Home Page Image

  • Börn:
  • Ásgeir Skarphéðinn
    Brynjar og Eyþór
    Inga Bríet og Kristinn Tjörvi
    Ingveldur Birna Matthíasdóttir
    Kristín Helga og Eyrún
    Magnea & Tumi
    María, Guðrún og Hildur
    Tómas Emil, Aldar og Magnús Þór

  • Vinir:
  • Björn Hjaltason
    Freyr
    Jósi
    Lella
    Nanna
    Siggi Palli
    Sigurgeir
    Svavar Knútur
    Snorri Hergill
    Þóra

     



    1. maí


    1. maí 2012

    Þetta var rólegur dagur í dag. Bjössi fór í garðvinnuna með fólkinu í húsinu á meðan ég hjálpaði Bergi með heimanámið og bakaði. Ingveldur fór síðan í smá heimsókn til Brynju vinkonu sinnar og þær komu síðan hingað yfir í smá stund.
    Ingveldur er orðin nógu stór til að fara út á róló án okkar og þær fóru þangað í smá stund saman vinkonurnar.
    Fyrir kvöldmat fóru síðan Bergur og Ingveldur með mömmu sinni í sund í góða veðrinu.
    Í gær var bekkurinn hans Bergs með kynningu á verkefnum sínum um húsdýrin. Bergur myndskreytti verkefni síns hóps um geitina og tók líka að sér að teikna kú fyrir verkefni bekkjarfélaga sinna. Ég hvet alla til að skoða myndirnar í albúminu. Þetta er mjög flott hjá honum :)


    30. apríl 2012

    Ég var að bæta við slatta af myndum í albúmið. Ef þið komist ekki inn í albúmið, hafið þá endilega samband við Bjössa og hann reddar því.


    28. apríl 2012

    Var að uppfæra þjóninn hér heima, þar á meðal myndagalleríið.
    Einhverjir notendur þurrkuðust út í þessu fikti mínu ;)
    Sendið mér línu á bjorn.gudjonsson@gmail.com ef þið komist ekki inn.

    B.G.


    18. apríl 2012

    Vá, það er mánuður liðinn frá því við skrifuðum síðast á síðuna og mikið búið að gerast.
    Við fórum til Stokkhólms yfir páskana og dvöldum í góðu yfirlæti hjá Guðjóni í nýju íbúðinni. Veturinn ákvað að kveðja almennilega með snjókomu síðasta daginn en það hafði líka snjóað af og til á meðan við vorum úti.
    Krakkarnir hittu líka Ingu frænku sína en nöfnurnar smullu saman frá fyrstu mínútu og urðu strax góðar vinkonur. Enda kvaddi Inga Ingveldi með orðunum ,,bless vinkona" þegar þau fóru frá okkur eftir kaffiboðið hjá Guðjóni. Algjört krútt.
    Núna hlakka krakkarnir mikið til að fá afa í heimsókn í sumar en þá ætlar hann að gista hjá okkur, enda er nóg pláss í nýju íbúðinni. :)
    Sumardagurinn fyrsti er á morgun og krakkarnir eru farnir að sjá sundferðir í hillingum.

    Nýjar myndir í albúminu.


    17. mars 2012

    Heimasíðan hefur ekki verið uppfærð í lengri tíma og mikið gerst í millitíðinni. Við fluttum á laugardaginn var og höfum því verið í akkúrat eina viku í nýju íbúðinni. Við fluttum nú ekki langt - bara yfir götuna - í stærri íbúð. Daginn eftir héldum við smá fjölskyldukaffi í tilefni af afmæli Ingveldar, en við urðum að fresta því um viku vegna þess að afmælisbarnið fékk flensu. Sem betur fer buðust mamma og Þórunn til að leggja til bakkelsi á kaffiborðið, annars hefði þetta orðið ansi fátækleg veisla.
    Á mánudaginn var síðan afmælisboð frökenar Ingveldar fyrir vinkonur hennar af leikskólanum. Þá var farið í stoppidans við lagið Stingum af eftir Mugison. Justin Bieber var síðan spilaður og ástarjátningar tóku við. Fátt er fyndnara en full stofa af fimm ára skottum lýsandi yfir ást sinni á poppstjörnunni.
    Fullt af nýjum myndum í albúminu.


    23. febrúar 2012

    Bergur og vinir hans fóru klæddir eins og uppvakningar að syngja fyrir nammi í Kringlunni á öskudaginn. Ingveldur var að sjálfsögðu klædd eins og prinsessa og skemmti sér á leikskólanum með vinum sínum og síðan fórum við öll í IKEA til að slá köttinn úr tunnunni.
    Fullt af nýjum myndum í albúminu.


    4. febrúar 2012

    Í gær var sólarkaffi á leikskólanum hennar Ingveldar. Allir áttu að koma í gulum fötum í tilefni dagsins og gestum boðið í kaffi klukkan þrjú. Jóakim svaf úti í vagninum megnið af kaffitímanum en fannst ekki leiðinlegt að vakna og láta alla dást að sér. Inga amma lét sig að sjálfsögðu ekki vanta. :)
    Slatti af nýjum myndum í albúminu.


    26. janúar 2012

    Við systurnar fórum með Jóakim og Einar í Kringluna. Upphaflega planið var að fara í Ikea en hríðin var svo mikil að við ákváðum frekar að fara í Kringluna. Ekki kom til greina að hætta við bæjarferð fyrst við vorum nú farnar af stað. Drengirnir voru til mikillar fyrirmyndar í Kringlunni, sváfu vært í bílstólunum á meðan mæður þeirra þræddu útsölurnar.

    Í albúmið eru komnar nokkrar nýjar myndir, t.d. myndir af Bergi eins og hann vill vera á öskudaginn. Hann er ákveðinn í að vera Tinni. :)


    11. janúar 2012

    Einar Ísak, frændi og framtíðarleikfélagi Jóakims, kíkti í heimsókn með mömmu sinni í dag. Smellti af nokkrum myndum og bætti þeim og fleirum í albúmið.


