26. mars 2009 - Eðalsteinarnir eru eins árs í dag. Við óskum þeim Quartz, Zircon, Topaz og Lapis innilega til hamingju með daginn. Á myndunum hér að neðan eru þau sex vikna.
25. janúar 2009 - Gleðileg jól og Gleðilegt nýtt ár ;-)

Hvolpar ársins 2008 litlu dagsins ljós þann 1.des, og verða því tilbúnir til afhendingar fljótlega.
Þeir eru undan þeim Arí og Exigor's Whisper In Red. Fleiri upplýsingar á síðunni minpin.bloggar.is
Hér eru loksins myndir af síðustu sýningu HRFÍ
Sunnudaginn 14 des. hittumst við uppí sólheimakorti til að heiðra stigahæstu hunda deildarinnar fyrir árið 2008.
Svona var sætaröðunin
1. St. Bernhardshundurinn Bernegardens Prinse of Thieves
2. St. Bernhardstíkin Fairhope van´t Hof ter Quinni
3. Min. Pinscher Exigors Whisper in Red
Þrír hvolpar voru líka heiðrari og voru það hvolparnir
• Min. Pinscherinn Rökkur Red Topaz
• Shar Pei-inn Brekkukort My Myself and I
• Santi-Ice Dancing Star Elita
Skráning á Alþjóðleg hundasýning 28 feb. til 1 mars 2009 er hafin. Skráningarfrestur rennur út 30 janúar nk.
Sýningarþjálfun PMFdeildar verður auglýst síðar.
Við erum líka að leita að fólki sem hefur áhuga á að vera á kynningarbás deildarinnar. Áhugasamir endilega sendið e-mail á pmfdeild@pmfdeild.net eða tengilið ykkar tegundar.
kv. Stjórn
Kynnið ykkur breyttar sýningarreglur HRFÍ á síðu PMF deildar
Minni á sýningaþjálfun á vegum PMF deildar, alla fimmtudaga, klukkan 21.00, fram að næstu sýningu.
Allir hundar velkomnir
28. september 2008 - Á HRFÍ sýningunni núna um
helgina eignuðumst
við enn einn íslenska meistarann, hann Whisper okkar! Hann varð besti hundur tegundar (BHT1) og annar besti hundur í grúppu 2! Einnig fékk hann sitt annað CACIB og síðasta CAC og varð
því íslenskur meistari. Eins og við mátti búast er Annette ræktandi hæst ánægð.
Rökkur Red Rubin gerði sér lítið til og vann tíkurnar og varð svo BHT2
Rökkur Black Onyx (Dimma limm) varð 3. besta tík og Rökkur Black Safír 4.
Rökkur Red Topaz varð besti hvolpur tegundar.
Rökkur Black Quartz varð annar besti hvolpur tegundar.
Litli Topazinn okkar keppti svo um besta hvolp sýningar á laugardeginum og vann!
Við tókum líka þátt í afkvæmaflokk með Whisper, Safír, Rúbín og Onyx og unnum hann (!!) svo við vorum með besta afkvæmaflokk sýningar á laugardeginum!
Þetta var því alveg ótrúlega góður dagur fyrir okkar hunda sem og okkar ræktun :)
Við óskum eigendum Rökkur hvolpa innilega til hamingju með daginn! :) sem og öðrum hundaeigendum.
Bás PMFdeildar stóð fyrir sínu og var rosalega flottur og "mannaður" af flottum hundum og eigendum. Rökkur hvolpar létu ekki sitt eftir liggja, Agat, Opal, Onyx og Topaz mættu saman svo það var mini-pinscher fjör í dag.
Að lokum þökkum við kærlega fyrir alla hjálpina :)
14. september 2008 - Garðheima-smáhundasýningin í fullum gangi.
Í gær voru það Prins, Exigor's Whisper, Rökkur Black Safír, Rökkur Black Onyx og Rökkur Red Topaz sem mættu. Öll voru þau svo flott!
