 
 
Iðunn, Nína Þorbjörg og Ísabella. Erfitt að sjá hver er mömmulegust. Gestgjafi nr. 2 (Árni Grímur) er vel með á nótunum, yst í hægra horninu.
Posted by Picasa

 
 
Hlaðborðið farið að láta verulega á sjá, enda liðið langt á afmælisveislu nr. 2.
Posted by Picasa

 
 
Anna Dagbjört, næstyngsti afmælisgesturinn, var hin værasta.
Posted by Picasa

 
 
Tveggja ára drottningin gæðir sér á snuði sem dúkkan hennar á. Ekki alveg búin að ná þessari umönnunarpælingu.
Posted by Picasa

 
 
Þorgeir og Sjonni eru búnir að vera allt of lengi í sumarfríi. Eyjólfur Logi var 700% sinnum lagnari við að huga að dúkkunum og gefa þeim að drekka en Frk. Nína Fix. Mikill fagmaður og sérlega fær í torfærubarnavagnaakstri (þar sem keyrt er yfir dúkkur, en ekki með dúkkur).
Posted by Picasa

 
 
Familían Gísli, Hildur Vaka og Edda.
Posted by Picasa

 
 
5% af Gesti Þorgeirssyni, Helga og Vala.
Posted by Picasa

 
 
Sumir þurftu að sitja í draslinu í eldhúsinu. Þ.e. gestgjafi 1 (ég), Nökkvi, Pálmi, Mæja, Hólmfríður (og Ágústa María og Beta sem ekki náðust á mynd). Alls ekki versta fólkið sem lenti í þessum ósköpum.
Posted by Picasa

mánudagur, ágúst 20, 2007

 

Neðanjarðar


Er enn og aftur á næturvöktum. Skríð úr rúminu við sólsetur og upp í við sólarupprás (eða svona nokkurn veginn, er aðeins of norðarlega til þess að þetta sé áhrifamikið eins og er). Það hefur verið mikið að gera á vöktunum, auk þess sem ég er að undirbúa tímamótafyrirlestur um brjóstverk og að reyna að spekúlera eitthvað í afmælinu hennar Nínu Þorbjargar næsta fimmtudag. Langar helst til að vera með eitthvað svæsið þema, þannig að fólk stígi inn í aðra veröld þegar það kemur inn fyrir dyrnar. Veröld Hello Kitty. Við fjölskyldan verðum í búningum (stóra, meðalstóra og litla kisa) og allar veitingarnar og skreytingarnar segja "mjá". Verð að klára næturvaktirnar á afmælisdaginn þannig að ég býst við að eitthvað svona neðanjarðarþema væri meira viðeigandi. Allir gráir og guggnir og við pöntum pizzu. Kannski maður bíði bara með þetta þangað til um helgina og reyni að gera sitt besta.
Það er a.ö.l. í fréttum að Árni Grímur þreytti frumraun sína sem Klezmer-tónlistarmaður á Þorlákshöfn um daginn. Listahátið Þorlákshafnar 2007 verður lengi í minnum höfð fyrir vikið. Bossanova tríóið Tríó Briggs hefur breyst í Kóróna Kvintettinn og tætir í gegnum hvern Klezmer slagarann á fætur öðrum. Mana þá að setja tóndæmi hingað inn á Barnalandið og taka eitthvað úr þeirri stórkostlegu kvikmynd Underground. Síðan myndi ég vilja að þeir eltu mig um á vaktinni með hljóðfæraleik og stuði. Gæti orðið vísir að Menningarnæturvöktum Landspítala Háskólasjúkrahúss (maður kemst hvort eð er aldrei á hina einu sönnu).

sunnudagur, ágúst 05, 2007

 

Héðan og þaðan

Í tilefni af því að maður er byrjaður aftur að vinna varð að koma smá yfirlit yfir aðgerðir í sumarfríinu. Þetta hefur bara verið eitt besta sumarfrí í lengri tíma, sama þótt við höfum haldið okkur í bænum nánast allan tímann. Hef ekki verið úthvíldari síðan Nína Þorbjörg fæddist, alveg búin að hlaða batteríin og tilbúin í hasarinn á Lansanum.

 
 
HÚSDÝRAGARÐURINN
Drifum okkur í húsdýragarðinn í lok sumarfrísins, enda alltaf að reyna að gera eitthvað skemmtilegt fyrir Nínu Þorbjörgu (við misgóðar undirtektir). Nínu Þorbjörgu fannst þetta ekkert ofur áhugavert. Sést hér pota í geit. Fannst það ágætt. Það eina sem virkilega sló í gegn var lestin, sem henni fannst æðislegt að elta á hlaupum, öskrandi. Mjög fyndið fyrir alla í lestinni og almennt upplífgandi.

