25. júlí 2010
Við mæðgur fórum og hittum móðurfjölskylduna í Laugardalnum í dag. Feðgarnir voru heima að mála á meðan.
Afgangurinn af myndunum frá Vestfjörðum er kominn inn á myndasíðuna.
20. júlí 2010
Við erum komin aftur heim frá Vestfjörðum. Ferðin var í stórum dráttum: Munaðarnes í þrjár nætur, ein nótt á Laugum í
Sælingsdal, tvær nætur á Ísafirði og síðan þrjár nætur á Þingeyri. Þeir sem hafa áhuga á að heyra alla ferðasöguna geta bara
komið í heimsókn. :0)
Við setjum myndir úr ferðinni inn á síðuna í rólegheitum.
1. júlí 2010
Ingveldur fór í sumarklippinguna í dag og er núna frekar stuttklippt. Hún er mjög ánægð með útkomuna og var sérstaklega
ánægð með það þegar hárgreiðslukonan blés á henni hárið. Við setjum inn myndir síðar.
Bergur segist vera að safna hári. Hann langar til að hafa síðan topp sem fellur yfir annað augað. Eldri bróðir vinar hans
er víst með svoleiðis klippingu og Bergur er harðákveðinn í að láta hárið vaxa nógu mikið til að geta verið eins. Miklar hár-pælingar
í gangi á Rauðalæknum. ;)
20. júní 2010
Bergs lið varð í fyrsta sæti í sínum riðli á Akranesmótinu sem lauk í dag. Bergur varð samt dálítið spældur að fá ekki
sinn eigin bikar.
Mótið var vel skipulagt og allt gekk eins og smurt. Bergur svaf með liðsfélögum sínum í skólastofu eins og
hann hefði gert það oft áður.
Við Ingveldur kíktum upp eftir í gær með mömmu og pabba í rúma tvo tíma. Það var alveg nógur tími til að sjá tvo leiki hjá Bergi
og einn hjá Ingvari. Foreldrar mínir náðu að skipta tímanum betur á milli strákanna.
Myndir í albúminu :)
Mamma átti afmæli í gær og hélt upp á afmælið síðdegis í dag. Við enduðum því helgina á kökuáti í góðum félagsskap.
18. júní 2010
Ingveldur fékk magakveisu í nótt og var því heima í dag með mömmu sinni. Við vorum búin að ákveða að Bjössi og Bergur
færu bara tveir fyrsta daginn á Akranesmótinu, sem hefst í dag, en nú er nokkuð ljóst að þeir verði án okkar alla helgina.
Liðið hans Bergs vann tvo leiki af þremur í dag. Frábær árangur! Nýjar myndir á myndasíðunni. :)
17. júní 2010
Hæ, hó og jibbí jei! Það er kominn sautjándi júní!
Við fögnuðum þjóðhátíðardeginum með hefðbundnum hætti og fórum í bæinn til að taka þátt í hátíðarhöldunum. Veðrið
var gott, hiti við stofuhita og hálfskýjað.
Bergur fékk að fara í hringekju, hoppikastala og var málaður eins og trúður. Ingveldur kærði sig hins vegar ekki
um að fá andlitsmálningu. Við gengum Lækjargötuna og yfir í Hljómskálagarðinn og þaðan aftur að bílnum.
Við kíktum í framhaldi til ömmu og afa Bjössa í vöfflukaffi og þaðan til foreldra minna í smá innlit. Frábær dagur í alla staði.
14. júní 2010
Við sáum glitta í fullorðinstönn í skarðinu hans Bergs í kvöld. Hann fór hinn ánægðasti í háttinn.
10. júní 2010
Í dag var svokallaður gullakistudagur í skólanum hjá Bergi. Þá kynnti hann fyrir okkur sín bestu verk frá því í
vetur. Hann stóð sig vel og verkefnin voru vel unnin hjá honum. Við erum mjög stolt af honum Bergi okkar. :)
7. júní 2010
Ingveldur er heima í dag því bannsett kvefið virðist vera að aukast. Hún er samt alveg eins og hún á að sér að vera, leikur
sér og talar endalaust. Hún var bara svo þreytt í gær að hún vaknaði ekki einu sinni þegar pabbi hennar bar hana sofandi
inn úr bílnum. Hún hélt síðan áfram að sofa á sófanum inni í stofu, þar til okkur þótti vissara bara að leggja hana inn í rúmið
sitt.