    1. janúar 2012

    Nú er árið 2011 liðið í aldanna skaut og aldrei það kemur tilbaka.
    Við kvöddum gamla árið með stæl og fögnuðum nýju ári með foreldrum mínum, bróður og fjölskyldu hans. Kvöldið var vel heppnað, æðislegur matur og krakkarnir voru sprækir fram til klukkan tvö um nóttina.
    Fullt af nýjum myndum í albúminu.


    28. desember 2011

    Jólin voru notaleg og afslöppuð, eins og sjá má á myndunum í albúminu. Þær segja meira en mörg orð. :)


    26. desember 2011

    Jóakim brosti í fyrsta skipti í kvöld. Hann hefur svosem brosað áður en vegna þess að hann er búinn að vera með í maganum þá gátum við ekki verið viss um að fyrri bros væru tilkomin af einskærri gleði...hehehe. Brosið sem mamma hans fékk í kvöld var hinsvegar einstaklega einlægt og feimnislegt. Hann er algjört krútt þessi drengur. Megi brosin verða sem flest. :)


    17. desember 2011

    Jóakim Árni var skírður í dag heima hjá ömmu sinni og afa í Réttarbakka og boðið til veglegrar veislu á eftir. Jóakim Árni er bara rétt rúmlega þriggja vikna og þessvegna var gestalistinn í styttra lagi eða um þrjátíu manns.
    Við tókum eitthvað af myndum en eigum eftir að bæta inn myndum frá öðrum.


    13. desember 2011

    Þegar ég kom að sækja Berg í skólann í dag spurði hann mig hvort ég gæti ekki bara farið í Kringluna og fundið flott jólaföt fyrir hann. Hann vildi nefnilega frekar fara til Gumma að leika.
    Við Ingveldur fórum því í Kringluna með Herborgu í staðinn og keyptum jólaföt á Berg. Hann vantar núna bara fína skó.


    12. desember 2011

    Við mægður fórum í Smáralind í dag til að finna jólakjól á Ingveldi. Hún er frábær félagi í búðarleiðangra og var til í að máta alla kjólana sem ég vildi sjá hana í. Við vorum síðan sammála um rétta kjólinn og hún var meira en til í smá myndatöku í kjólnum þegar heim var komið.
    Endilega kíkið í albúmið. :)
    Á morgun stefni ég á að fara með Berg í Kringluna að finna á hann jólaföt. Ingveldur er búin að lýsa því yfir að hún vilji koma með. Vonandi næ ég að kaupa síðustu jólagjafirnar í leiðinni.


    8. desember 2011

    Lífið er að komast í rútínu hér á Rauðalæknum. Bergur og Ingveldur hjálpuðu mömmu sinni að baka smákökur í gær og í dag og í kvöld fóru feðgarnir saman í Blómaval að kaupa jólatré.
    Á laugardaginn verður jólaball leikskóla Ingveldar og fyrsta jólaboðið. Gaman að hafa jólaboð á aðventunni.
    Nokkrar myndir komnar í albúmið.


    5. desember 2011

    Nýjar myndir í albúminu frá skólaslitasýningu Ingveldar í ballettskólanum og myndir áf daglegu lífi fjölskyldunnar.


    29. nóvember 2011

    Jóakim fór í fimm daga skoðunina í morgun og fékk toppeinkunn - ekki að spyrja að því. :)
    Hann hefur nú náð aftur fæðingarþyngd og vegur nú 3560 grömm. Hann vex og dafnar vel og systkini hans passa mjög vel upp á hann. Þau eru alveg yndisleg.
    Nýjar myndir í albúminu.


    26. nóvember 2011

    Við erum orðin fimm manna fjölskylda!
    Lítill gullmoli fæddist fimmtudaginn 24. nóvember og hefur þegar fengið nafn. Hann heitir Jóakim Árni Björnsson og dafnar vel. Bergur og Ingveldur eru mjög hrifin af honum og vilja knúsa hann sem mest.
    Myndir í albúminu.


    21. nóvember 2011

    Við fórum upp á spítala á laugardagskvöldið því við héldum að ég væri að fara af stað. Það reyndist ekki rétt en núna vitum við að minnsta kosti hversu langan tíma það tekur okkur að keyra upp á spítala, hvaða leið er best að fara og hvað það tekur foreldra mína langan tíma að komast heim til okkar til að gæta barnanna á meðan. Þetta var því bara ágætis generalprufa þegar upp var staðið.
    Fyrr um daginn fór fram árlegur laufabrauðsútskurður móðurfjölskyldu minnar. Bergur, Ingveldur og frændsystkini þeirra sýndu að þau eru öll mjög efnileg í útskurðinum.
    Ingveldur, Inga og Kristinn spreyttu sig síðan aðeins á því að fletja út kökur með ömmu sinni og systrum hennar.
    Fullt af myndum í albúminu. :)


    18. nóvember 2011

    Ég var að taka eftir því að þó það væru komnar sautján myndir í nóvember albúmið þá átti eftir að birta það á síðunni. Nú er búið að bæta úr því. Endilega kíkið á myndirnar. :)


    14. nóvember 2011

    Tvær vikur í settan dag - en hver er að telja..... hehehehe.

    Framkvæmdir á baðherberginu standa nú sem hæst. Vonandi verður allt klappað og klárt áður en litli snúðurinn mætir til leiks.

    Nokkrar nýjar myndir í albúminu.


    7. nóvember 2011

    Í dag eru þrjár vikur í settan dag. Ég fer í meðgöngusund þrisvar í viku og það hefur alveg bjargað mér. Þetta er nefnilega búin að vera erfiðasta meðgangan. Það er því eins gott að hún verður sú síðasta.
    Ingveldur fór í fyrsta sinn í bíó með vinkonum sínum í gær, en móðir annarar þeirra fylgdi þeim. Hún fékk pening í hliðartösku fyrir miða, poppi og drykk og var ansi ánægð með sig þegar hún var sótt.
    Slatti af myndum í myndaalbúminu. Endilega smellið á last uploads, ég setti nefnilega inn skemmtilega myndasyrpu af Bergi með Ingvari afa sínum.