P.S. Mér fannst selirnir skemmtilegastir.
Posted by Picasa

 
 
MATARBOÐ 1
Höfum verið óvenjulega dugleg við að halda matarboð undanfarið...enda stoltir eigendur s.k. brúðarstells sem verður að nota. Eigum líka sérstakt "stórkjötskurðarbretti með meiru" sem kallar á stórsteikur, lambalæri, kalkúna og annan risamat. Þegar maður á kjöthitamæli er slíkur matur leikur einn. Tökum þetta í nefið. Fáið ykkur kjöthitamæli.
Matarboðið á meðfylgjandi mynd entist í 8 klst. og var mjög viðburðaríkt. Nína Þorbjörg tók leikþátt, Pétur vaskaði upp allt sem við eigum, ég hellti einhverri áfengistegund í sófann og braut glas, Árni Grímur var með play-lista sem var spilaður í gegnum sjónvarpið sem varpaði honum yfir í tölvuna sem varpaði honum aftur í sjónvarpið sem varpaði honum í græjurnar, litli Þorgeirsson var kurteis og Sjonni fór síðastur heim kl. 4.
Posted by Picasa

 
 
MATARBOÐ 2
Tumi skálar.
Posted by Picasa

 
 
MATARBOÐ 3
Áfengið kláraðist.
Posted by Picasa

 
 
GRODDASKAPUR
Þori nú varla að viðurkenna það, en það hefur gengið á ýmsu eftir að Nína Þorbjörg fór að vera með okkur Árna Grími allan daginn í sumarfríinu. Erum greinilega ekki alveg jafn öflug í almennri passasemi og Þórunn dagmamma. Hún hefur náð að fá 3 kúlur á ennið, dottið 4 sinnum úr rólu (síðast í dag), dottið 1 sinni úr klifurkastala (hátt fall...algjörlega hræðilegt), klemmt fingur og tær og farið (að hluta til) úr olnbogalið. Það síðastnefnda átti sér stað í hádegismat hjá læknabekkjarsystrum og var hádramatískt (gerðist meðan menn voru í fullu fjöri í "hott hott á hesti" stemningu). Skilst að þetta sé mjög algengt hjá litlum krökkum og Sigurður afi var ekki lengi að smella henni í liðinn. Mæli með að fólk passi að toga ekki í litla handleggi ef það kemst hjá því....þetta var nefnilega verulega óskemmtilegt.
Posted by Picasa

 
 
LASER-AÐGERÐIN
Á bókaðan tíma í laser aðgerð á augum í lok ágúst og GET EKKI BEÐIÐ. Skv. mínum heimildum tekst yfirleitt að losa fólk algjörlega við gleraugu með svona aðgerð (auk þess sem maður fær róandi lyf í aðgerðinni og hefur þess vegna afsökun til að sofa afganginn af deginum....sem er best). Núna þegar þetta er allt ákveðið þá er ég svoleiðis búin að missa þolinmæðina fyrir þessum gleraugum, nenni ekki að vera með þau í sekúndu í viðbót. Það verður munur að hafa ekki Nínu Þorbjörgu rífandi þau af mér, eða smellandi á þau fingra- og nefförum í tíma og ótíma. Hvað þá að vakna alsjáandi á morgnanna, sjá sápuna í sturtu og rata heim til sín í rigningu. Mögnuð spenna.
Posted by Picasa

 
 
ÚTSÖLUR
Hef bara keypt á Nínu Þorbjörgu á þessum útsölum, aðallega vegna þess að þá þarf ekkert að máta og maður getur leyft sér að kaupa föt sem eru með klikkuðum mynstrum og í skerandi litum. Vildi óska þess að það fengist meira svona á fullorðna...þótt ég sé nú reyndar ekki viss um að ég myndi nýta mér það mikið þar sem mér finnst ég þurfa að vera svo settleg, sérstaklega í vinnunni. Það þýðir ekki að framkalla ógleði og svima hjá sjúklingunum bara með því að vinda sér aðeins of hratt inn um dyrnar. Hér sést Nína, á bílnum að sjálfsögðu, í mjög töff útsölusamfellu.
Posted by Picasa

This page is powered by Blogger. Isn't yours?