Mjög gaman fyrir okkur að hafa litlu Rökkur skottin og eigendur með :)
Í dag voru það Prinsinn, Exigor's Whisper, Tjiculingur, Rökkur Red Rubin, Rökkur Black Agat, Rökkur Black Onyx og Rökkur Red Topaz sem mættu. Tekin var hópmynd sem verður skellt
inná síðuna von bráðar :-)
Mjóhundasýningin verður næstu helgi laugardaginn 21.sept í Gust Kópavogi. Mæli með að kíkja á hana. Þessi sýning verður með Opinn
dóm en þá geta allir heyrt hvað dómarinn segir um hvern og einn.
Alþjóðlega sýning HRFÍ verður svo helgina þar á eftir eða 27-28.sept og eru 13 miniature pinscher-ar
skráðir til leiks! fjölgar hægt og bítandi...
Agnes Kertes Ganami mun vera dómarinn okkar að þessu sinni og mun hún samkvæmt áætlun dæma minipin frá klukkan 13:20 - 14:12
Gott er að mæta a.m.k. 40 mínútum fyrr og leyfa hundinum að venjast aðeins "ástandinu" þarna inni. Þeir yngstu geta orðið þreyttir fljótlega svo kannski er betra
að mæta aðeins seinna með þá. Fólk getur bara metið það útfrá hundinum sínum. Muna eftir sýningataum, nammi/tístu, kúkapoka og góða skapinu!
PMF deild verður með
bás á sýningunni og munu nokkrir af Rökkur hvolpum kíkja þar við á sunnudeginum.
Rökkur hvolpar hittust um daginn, ásamt eigendum sínum, til að fagna 1 árs afmæli þeirra systra
Myndirnar tala sínu máli :)

Fyrirhugaður er almennur Miniature Pinscher hittingur eftir HRFÍ sýningu á laugardegi, kannski í kringum 16.00 svo allir geta fengið smá hvíld. Ákveðið betur síðar.
18. ágúst 2008 - Þær
eiga afmæli í daaaag, þær eiga afmæli í daaaag, þær eiga afmæli þær Agat, Rúbín, Opal, Safír og Onyx, þær eru 1 árs í daag!!!
Tíminn hefur liðið ofboðslega hratt og þið braggast svo vel :) Við óskum ykkur og ykkar yndislegu fjölskyldum innilega til hamingju með daginn!
Ganga verður haldin næstu helgi ykkur til heiðurs og hlökkum við til að sjá alla. Knús frá okkur öllum!
16. ágúst 2008 - Grill var haldið í dag í Sólheimkoti af Pinscher, Mastiff- og fjallahundadeild. Mætingin var vonum framar og veðrið mjög fínt svo hundar og menn gátu spjallað og skemmt sér. Flott mæting var hjá Rökkur hvolpum og þökkum við kærlega fyrir daginn :)
Við viljum minna á sýningaþjálfunina í september á vegum Pinscher, Mastiff- og fjallahundadeildar ásamt Schnauzerdeild, Fuglahundadeild og Shih tzu deild. Hún verður í Reiðhöll Gusts alla fimmtudaga í september frá 20-21.00. Muna eftir sýningataum, nammi og skítapoka.
Garðheimar verða með smáhundasýningu dagana 13. og 14 september frá klukkan 12-17. Miniature Pinscher verður þarna að sjálfsögðu og hlökkum við til að hitta hvolpana okkar en þeir ætla að sýna sig og sjá aðra, fín æfing fyrir lítinn Rökkur hvolp. Ef fleiri mini pinscher hundar vilja vera með er þeim velkomið að tilkynna það til mín og við finnum tíma fyrir þá.
Þetta er ekki búið enn... Sýning á vegum mjóhundadeildar verður laugardaginn 20. september, og er okkur boðið að vera með! Stjórn og sýningarnefnd mjóhundadeildarinnar sér um skráningu. Best er að ná í þá á netfangið mjohundar@gmail.com . Nánar HÉR! Nokkrir Rökkur hvolpar hafa tilkynnt þátttöku og hlökkum við mikið til að fylgjast með þessum fallegu hvolpum :) Þetta er fín æfing fyrir stóru sýninguna helgina þar á eftir og á kannski eftir að hafa eitthvað að segja ;)
Svo er það bara alþjóðlega sýningin í enda september, dagana 27.-28. september. Hlökkum til að sjá ykkur!