    4. nóvember 2011

    Það var búningadagur í skólanum hjá Bergi í dag og hann fór sem rokkari sem lent hafði í slagsmálum. Ég tók að sjálfsögðu myndir af garpinum í morgun.
    Ingveldur fór með hatt í leikskólann en þar var sérstakur hattadagur. Auðvitað var smellt af nokkrum myndum af dömunni líka. :)


    31. október 2011

    Baðherbergið okkar er aftur komið í rúst. Bjössi sá að rakinn var greinilega ekki á förum í forstofunni og kíkti á rörin hjá baðkarinu. Til að gera langa sögu stutta, þá eru píparar búnir að vera hér í allan dag að brjóta upp gólfið þar sem baðkarið var. Nú er komið í ljós að neysluvatnslögnin og ofnalagnirnar eru tærðar og ónýtar. Við vonum innilega að tryggingafélagið bæti okkur tjónið, en búumst svo sannarlega við því versta.
    Í tilefni af hrekkjavökunni vildi Bergur að ég málaði á hann glóðarauga og blóðnasir. Þetta tókst svo vel til að allir sem hafa séð hann halda að hann hafi verið í slagsmálum. Það versta er að hann er ekkert að leiðrétta það....get ekki ímyndað mér hvað foreldrar vina hans halda..hehehe.
    Ég setti mynd af ,,slagsmálahundinum" í myndaalbúmið.


    22. október 2011

    Við kíktum í kaffi til foreldra minna í dag og ég smellti nokkrum myndum af krökkunum, fyrst ég var nú með myndavélina á mér. :)
    Ég er komin í hálft starf fram að fæðingu enda ekki annað hægt miðað við núverandi heilsu.


    21. október 2011

    Það var starfsdagur í leikskólanum hennar Ingveldar í dag og fyrsti dagur í vetrarfríi hjá Bergi. Hún kom því í vinnuna með mér í dag, en sem betur fer var ég bara að vinna milli hálf eitt og fimm.
    Bergur kaus að vera frekar heima og fara út að hjóla með vini sínum. Síðdegis hjólaði hann síðan í vinnuna til pabba síns og þeir komu síðan samferða heim.
    Ingveldur vakti mikla aðdáun uppi í vinnu fyrir að vera svona stillt og prúð. Hún fékk líka að heyra það oft hvað hún væri nú sæt lítil stelpa. Þá var hún mjög ánægð að hitta Arnar Pál frænda sinn en var svolítið feimin við að spjalla við hann.
    Þegar við horfðum síðan á fréttirnar í kvöld þá fannst henni voða gaman að segja frá því að hún hefði nú hitt þennan og hinn í dag. :)


    19. október 2011

    Ég fór í mæðraskoðun í morgun og fékk að vita að drengurinn er búinn að skorða sig. Enn eru samt sex vikur í settan dag, fimm ef hann líkist systkinum sínum.


    12. október 2011

    Bergur æfði sig á trompetið í gær þótt Gummi og Ísak væru í heimsókn. Þeir höfðu báðir voða gaman af æfingunni og Bergur var mjög einbeittur.


    7. október 2011

    Nokkrar nýjar myndir í myndaalbúminu. Meðal annars af Bergi með nýja skeggið sem hann valdi fyrir brot af afmælispeningnum sínum, Ingveldi í ballett og Bergi að leika á trompetið. Tónlistarkennari hans segir að sér lítist vel á hann. :)


    25. september 2011

    Við vorum að koma úr bústað þar sem Bjössi og vinahópur hans fögnuðu því ásamt fjölskyldum sínum að tuttugu ár eru liðin frá því þeir kynntust í MH.
    Ég smellti af nokkrum myndum en ekki jafn mörgum og ég hefði viljað. Myndavélin vill nefnilega gleymast þegar það er gaman.


    12. september 2011

    Bergur Kári er átta ára í dag og hingað var strákunum í bekknum boðið til veislu eftir skóla. Bjössi var kominn heim á undan mér og sagði mér að Bergur hefði ekki bara boðið strákunum í bekknum heldur líka öllum strákunum í S-bekknum. Óvæntir gestir reyndust þó á endanum ekki vera nema þrír, þannig að þeir voru alls fimmtán hér í dag. Mikið stuð og afmælið vel heppnað.
    Á laugardaginn héldum við afmælisveislu fyrir fjölskyldu og vini. Hún var líka mjög vel heppnuð og allir skemmtu sér vel. Um morguninn fór Ingveldur í fyrsta balletttíma vetrarins með vinkonum sínum, Öglu og Þóreyju.
    Slatti af nýjum myndum í albúminu.


    2. september 2011

    Það er ótrúlegt hvað tíminn líður hratt. Nú er kominn september sem þýðir að afmæli Bergs er á næsta leyti. Hann er búinn að ákveða að bjóða vinum sínum að horfa á bíómynd heima í stofu og Bjössi ætlar að varpa myndinni á vegginn með myndvarpa. Síðan verða heimatilbúnar pizzur og afmæliskaka að sjálfsögðu. :)
    Nokkrum myndum hefur verið bætt í albúmið, þar á meðal þremur af Ingveldi Birnu sem teknar voru í morgun á leið í leikskólann, fyrst það er nú kominn nýr mánuður. :)


    25. ágúst 2011

    Bergur missti enn eina tönnina í dag, að þessu sinni tönn við hliðina á framtönn í efri gómi.

