mánudagur, febrúar 11, 2008

 

Þetta helst...


Ætla að byrja á því að taka það fram að jólabloggið átti ekki að vera svona endasleppt. Það bara hætti að virka. Kem kannski með afganginn af jólamyndunum einhvern tímann í vor.
Annars er svo margt búið að gerast frá 9. janúar að ég veit ekki hvar ég á að byrja. Setti sér færslu um nýju "tölvuna" mína (sem er víst MacBook en ekki iBook og mér er alveg sama) og um kaup á Flugskeytagötunni.
Nína Þorbjörg er líka búin að vera mjög upptekin, enda gulir-rauðir-grænir og bláir dagar í leikskólanum. Ég er búin að standa mig nokkuð vel í þessari litastemningu, eða þangað til að leikskólastarfsfólkið ákvað að hafa rauðan dag OG lopapeysudag sama daginn. Þá náðu þau mér alveg.
Annars er Nína hin hressasta á leikskólanum og bara almennt. Er búin að læra nöfnin á öllum prinsessunum (Öskubusku, Þyrnirós, Jasmín, Mjallhvít, Fríðu og Hafmeyjunni) og þekkir þær í sundur...enda sérfræðingur í hári og förðun. Hún er líka áfram hin músíkalskasta og vill helst mjög taktfasta danstónlist eða klassík. Svo samdi hún sitt fyrsta lag í gær, en það hljómar einhvern veginn svona:
"Uppi á grænum hól"
fnæs fnæs fnæs fnæs
"Kasta snjóbolta"
fnæs fnæs fnæs fnæs
fnæs (fnæst í gegnum nef)
Svo er hún búin að koma sér upp gallharðri kvöldrútínu sem felst í að það á alltaf að syngja sömu lögin fyrir hana í sömu röð:
1. Dansi dansi dúkkan mín
2. Dúkkan hennar Dóru
3. Gulur, rauður, grænn og blár
4. Allir krakkar
5. Bí bí og blaka
6. Hókí pókí (mjög vel valinn endir)
Svo kunna sumir að spyrja sig af hverju þetta fína danska hótel fylgir færslunni... Ástæðan er sú að við skruppum í eina nótt til Kaupmannahafnar, þ.e. ég og mamma, Erna kærastan hans Jens, mamma hennar og systur. Tilefnið var brúðarkjólaleit handa Ernu, sem heppnaðist svakalega vel. Gistum á d´Angleterre á Kongens Nytorv (sbr. umrædda mynd), enda í íslenskri eigu og um að gera að nýta sér það. Mæli með að fara í eina nótt til útlanda, virkilega fín upplyfting! Náðum að fara út að borða nógu oft til að vera alveg komnar með nóg, komumst í H&M, sáum Dani á skautum og lífverði í skrúðgöngu. Fullkomið.

Comments:
Mér finnst d´Angleterre minna mjög á Hótel Borg! Aldrei tekið eftir því áður.

Annars segi ég bara gott hjá ykkur, ein nótt í útlöndum hljómar svakavel :) -kannski ég ætti að skella mér til Íslands eins og eitt laugardagskvöld, góð hugmynd!
 
Er hrifin af þessari textagerð frumburðarins ykkar... Sérstaklega fnæs-fnæs partinum!
kv.Addý
 
Sendu inn athugasemd



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?