6. júlí 2008 - Nú eru allir hvolparnir farnir á sín framtíðarheimili og una vel við. Við höfðum ofboðslega gaman af því að hafa þá hér fyrstu vikurnar þeirra. Við óskum nýjum eigendum góðs gengis og til hamingju með nýju hvolpana sína og vonumst til að hitta þá sem oftast.
15. júní 2008 - Ný deild fyrir Pinscher, Mastiff og fjallahunda innan HRFÍ stofnuð í dag. Einnig var opnuð ný heimasíða fyrir deildina: pmfdeild.net
14. maí 2008 - Nú eru þeir sjö vikna og styttist í að þeir fari að fljúga úr hreiðrinu. Tveir eru enn ólofaðir og óska eftir góðu heimili.
23. apríl 2008 - Ákveðin hafa verið nöfnin; Black Lapis, Black Quartz, Black Zircon og Red Topaz. Að sjálfsögðu bera svo allir Rökkur ræktunarnafnið.
9. apríl 2008 - Hvolparnir orðnir tveggja vikna. Þeir stækka mikið og dafna og öllum heilsast rosalega vel.
26. mars 2008 - Fjórir hvolpar voru að bætast við á heimilið. Ein tík og þrír rakkar, þar af einn rauður. Nánari upplýsingar og myndir á næstunni.
23. janúar 2008 - Jæja, nú líður að mars-sýningu og vonumst við innilega til að sjá alla Rökkur-eðalsteinana "okkar" í hring.
Nokkrir hafa beðið mig um að sýna hvolpana sína en það er ekki alveg í boði þar sem ég get ekki sýnt alla í einu. Því þýðir ekkert annað en að skella sér út í djúpu
laugina og prófa þetta sjálf. Þetta er mjög skemmtilegt og bara gott að losna við "prófskrekkinn". Fyrir utan þá staðreynd að hundurinn ykkar sýnir sig langbest
hjá ykkur þá eru hvolpar bara hvolpar og mega haga sér eins og hvolpar inní hring :)
Ég mun hjálpa ykkur eins vel og ég get svo þetta er ekkert mál.
Það sem þið þurfið er sýningataumur, getið t.d. fengið hann á comfort.is en þeir eru einnig seldir á hvuttar.is
Mjög flottir og góðir sýningataumar, til sem fléttu- og satín taumar en einnig er hægt að nota snákakeðju/taum. Kíkið endilega á síðuna þeirra, margt í boði.
Ath myndir voru fengnar að láni með góðfúslegu leyfi.
ps. mæli með cognac fléttutaum fyrir Rúbín, hann samsvarar hennar lit og svo að sjálfsögðu svörtum taum fyrir hinar, þá annaðhvort fléttu eða satín.
Reynum að stefna á smá sýningaþjálfun fyrir hvolpana og kannski fleiri mini pin í byrjun febrúar, staður og dagsetning(-ar) ákveðið seinna í samráði við ykkur.
ATH. skráningarfrestur rennur út 1.febrúar (!) svo skrá sem fyrst ef þið eruð þá ekki þegar búin að því.
13. janúar 2008 - Rökkur Black Safír, Tjicu og Whisper's dóttir, kíkti í heimsókn til okkar um daginn ásamt eigendum. Mikið flott og hress stelpan, við erum endalaust stolt af ömmubarninu! Algjör gormalingur eins og foreldrar sínir :)
Litlu eðalsteinarnir okkar eru að byrja á hvolpanámskeiði HRFÍ næstkomandi mánudag og verður gaman að fylgjast með þeim. Þær munu pottþétt verða hver annarri betri/hlýðnari/duglegri ;)
Gangan síðast heppnaðist ágætlega og viljum við sjá enn fleiri í þetta skiptið. Höfum því góðan fyrirvara og stefnum á göngu fyrsta sunnudag í febrúar.