    Slatti af nýjum myndum í albúminu. :)


    19. ágúst 2011

    Bergur byrjar í skólanum aftur eftir helgi og fer í þriðja bekk - ótrúlegt en satt. Ingveldur er komin á aðra deild á leikskólanum og er mjög ánægð með sig. Henni finnst hún orðin svo stór og talar mikið um að nú séu litlir krakkar komnir á gömlu deildina hennar.
    Litli bróðir þeirra í móðurkviði er sprækur og lætur vita af sér með kröftugum spörkum en virðist hafa vit á því að sparka ekki í systkini sín. Vill greinilega hafa þau góð..hehehe.
    Belgarnir skiluðu bílnum á fimmtudagskvöldið í síðustu viku en við leyfðum þeim að hafa hann á ferðalagi þeirra norður í land. Þetta var ekkert mál enda ekki nema fjórir dagar sem við urðum að vera án hans. Þau voru hinsvegar svo þakklát fyrir lánið að þau gáfu okkur gjafabréf út að borða á Fishmarket, en þau sögðust aldrei áður hafa gefið gjöf að loknum íbúðaskiptum. Við erum því á leiðinni út að borða á næstunni.
    Úrval af myndum úr ferðinni okkar eru nú komnar í albúmið.


    10. ágúst 2011

    Fjölskyldan er komin heim eftir vel heppnað ferðalag til Belgíu. Við skemmtum okkur konunglega í Brugge en þar gistum við í stóru einbýlishúsi með gullfiskatjörn, hænsnakofa og gróðurhúsi. Bergur og Ingveldur skiptust á að gefa hænunum korn á morgnana og sækja egg og þau voru dugleg að aðstoða okkur foreldrana við að vökva tómatana og blómin í garðinum.
    Myndir úr ferðinni eru að sjálfsögðu löngu komnar í albúmið. :)


    13. júlí 2011

    Við fórum í sónar á mánudaginn og fengum að vita að við eigum von á litlum dreng í lok nóvember. Allt lítur vel út samkvæmt sónar og nú er bara að bíða spenntur eftir komu drengsins.
    Bergur var að sjálfsögðu hæstánægður með að barnið væri drengur en Ingveldur vill ekki heyra á það minnst. Hún segir að þetta sé stelpa og að hún eigi að heita Lísa (eins og Lísa í Undralandi). Hún fær sem betur fer nokkra mánuði til að ná áttum...hehehe.
    Nýjar myndir í albúminu.


    2. júli 2011

    Við fórum í afmæliskaffi til Herborgar systur minnar í dag í vel heppnað boð. Fyrr í dag fékk Ingveldur að hjóla í heimsókn til Þóreyjar vinkonu sinnar og Bergur lék sér við Gumma og Gísla, litla bróður hans.
    Ég skannaði inn sónarmyndir af væntanlegu kríli og setti í albúmið. Við fáum að vita kynið eftir rúma viku. Við höfum enga hugmynd um hvort stelpa eða strákur er á leiðinni, en krílið er mjög fjörugt í móðurkviði. Alltaf að sparka og láta vita af sér. :)


    28. júní 2011

    Ingveldur er furðuklár í tölvuleik sem veltur á því að minnið sé gott. Og hún er alltaf að verða betri. :)
    Bergur er farinn að leika sér meira úti á kvöldin með vinum sínum. Hann er allt í einu orðinn svo stór strákur. :)


    20. júní 2011

    Við erum búin að eiga frábæra helgi. Við fórum niður í bæ og skemmtum okkur konunglega á 17.júní og fórum þaðan í afmæliskaffi til mömmu. Á laugardag var síðan árlegt golfmót HGH sem tókst vel að vanda. Þaðan komum við síðan um hádegið í dag.
    Fullt af myndum í albúminu :)


    15. júní 2011

    Frá því síðast var skrifað á síðuna hefur Ingveldur farið á fótboltaæfingu (og var ekki hrifin), Bjössi fór með krakkana upp í bústað til langömmu þeirra og langafa og á annan í Hvítasunnu fórum við í kaffi í Réttarbakkann.
    Slatti af nýjum myndum frá þessum tækifærum eru í myndaalbúminu.
    Framundan er sautjándi júní, sem Bergur er búinn að telja niður í frá því í byrjun mánaðarins og svo um helgina er árlegt golfmót HGH. Krakkarnir eru mjög spenntir enda er stefnt að því að gista í tjaldi þar um nóttina.


    6. júní 2011

    Í dag voru skólaslit hjá Bergi eða það sem kallast gullakistudagur í Laugarnesskóla. Þá kynnti Bergur sín bestu verkefni fyrir okkur foreldrunum og var greinilega stoltur af afrakstri vetrarins.
    Þetta voru líka tímamót að því leyti að nú var hann að kveðja Svanhvíti kennara sinn. Í haust fær hann nýjan kennara sem heitir Sesselja. Bergur segir að sér lítist vel á hana.
    Í júnímöppunni eru nú komnar fullt af nýjum myndum. Endilega kíkið á þær. :)


    2. júní 2011

    Bekkurinn hans Bergs og foreldrar komu saman á rólóvelli í hverfinu í morgun til að grilla saman og kveðja Svanhvíti kennara krakkanna, en þau fá nýjan kennara í þriðja bekk. Svanhvít kom með súkkulaðiköku sem vakti mikla lukku hjá krökkunum.
    Eftir grillið fórum við í afmæli til Rakelar Söru sem varð þriggja ára í gær. Við enduðum á að spjalla þar til rúmlega sjö í kvöld. Mjög gaman. Bergur og Ingveldur skemmtu sér sérstaklega vel við að hoppa á trampólíninu sem Þórir og fjölskylda voru að fá sér. Bergur er reyndar búinn að krefjast þess að þegar við flytjum þá fáum við okkur trampólín í garðinn...hehehe.
    Við vorum með myndavélina á lofti meira og minna í allan dag og settum slatta af myndum í albúmið. Endilega kíkið á þær.


