Frábær íbúð til leigu á íbúðarhótelinu
La Rotonda.
Fjörtíu
mínútna akstur frá flugvellinum í
Alicante.
Íbúðin
er á efstu hæð íbúðarhótelsins La Rotonda sem er ca. 20 km
sunnan við Torrevieja. Íbúðin er nýleg, snyrtileg og vel
staðsett. Yfir íbúðinni eru 70 m2 svalir en íbúðin sjálf er
60 m2. Íbúðin er með 2 svefnherbergjum, stofu með
eldhúskrók, baði með sturtu og baðkari. Í eldhúsinu er
þvottavél og borðbúnaður fyrir 6 ásamt örbylgjuofni.
Svefnpláss er fyrir 4 í herbergjunum og fyrir 2 börn í
svefnsófa í stofu, barnaferðarúm er í íbúðinni.
Rúmfatnaður, sængur og koddar fyrir sex, ásamt handklæðum
og viskustykkjum fylgja. Loftkæling er í öllum herbergjum
og peningaskápur í stærra svefnherbergi. Á svölum eru
sólstólar og sólbekkir.
Í hótelgarði er sundlaug og á neðstu hæð er lítill bar
ásamt matsölustað þar sem hægt er að fá léttan mat og aðra
hressingu við sundlaugina. Á neðstu hæð er einnig bakarí,
kaffihús, lítil búð sem opin er allan sólarhringinn, bar og
matsölustaður. Handan við hornið eru fjölmargir
veitingastaðir og nokkrar minni búðir. Um 5 mínútna gangur
er á góða sandströnd þar sem hægt er að leigja sólbekki,
kaupa sér hressingu og snæða á góðum veitingastað.
Næsti flugvöllur er í Murcia sem er um 20 mínútna keyrsla
og þaðan eru flug t.d. frá Englandi og Danmörku.
Flugvöllurinn í Alicante er í um 40 mínútna fjarlægð. Hægt
er að benda á trausta aðila sem sækja leigjendur út á
flugvöll og keyra í styttri ferðir.
Íbúðinni fylgir bílastæði í lokuðum bílakjallara
hótelsins.