Hittumst við Maríuhella kl.13:00 og höldum svo sem leið liggur að litlu túni. Ef veður er slæmt, t.d. rigning eða mikið rok, hefur Sólveig, "mamma" Opals, boðið
okkur að koma til sín en hún og hennar fjölskylda ásamt Opal að sjálfsögðu, á þessa fínu hnefaleikastöð, Hnefaleikafélagið Æsir Viðarhöfði 2, Reykjavík
Hlökkum til að sjá alla!
4. janúar 2008 - 1 stigs hiti og þurrt á morgun. Hittumst við Maríuhella í Heiðmörk klukkan 13.00
Haldið þaðan á tún þar sem sprengjurnar geta skoppast um. Vinsamlegast tilkynnið forföll.
24. desember 2007
Óskum öllum tví-og ferfætlingum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári!
Stefnum á Rökkur göngu þann 29. desember. Hittumst við Maríuhella í Heiðmörk kl. 13:00 og keyrum sem leið liggur að öruggu svæði fyrir hundana til að hlaupa
um og leika sér.
Þó nafnið gefi til kynna að einungis hvolpum frá okkur sé boðið þá væri enn
skemmtilegra að fleiri af sömu tegund kæmu líka, bæði
miniature- pinscher og schnauzer.
Hlökkum til að sjá ykkur!
26. nóvember 2007 - Rökkur Black Safír kom í heimsókn um helgina ásamt eigendum sínum. Það var æðislega skemmtilegt að sjá eina af stelpunum
"okkar", svona líka káta og duglega. Hún reyndi mikið að leika við mömmu sína sem var dugleg að segja henni að róa sig en gafst upp á endanum og tók undir leikinn.
Það er ekki hægt að aga svona lítið minpin skott... :)
Tókum myndir af skvísunni ásamt mömmu sinni sem má sjá hér
Stefnum á Rökkur göngu um miðjan des, minnum á hana þegar nær dregur.
Okkur langar til að benda á að Schnauzerdeild mun halda sýningu um miðjan janúar og er skráning hafin á vef HRFÍ. sjá nánar hér
17. nóvember 2007 - Nú eru hvolparnir okkar orðnir þriggja mánaða!
Við höfum fengið fregnir af þeim og gengur öllum skvísunum rosalega vel. Myndir af þrem þeirra, þeim Opal, Safír og Onyx eru komnar undir Pinscher-got.
Agat er alltaf hin rólegasta og voðalega dugleg . Hún er yfirleitt kölluð því stóra nafni Rökkur Oncenita Agat, ekkert er of gott fyrir prinsessuna :)
Rúbín fellur vel inní sinn hundahóp og hefur það mjög gott, hefur svaka garð til að leika við vini sína og hefur sitt eigið "bæli" í hálsakoti mömmu sinnar :)
Opal hefur gert sér lítið fyrir og er komin inní boxerhringinn og farin að slá alla út! og komin með þessa líka fínu heimasíðu opal.dyraland.is :)
Safír er víst bara dugleg í öllu því sem hún á að gera og er alltaf sami orkuboltinn. Þessi litla bjútíkvíni er líklega enn langvirkust af þeim systrum, enda copy paste af mömmu sinni Tjicu :)
Onyx hefur tekið sér nýtt nafn og heitir nú Dimmalimm, hún er bara litla krúttið og dekurdýrið á heimilinu, kemur ekki á óvart, voðalega auðvelt að dekra yngsta systkinið :)
Við erum í skýjunum yfir öllum fjölskyldum þeirra og hlökkum mikið til að fá að sjá allar aftur. Systkinahittingur/ganga verður fljótlega.
Knús til allra!
17. október 2007 - og þá voru eftir þrír...
Nú í augnablikinu eru aðeins þrír eðalsteinar eftir, þær Rúbín, Safír og Onyx.