    31. maí 2011

    Bergur og Ingveldur eru búin að vita af því núna í rúma viku að þau eiga von á litlu systkini í lok ársins. Bergur ljómaði eins og sólin við fréttirnar og vonast eftir litlum bróður. Ingveldur er mjög spennt fyrir því að verða stóra systir og talar mikið um það hvað hún ætli að kenna litla barninu, sem hún er sannfærð um að verði lítil systir. Það kemur í ljós eftir sex vikur hvort það er stelpa eða strákur væntanlegur í lok nóvember. Þangað til bíðum við spennt.


    28. maí 2011

    Við kíktum í kaffi til langömmu og langafa sem gáfu okkur boðsmiða í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn en þar var Stöðvar 2 dagur í dag. Við fórum beint þangað eftir heimsóknina og skemmtum okkur vel. Krakkarnir fengu blöðru og við létum ekki smá rigningu á okkur fá. Fullt af myndum í albúminu.
    Bjössi notaði tímann á meðan við vorum í Húsdýragarðinum og málaði eldhúsinnréttinguna, en hann er búinn að laga fáránleg göt sem fyrri eigendur íbúðarinnar söguðu í innréttinguna til að koma þar fyrir allt of breiðum gufugleypi. Nú er allt annað að sjá eldhúsið. :)


    27. maí 2011

    Slatti af nýjum myndum í albúminu. :)


    25. maí 2011

    Ingveldur fékk að bjóða tveimur vinkonum sínum, þeim Steinunni Ástu og Þóreyju, heim af leikskólanum í dag. Þær dönsuðu saman í stofunni, skoðuðu bækur og fóru í mömmó. Fyndið hvað leikir stelpna geta verið rólegri en lítilla drengja. :p
    Við fengum myndir sendar úr Leynileikhúsinu í gær. Ég setti þær í apríl-myndaalbúmið svo þær væru með hinum leikhúsmyndunum. Smellið á last uploads til að skoða þær. :)


    21. maí 2011

    Sumarið lætur aðeins bíða eftir sér og við bíðum spennt eftir því að komast í sumarsundferðirnar. Það er bara svo miklu skemmtilegra að fara í sund á sumrin.
    Krakkarnir hjálpuðu mömmu sinni aðeins í tiltektinni í dag og nokkrum myndum var smellt af og þær settar í albúmið.
    Við kíktum svo aðeins í Réttarbakkann þar sem krakkarnir léku sér saman í garðinum og tóku dansspor uppi í stofu.


    13. maí 2011

    Ingveldur fór með pabba sínum í vinnuna í morgun og síðan í nokkurra klukkustunda pössun til langömmu sinnar og langafa. Þar var hún í góðu yfirlæti og talar mikið um það afi hennar kunni að galdra. :)


    12. maí 2011

    Það er starfsdagur í dag og á morgun á leikskólanum hennar Ingveldar. Svo heppilega vildi til að ég er í vaktafríi í dag þannig að við mæðgur héldum út á róló snemma í morgun í sólskini sem reyndist síðan vera algjört gluggaveður. Ég smellti af nokkrum myndum úti á róló og setti í albúmið.
    Síðdegis var okkur boðið í kaffi heim til Öglu vinkonu Ingveldar. Við sátum aðeins úti í garðinum þeirra og stelpurnar léku sér.
    Bergur á eftir að skemmta sér vel í skólanum í dag. Hann fer með árganginum í Fjölskyldu-og húsdýragarðinn þar sem stendur til að grilla pylsur.


    9. maí 2011

    Ingveldur fór með bréf í leikskólann um leikhúsferðina, leikskrána og geisladiskinn svo krakkarnir gætu hlustað á lögin úr leikritinu. Hún var rosalega spennt að komast á leikskólann sem gerði morgunverkin mjög auðveld.
    Bjössi grillaði hamborgara í kvöldmatinn og vonandi verður þetta fyrsti grilldagurinn af mörgum í sumar. :)
    Nokkrar nýjar myndir í albúminu.


    8. maí 2011

    Í dag fórum við í stórum hópi í Þjóðleikhúsið að horfa á Ballið á Bessastöðum. Í hópnum voru Bergur, Ingveldur, Ásrún, amma og afi, Herborg, Inga, Kristinn, Þórunn Karen og Rakel. Við skemmtum okkur rosalega vel og keyptum öll diskinn úr leikritinu og trölluðum með á leiðinni upp í Réttarbakka. Þar gæddum við okkur á grilluðum pylsum í sólinni og grænmetisbökunum hennar mömmu. Æðislegur dagur í alla staði og ljómandi gott veður.


    4. maí 2011

    Ég setti nokkrar nýjar myndir í albúmið. Flestar eru teknar á sunnudag en nóttina áður gistu hvorki fleiri né færri en sex barnabörn hjá ömmu sinni og afa í Réttarbakka. Þau skemmtu sér alveg konunglega og eiga örugglega eftir að muna eftir þessu lengi. :)


    3. maí 2011

    Annar dagur í vinnu hjá mér í dag eftir tveggja mánaða leyfi. Auðvitað byrjaði sólin að glenna sig um leið og fríinu lauk en það er önnur saga.
    Ég skellti mér bara í sund með krakkana eftir vinnu í gær og við áttum notalega stund saman á milli þess sem við skelltum okkur í rennibrautina. Eftir sundið fengum við okkur pylsu úti í sólinni.
    Ætli sumarið sé loksins komið?


    25. apríl 2011

    Við héldum vestur á Þingeyri á miðvikudag með það í huga að eyða páskunum með vinum okkar Einari og Elínu og þeirra börnum. Með lambalæri og farangur í skottinu héldum við af stað í góðu færi. Á laugardag breyttist hinsvegar veðrið þannig að við sáum ekki annan kost en að halda heim á leið.
    Bergur og Ingveldur náðu að minnsta kosti að leika við Regínu og Bjössi gat aðeins aðstoðað Einar við undirbúning flutninga fjölskyldunnar til Noregs.
    Við vorum síðan svo lánsöm að Herborg systir mín ákvað að bjóða okkur að borða með þeim á Páskadag. Við vorum því hjá þeim í góðu yfirlæti og félagsskap í gærkvöld.


    18. apríl 2011

    Börnum og barnabörnum starfsmanna RÚV var í dag boðið í heimsókn þangað. Bergur og Ingveldur skemmtu sér konunglega við búningamátun en það allra skemmtilegast var án efa að hitta Björgvin Franz í Stundinni okkar.
    Slatti af myndum sem teknar voru við þetta tækifæri eru í albúminu.


    16. apríl 2011

    Guðjón afi barnanna er á landinu og kíkti í heimsókn til okkar bæði í gær og í dag börnunum til mikilliar gleði. Við smelltum nokkrum myndum af þeim í knúsistuði og settum í albúmið.


    12. apríl 2011

    Bjössi náði í lítið barnatjald inn í geymslu í gær og krakkarnir hafa verið inni í því nánast allar stundir síðan. Bergur spurði í gær hvort þau mættu sofa í því í nótt. Okkur leist nú ekkert sérstaklega vel á það. En eftir að hafa hugsað málið höfum við lofað þeim því að ef þau verða góð það sem eftir er af vikunni, þá megi þau sofa í því aðfararnótt laugardags.


    8. apríl 2011

    Við fórum að sjá Berg leika í leiksýningu í kvöld í leikhúsinu Norðurpólnum á Seltjarnarnesi. Hann var í hlutverki skrímslatrúðs í leikriti sem fjallaði um Öskudaginn. Bergur hafði hringt í gær og boðið ömmu sinni og afa og langömmu og langafa á sýninguna og við sátum öll saman og skellihlógum nánast allan tímann.
    Þetta var mjög vel heppnað og óhætt að segja að Bergur hafi verið svolítill senuþjófur. Salurinn sprakk að minnsta kosti þrisvar úr hlátri yfir einhverju sem hann sagði eða gerði. Engin hlutdrægni hér, hehehe.
    Þegar annar bekkur hafði lokið við að sýna sitt leikrit sýndi þriðji og fjórði bekkur sitt leikrit. Við fengum því að horfa á tvær leiksýningar og báðar mjög skemmtilegar. Þetta var mjög góð leið til að enda vikuna.
    Bergur og Ingveldur fengu að fara heim í bíl langömmu sinnar og langafa og fannst það nú ekki leiðinlegt. :)


    7. apríl 2011

    Ingveldur fékk glimrandi umsögn á foreldrafundinum í gær. Hún er það mikið á undan hinum krökkunum í teikningu að kennararnir fá hana til að teikna ef það á að teikna eitthvað ákveðið í hópverkefni. Hún lét ekki heldur nægja að teikna bara sjálfsmynd um daginn, heldur teiknaði mynd af öllum kennurunum líka. :)
    Hún var sögð hafa þroskast mikið á stuttum tíma og að það sé nánast hægt að tala við hana eins og fullorðna manneskju. Gaman að fá að heyra góða hluti um barnið sitt. :)
    Garpurinn okkar hann Bergur fór í skólann í morgun í fyrsta sinn í þessari viku. Á morgun stígur hann síðan í fyrsta sinn á svið í alvöru leikhúsi. Við erum mjög spennt.


    5. apríl 2011

    Þegar ég sótti Ingveldi á leikskólann í gær var hún alsæl því vinkona hennar reyndist líka hafa ákveðið að vera í Línu langsokks kjól þann daginn. Í morgun kom því ekki annað til greina hjá Ingveldi en að fara aftur í Línu kjólinn og fá Línu fléttur í hárið.
    Bergur er ekki búinn að ná sér og við höfum ákveðið að halda honum líka heima á morgun. Hann er slappur en lítur mun betur út en um helgina. Hann er líka kominn með röddina aftur.
    Endilega kíkið í albúmið - þar er fullt af nýjum myndum í apríl.


    3. apríl 2011

    Bergur er með barkabólgu og verður því heima næstu daga.
    Við ákváðum að leyfa honum aðeins að fá ferskt loft í dag og fórum öll saman út á aparóló. Við vorum bara stutta stund.
    Ingveldur vildi sko alls ekki fara inn þegar við vildum inn og fór út í garð með litlu garðkönnuna sína. Hún var síðan næsta klukkutímann á fullu við að fylla garðkönnuna af rigningarvatni og vökvaði blómin sem eru farin að gægjast upp úr moldinni.
    Slatti af myndum í albúminu, þar á meðal af gjörningasýningu sem við mæðgur fórum á síðdegis í gær með foreldrum mínum. Frændi minn og frænka voru á meðal listamannanna sem valdir voru til að taka þátt í sýningunni sem bar heitið Sequences, sem stendur yfir til 10. apríl (http://sequences.is/) :)


    1. apríl 2011

    Það var náttfatadagur í leikskólanum hjá Ingveldi sem var hæstánægð með að fara í Rauðhettunáttfötunum sínum í skólann. Í skólanum hans Bergs var hattadagur og hann ákvað að fara með sixpensarann sinn, sem hann kallar minnkunarhúfuna eftir þáttum sem sýndir eru á RÚV.
    Þegar við Ingveldur komum heim af leikskólanum í dag ákváðum við að fara út í garð að njóta góða veðursins. Ekki höfðum við verið þar lengi þegar við urðum varar við Þorkel Kristin vin hennar í garðinum við næsta hús. Bergur kom heim stuttu síðar og þau fengu sér nýsteiktar kleinur og buðu Þorkeli og Svavari Dúa bróður hans með sér.
    Þau léku sér saman í smá stund í görðunum, eða þangað til tímabært var að byrja að elda kvöldmatinn.
    Myndir í albúminu.