Hinar tvær, Agat og Opal, eru að kynnast sínum nýju heimilum og gengur það mjög vel að sögn nýbakaðra "foreldra" :)
Vinkona okkar og ljósmyndari, Margrét Inga, lenti í aukavinnu og hefur ekkert komist frá, við redduðum því með hinni "frábæru" myndavél okkar og tókum nokkrar myndir, sumar betri en aðrar. Aðalmálið er þó að það eru komnar myndir af fallegum Rökkur hvolpum.
12. október 2007 - Tíminn fljótur að líða, litlu gormarnir okkar eru að skríða í 8 vikna aldurinn. Fóru til dýra í gær þar sem þær voru
bólusettar og örmerktar, stóðu sig allar mjög vel. Eðalsteinarnir kíktu út loks þegar hætti að rigna og skemmtu sér vel enda ekki í fyrsta skipti
sem þær fara út til að leika þó stutt sé. Bíltúrarnir hafa gengið ágætlega enda eru systurnar sterkar saman. Þær eru orðnar mjög duglegar að
borða þurrfóðrið sitt og drekka sjálfar, finnst samt voðalega notalegt að leita til mömmu eftir smá sopa af og til.
Gyðju Tjica og Dimma standa sig vel í að annast hvolpana enda þarf tvo til með svona gormalinga :)
Góðvinkona okkar hún Margrét ætlar að kíkja í heimsókn á morgun og smella nokkrum fallegum myndum af krílunum okkar eins og henni einni er lagið.
8. október 2007 - Báðir hundarnir okkar fengu fyrstu einkunn á hundasýningu HRFÍ nú um helgina. Whisper fékk frábæra umsögn en þurfti að láta sér nægja annað sætið. Rökkur One And Only var sýnd núna í fyrsta skiptið og fékk frábæra umsögn í hvolpaflokki ásamt heiðursverðlaunum.
30. september 2007 - Hvolparnir 6 vikna í gær og nú er fjörið byrjað fyrir alvöru. Búnir að fara út í annað skipti í dag og fara í bíltúr á morgun. Nýjar myndir komnar inn hér
22. september 2007 - 5 vikna. Yndislegu eðalsteinarnir okkar dafna enn og stækka, farnar að borða grautinn sinn og svo hlaupa þær hérna
út um allt að skoða "heiminn".
Heimurinn stækkaði enn meira þegar við nýttum góðviðrið í gær og þær fengu að kíkja aðeins út í garð, þær ætluðu nú ekki að
þora úr bælinu sínu en skelltu sér á endanum og fannst alveg ótrúlega gaman, grasið ekkert smá spennandi og skemmtilegt.
Umhverfisþjálfun hefur sem sé verið alveg á fullu síðustu vikur og höfum við haft allt til taks til að gera hana sem mesta og besta fyrir krílin,
þær kippa sér lítið upp við hávaðann sem kemur frá hinum ýmsu hliðum tilverunnar... má þar nefna ryksugu og tónlist en þá helst hana Viktoríu Sif
dóttur okkar sem er nokkuð dugleg að skapa skemmtilegt andrúmsloft hér á bæ.
Gestagangur hefur ábyggilega sjaldan verið meiri en nú en hundarnir taka bara vel í það og bjóða alla velkomna enda skemmtilegt fólk á ferð.
Við skellum inn nokkrum myndum frá 4ra vikna og fram að 5 vikna aldri en við höfum fengið myndir héðan og þaðan þar sem myndavélin okkar skemmdist
og þykir okkur miður að hafa ekki getað sett þær fyrr inn.
20. september 2007 - Nú fer að líða að alþjóðlegri sýningu HRFÍ sem verður haldin í byrjun október, Whisper og Dimma mæta kát til leiks og ætlum við að hafa gaman af, hlökkum til að sjá sem flesta þar.
17. september 2007 - Við fengum óvænta sendingu um daginn frá henni Annette, ræktanda okkar í Svíþjóð, en hún(ásamt pinscher klúbbnum í Svíþjóð) sendi Whisper einn farandbikar og einn eignarbikar ásamt rósettu fyrir að hafa verið besti pinscher hvolpur ársins 2006 í Svíþjóð.