    29. mars 2011

    Bekknum hans Bergs er skipt í fjóra jafn stóra hópa og hver hópur á að hittast heima hjá félögum sínum í hópnum að minnsta kosti einu sinni yfir veturinn. Í dag komu félagar Bergs úr hans vinahópi í heimsókn. Þetta voru þau Valtýr, Hanna Dagný, Arndís Dúna og Kristín Soffía. Ég sótti þau í frístundaheimilið klukkan þrjú og svo heppilega vildi til að sólin fór að glenna sig, þannig að við ákváðum að vera úti á aparóló allan tímann. Þar fengum við okkur síðan að drekka og krakkarnir léku sér í leiktækjunum.
    Bjössi sótti Ingveldi á leiðinni heim úr vinnunni og þau komu síðan út á róló og voru með okkur í smástund. Krakkarnir voru síðan sóttir heim til okkar. Þetta var mjög vel heppnað og fínt að geta verið úti. Ég tók nokkrar myndir og setti í albúmið.
    Þegar síðustu krakkarnir voru að fara komu þrír vinir Bergs að spyrja eftir honum, þannig að út fóru fjórir krakkar og þrír komu í staðinn. :) Íbúðin minnti því aðeins á félagsmiðstöð síðdegis. ;)
    Við erum búin að bæta slatta af nýjum myndum í albúmið, þar á meðal úr afmælisveislu afa þeirra á sunnudag.
    Myndirnar eru nú orðnar 125 í marsmánuði - geri aðrir betur!! hehehe


    26. mars 2011

    Laugardagar eru yfirleitt dagar afslöppunar hér á Rauðlæknum. Krakkarnir leika sér frammi og við reynum að taka okkur smá kríu eftir morgunmatinn. Eitthvað fannst börnunum við ætla að leggja okkur lengi í morgun því þau mættu í læknabúningum inn til okkar og sögðust ætla að taka okkur í læknisskoðun. Aðspurð sögðust þau vera hjartalæknar. Bergur sagðist reyndar fyrst vera barnalæknir en fannst síðan hjartalæknistitillinn hennar Ingveldar hljóma betur. Þeim þótti því báðum skemmtilegt að á hlustunarpípunum þeirra væri mynd af hjarta.
    Ég smellti mynd af læknunum og setti í albúmið. Þangað eru líka komnar fleiri af myndunum frá Rögnu.


    23. mars 2011

    Nemendur í öðrum bekk Laugarnesskóla buðu í dag foreldrum sínum á risaeðlusýningu. Þau héldu öll framsögu um risaeðlu sem þau höfðu valið að fjalla um, auk þess sem þau höfðu búið til svoleiðis eðlu úr pappírsmassa. Rosalega flott allt saman. Í myndaalbúminu eru að sjálfsögðu nokkrar myndir frá þessu.
    Við flýttum okkur heim því von var á Gumma og Chloe dóttur hans sem komu til landsins frá Ítalíu í gær. Chloe var mjög spennt fyrir Bergi og Ingveldi en sú síðarnefnda var ekki jafn hrifin. Bergur hafði hinsvegar mjög gaman að litlu stelpunni og lék við hana á stofugólfinu. Nokkrar góðar myndir eru komnar í albúmið.


    20. mars 2011

    Ingveldur mátaði nýja sumarkjólinn sem ég keypti á úber-afslætti í Debenhams í vikunni. Þegar ég lyfti upp myndavélinni byrjaði hún að stilla sér upp eins og hún væri í myndatöku fyrir auglýsingabækling. Fyndin stelpa. ;)


    17. mars 2011

    Við Bergur fórum saman á grímuball 2.bekkjar í kvöld. Hann var í heimagerðum Harry Potter búning og ansi flottur. Sumir þekktu hann ekki með svarta hárið og hann fékk mikið hrós fyrir búninginn. :)
    Það eru að sjálfsögðu komnar myndir inn í albúmið. :)


    14. mars 2011

    Nokkrar myndir úr myndatökunni búnar að bætast í myndaalbúmið. :)
    Myndirnar af Bergi fara vonandi að koma en þær eru örugglega kostulegar því hann klæddi sig í búninga og var duglegur að pósa hehehe.
    33 myndir í febrúar möppunni og 65 í mars. Smá ofvirkni hér greinilega...hehehe.


    11. mars 2011

    Vinkona mín úr vinnunni kom í smá heimsókn í gær og tók með sér myndavélina. Krakkarnir voru í miklu stuði og líkaði strax rosalega vel við hana og það sést á myndunum.
    Hún notaði eina mynd af Ingveldi í marsmöppuna sína á Flickr, þar sem hún birtir eina mynd á dag út mánuðinn. Ég setti hana að sjálfsögðu líka í albúmið okkar og þangað eru hinar myndirnar væntanlegar á næstu dögum. :)


    9. mars 2011 - Öskudagur

    Lítill skrítinn trúður og Lísa í Undralandi fóru héðan snemma í morgun. Bergur fer á Öskudagsskemmtun í Laugarnesskirkju og Ingveldur á skemmtun í kjallaranum á leikskólanum.
    Þau voru bæði rosalega spennt og við foreldrarnir hlökkum til að heyra þau segja frá ævintýrum dagsins þegar þau koma heim á eftir.
    Ég smellti af þeim myndum í morgun og setti í albúmið. Bjössi tók líka myndir af þeim á myndavélina í gær og við setjum þær vonandi í albúmið sem fyrst. Þar sést nefnilega búningurinn hans Bergs betur því hann er í úlpunni á myndinni sem ég tók á símann í morgun.


    8. mars 2011

    Veturinn er greinilega ekki á enda því undanfarna daga hefur snjóað mikið, börnunum til mikillar gleði. Í dag fór ég með þau út í brekku til leyfa þeim að renna sér á sleða. Við vorum fyrst í brekkuna þannig að snjórinn var enn djúpur og það kom því í okkar hlut að reyna að þjappa niður brekkuna. Eftir góða útivist fórum við heim og fengum okkur heitt kakó.

    Ég tók nokkrar myndir og setti í albúmið.