15. september 2007 - Whisper var á smáhundasýningu í Garðheimum í dag og vakti mikla lukku. Hvolpum líður öllum vel, stækka og þyngjast stöðugt. Myndum verður skellt inn á næstunni.
11. september 2007 - Síðastliðinn laugardag urðu eðalsteinarnir þriggja vikna gamlir. Margrét góðvinkona leit við með myndavélina sína og náði myndum af dömunum. Sjá hér
3. september 2007 - Litlu hvolparnir okkar urðu 2ja vikna síðastliðinn laugardag. Voru þá tíu lítil augu búin að opnast svo loks sjá þær hvar næsti speni er og eftir það hvar systrahópurinn er til að kúra hjá. Tjica er að sjálfsögðu afbragðsgóð móðir, ef ekki best allra og sér til þess að hvolparnir sínir dafni og þyngist. Nýjar myndir má sjá hér
26. ágúst 2007 - Það dafna allir vel. Hvolparnir eru núna eins vikna og eru duglegir að borða, stækka og sofa.
18. ágúst 2007 - Fimm tíkur fæddust
í nótt. Tjica stóð sig mjög vel og sér vel um hvolpana sína.
Ein fæddist rauð og fjórar black/tan. Nánari upplýsingar hér
16. ágúst 2007 - Fórum með Whisper og Dimmu uppá Esjuna í fyrsta skipti. Dimma var eiginlega alveg orðin þreytt þegar við komum niður en Whisper var alveg til í að halda áfram.
9. ágúst 2007 - Tjica komin tæpar
átta vikur og orðin frekar sver. Áætlað got er enn 19. águst.
24. júlí 2007 - Tjica fór í sónar í dag og 4-5 hvolpar voru sýnilegir
21. júlí 2007 - Meðgangan hjá Tjicu gengur vel. Enn er óvíst með hvolpafjölda en sónar á næstu dögum mun vonandi leiða eitthvað gagnlegt í ljós
24. júní 2007 - Dimma og Whisper voru sýnd í dag með misgóðum árangri.
Dimma gerði sér lítið fyrir og varð besta tík tegundar, hlaut íslenskt meistarastig og varð annar besti hundur tegundar.
Besti hundur tegundar endaði sem fjórði í grúppu sem telst mjög gott.
Whisper fékk frábæran dóm hjá fínum dómara sem kunni kannski ekki alveg á mælistikuna :)
Whisper hefur áður fengið dóm þess efnis að hann væri í góðri stærð og fékk þá CAC en var of ungur til að fá CACIB.
Í dag átti hann að hafa stækkað um heila 6 cm (samkvæmt fyrstu mælingu) síðan á síðustu sýningu... sem ég tel óraunhæft en það þýðir ekki að deila við dómarann.
Hann fékk fyrstu einkunn og fyrsta sæti í sínum flokk ásamt heiðursverðlaunum (HP). Endaði þriðji rakki í opnum flokki.
21. júní 2007 - Fengum þær fregnir að FCI hafi úthlutað okkur RÖKKUR ræktunarnafnið þann 24. maí
Nú munu allir okkar hvolpar bera fornafnið; Rökkur
21. júní 2007 - sýning þann 23-24.júní, schnauzer og pinscher verða á sunnudeginum, schnauzer byrjar kl.9 og pinscher kl.11:44
13. maí 2007 - Dimma fékk fína dóma á sýningunni í dag, endaði í þriðja sæti af þeim tíkum sem voru sýndar. Hún stefnir hinsvegar á enn betri feld og meiri vöðvamassa fyrir næstu sýningu og þá kannski á betra sæti :) París og Líney tóku fyrsta sætið á svífandi brokki sem við Dimma erum að æfa okkur í :) Til hamingju Líney.
1. maí 2007 - Litla Only komin til nýrra eigenda og líkar vel
27. apr 2007 - Tjica, Whisper og Dimma stóðust augnskoðun með sóma.
18. apr 2007 - 7 vikna. Umhverfisþjálfunin alveg komin á fullt. Only fór í göngutúr í góða veðrinu og var bara nokkuð brött, hljóp svolítið á eftir mömmu sinni og Tjicu. Hún er núna orðin ein af hópnum og farin að herma svolítið eftir hinum. Núna er hún búin að fara í sinn fyrsta bíltúr og fannst það lítið mál. Heyrðist ekki píp frá dúllunni sem fór svo bara að sofa. Við höfum byrjað að venja Only við smá snyrtingu með því að skafa feldinn örlítið með þess tilgerðu áhaldi og æfa hana í að standa fína uppá borði.
11. apr 2007 - 6 vikna. Only farin að vera meira úti við. Fer núna út í garð til að skila sínu og hefur einstaka sinnum vælt við dyrnar til að komast út. Ekki þarf lengur að bleyta uppí fóðrinu hennar enda orðin svo stór stelpa. Vinkonurnar (Only og Bishon Frise stelpan Táta) hittast enn af og til og eru byrjaðar að leika svolítið saman. sjá nýja mynd undir schnauzer got.
9. apr 2007 - Litli Whisper orðinn eins árs.
6. apr 2007 - Litla Only er núna orðin rétt rúmlega 5 vikna og mikill karakter.
Einstaklega skemmtileg stelpa, alltaf hress og kát, svo ekki sé minnst á útlitið ;)
Þar sem stelpan er ein í goti og því fylgir mikill þroski að fá að leika við aðra á sínum aldri þá kom hingað lítill Bichon Frise hvolpur í heimsókn, lítið var leikið en þeim mun meira kúrt.
Hún fékk fyrst í dag að kíkja út í garð og fannst það hreint ekkert mál, gerði þarfir sínar þar og lék við Dimmu mömmu sína og Tjicu.
Við erum núna rétt farin að bleyta fóðrið og stappa lítið sem ekkert (þar sem hún sýndi það að hún gæti vel étið þurrfóður mömmu sinnar...) enda er stelpan okkar komin með 8 tennur og fer fjölgandi.
Núna styttist í augnskoðun sem fer fram uppí Sólheimakoti dagana 27-28.apríl
Munu allir hundarnir okkar, Gyðju Tjica, Whisper In Red og Dimma frá Ólafsvöllum fara þann 27.apríl
28. mar 2007 - One And Only orðin
4ra vikna og 1050gr. Ný mynd komin.
Nú er hún orðin það stór að hún er farin að fá graut daglega enda komin með fjórar tennur til að nota.
Er farin að skoða sig örlítið um í húsinu, nokkuð hugrökk og er mikill leikur í skvísunni.
20. mar 2007 - Litli hvolpurinn hennar Dimmu orðinn 3ja vikna í dag og heil 830grömm, engin smá stelpa þar á ferð. Komin með heyrn og farin að horfa í kringum sig. Á næstu dögum verður hvolpakassinn færður inní stofu svo hvolpurinn geti aðeins farið að vappa um og skoða umhverfið. Sjá nýjar myndir undir hlekknum Schnauzer-got
9. mar 2007 - Fréttir bárust frá Svíþjóð að Exigor's Whisper In Red varð valinn besti Pinscher hvolpur ársins 2006.
8. mar 2007 - Gyðju-Tjica þriggja ára í dag.
Litla tíkin okkar orðin rúmlega 440gr.
3. mar 2007 - CACIB sýning var haldin í dag, ISCH Gyðju Tjica fékk heiðursverðlaun, meistaraefni og varð annar besti hundur tegundar.
Exigor's Whisper In Red varð besti hundur tegundar með heiðursverðlaun og CAC. Hefði getað fengið CACIB en er enn of ungur.
28. feb 2007 - Svört tík kom aðfaranótt 28. febrúar. Voðalega falleg og algjörlega dekruð :) Dimmu og dóttur heilsast vel.
7. feb 2007 - Schnauzer hvolpar væntanlegir í byrjun mars undan Dimmu frá Ólafsvöllum og Jackpot In Vegas Rezlark
3. feb 2007 - Mánuður í hundasýningu HRFÍ dagana 3.-4. mars 2007