    Ingveldur og vinir hennar á leikskólanum eru búin að teikna sjálfsmyndir og setja upp á einn vegginn í leikskólanum. Þegar ég skoðaði vegginn betur tók ég eftir því að einhver hafði tekið sig til og teiknað líka myndir af konunum á deildinni. Og þegar ég segi einhver þá á ég við hana Ingveldi Birnu Björnsdóttur, snilling með meiru.


    2. mars 2011

    Ingveldur bauð vinkonum sínum á leikskólanum til afmælisveislu í dag. Við Bergur vorum því mætt tímanlega fyrir klukkan þrjú í dag til fylgja gestunum hingað. Þegar við komum upp á leikskólann voru þær mjög spenntar og við gengum síðan saman öll hingað í halarófu.
    Þegar heim var komið settust þær allar til borðs rosalega stilltar og prúðar. Bergur braut síðan ísinn með því að sulla óvart niður á sig og þær sprungu úr hlátri. Ingveldur vildi ekki blása á kertin af einhverri ástæðu þannig að ég fékk þær bara allar til að blása á kertin. Það voru þær meira en til í.
    Stelpurnar léku sér síðan saman í rólegheitunum og kom mjög vel saman. Afmælið heppnaðist því vel og Ingveldur er sæl og glöð.
    Þetta reyndist líka gott tækifæri fyrir mömmurnar til að kynnast enn betur því þær stoppuðu aðeins og fengu sér kaffisopa í lokin.
    Rétt eftir að síðasti gesturinn fór kom pakki handa afmælisstelpunni frá ömmu og afa í Stokkhólmi. Ekki kom því annað til greina en að hún fengi að opna hann strax.
    Myndir úr afmælisveislunni í albúminu. :)


    1. mars 2011

    Á morgun býður Ingveldur Birna fimm vinkonum sínum af leikskólanum heim í afmæliskaffi. Hún er rosalega spennt og talar varla um annað. Þær koma allar samferða okkur heim á morgun.
    Nokkrar myndir frá leikskólanum í albúminu.


    25. febrúar 2011

    Við héldum upp á afmæli Ingveldar í dag. Nokkrar nýjar myndir í albúminu. :)


    24. febrúar 2011

    Fullt af nýjum myndum í albúminu - líka nokkrar frá því á jólunum. :)


    13. febrúar 2011

    Þetta var skemmtileg helgi. Herborg systir var gæsuð með stæl á föstudaginn, laugardagurinn fór í rólegheit og í dag var mikill fjölskyldudagur því við fórum bæði til ömmu og afa Bjössa og til foreldra minna.
    Örfáar nýjar myndir í albúminu.


    5. febrúar 2010

    Þetta var góður dagur í dag. Við byrjuðum daginn á því að fara í afmælisbröns eða dögurð til Siggu. Þar var fullt af krökkum til að leika við og stelpunum leyft að leika með Barbie dótið. Ingveldur var mjög ánægð með það. Bergi fannst skemmtilegra að skreppa aðeins út og leika sér í snjónum.
    Við komum við í Tómstundahúsinu á leiðinni til foreldra minna og keyptum flugvélamódel sem feðgarnir ætla að skemmta sér við að setja saman og mála.
    Við höfðum ekkert komið í Réttó í marga daga og það var notalegt að sitja og spjalla saman við eldhúsborðið.
    Þegar við komum heim fór Bergur með snjóþotuna út í brekku með Gunnari Eysteini vini sínum og þeir komu síðan hingað til að fá sér kakó. Ég smellti mynd af þeim þegar þeir komu því þeir voru svo sætir úti í öllum þessum snjó.


    31. janúar 2011

    Vegna tæknilegra örðugleika hurfu þær myndir sem settar voru inn í albúmið eftir 24.desember. Við fyllum upp í eyðurnar smám saman.

    Bergur og bekkurinn hans eru þegar búin að safna 300 smellum (þegar krakkarnir haga sér vel, eru kurteisir og stilltir fá þeir smelli) og þau völdu að fá að koma í búningum í skólann í dag. Bergur og Boyd vinur hans ákváðu að fara sem Karíus og Baktus og í albúminu má sjá Berg kominn í karakter. Rosa flottur Baktus þar!


    26. janúar 2011

    Nokkrar nýjar myndir í albúminu og nokkrar frá því í fyrra.


    18. janúar 2011

    Það er alltaf jafn gaman að bæta við myndum í albúmið.
    Nokkrar voru að bætast við; þar á meðal eru tvær sem ég tók af myndum sem Ingveldur teiknaði af jólasveinum um jólin. Þær eru í desember-albúminu, en eins og alltaf er einfaldast að smella á ,,Last uploads" vinstra megin og sjá þannig allar nýjustu myndirnar á síðunni.


    16. janúar 2011

    Við fórum í veglega afmælisveislu til Ingvars Daða í dag en hann verður níu ára á morgun. En áður en við fórum þangað náði Bjössi að gera smá breytingar í íbúðinni. Þær verður hægt að sjá í afmælisveislunni hennar Ingveldar í mars eða jafnvel fyrr.
    Ingveldur er orðin frekar upptekin af afmælinu sínu og er mjög spennt yfir því að fá að bjóða vinkonum sínum á leikskólanum í sérstakt stelpuafmæli. Hún er búin að ákveða að þá verði Barbie diskar og tilheyrandi, en Barbie á nánast hug hennar allan þessa dagana og prinsessu-playmo líka.
    Bjössi er búinn að kaupa bókina Goðheimar og er byrjaður að lesa hana fyrir krakkana sem hlusta hugfangin á.


    4. janúar 2011

    Gleðilegt ár!
    Við vorum systkinin ásamt fjölskyldum um áramótin hjá foreldrum okkar og þar var eins og alltaf mikið stuð og heilmikið sprengt, krökkunum til mikillar gleði.
    Við tókum slatta af myndum sem eru að sjálfsögðu komnar í albúmið.
    Þar eru einnig nokkrar myndir úr jólaboðunum á jóladag og annan dag jóla.