Við Bjössi fórum í brúðkaup Lovísu og Olivers á laugardaginn og það var rosalega gaman. Mjög vel heppnað brúðkaup hjá þeim og
allir skemmtu sér vel. Krakkarnir fengu að gista yfir nóttina hjá afa sínum og ömmu og voru ekkert sérstaklega spennt að fara
þaðan þegar við sóttum þau daginn eftir. En það er bara venjulegt. :)
Nokkrar nýjar myndir í albúminu. Ef ykkur vantar aðgang, sendið þá póst á Bjössa.
1. júní 2010
Bergur missti fyrstu tönnina sína í morgun þegar hann var að borða morgunmatinn. Ég tók mynd af honum og
setti í myndaalbúmið - að sjálfsögðu. :)
Þar eru líka myndir frá VÍS mótinu frá því á laugardaginn.
Ingveldur hefur verið hrædd við að fara í vatnsrennibraut síðan hún fór í stóru rennibrautina á Álftanesi í fyrra.
Það kom því á óvart þegar hún bað um að fara í rennibrautina þegar við vorum þrjú saman í sundi í síðustu viku.
Þegar við vorum að koma að stiganum sagði sú stutta: ,,Mamma, þetta verður geðveikt!"
Við enduðum á því að fara aðeins í heita pottinn. Bergur átti erfitt með að vera kyrr og gusurnar gengu yfir aðra
sem reyndu að slappa af í pottinum. Ég bað hann því vinsamlegast um að sitja kyrran og vera góðan. Þá sagðist hann
ætla að verða röggsamur. Þau læra nýtt orð í hverri viku. Ætli þetta hafi ekki verið orðið fyrir þessa viku.
25. maí 2010
Það var ansi mikið að gera hjá Bergi í dag. Hann fór í fjöruferð með skólanum, þaðan í frístundaheimilið og þaðan í
fótboltann. Þangað sóttum við Ingveldur hann og keyrðum hann í vinahópshitting og sóttum hann síðan tveimur tímum síðar,
tímanlega til að ná í Eurovisjón heima hjá Þóri bróður.
Þar var stórfjölskyldan saman komin, það vantaði bara Bjössi, sem um það leyti var kominn langt út á sjó. Krakkarnir léku sér á meðan fullorðna fólkið fylgdist með sjónvarpinu. Krakkarnir
komu þó og horfðu á Heru Björk syngja fyrir Íslands hönd.
Stigagjöfin var mjög spennandi og þegar eitt umslag var eftir sagðist Bergur þess fullviss að íslenski fáninnn væri í því. Hann hafði rétt fyrir sér og mikil fagnaðarlæti brutust út
í stofunni.
Það skyldi þó ekki fara svo að á sunnudag þegar þjóðin vaknar að Besti flokkurinn sé með meirihluta í borgarstjórn og Ísland
búið að vinna Eurovísjón??
24. maí 2010
Nýjar myndir á myndasíðunni. :)
22. maí 2010
Við buðum foreldrum mínum í saltfisk í kvöld. Saltfiskurinn hafði legið í þrjú ár í salti og var bragðið eftir
því, þrátt fyrir að hafa verið látinn liggja í bleyti í nánast tvo sólarhringa. Við kunnum kannski ekki nógu vel á þetta.
Skyrtertan var þó góð. :) Sem betur fer eru foreldrar mínir með húmor fyrir svona löguðu og við áttum saman skemmtilegt kvöld.
Nýjar myndir í albúminu - meðal annars af Ingveldi í sveitarferðinni.
19. maí 2010
Ingveldur fór í sína fyrstu sveitaferð með leikskólanum í dag. Ekið var í einn og hálfan tíma að sveitabæ
eins leikskólakennarans á Suðurlandi. Ingveldur var mjög hrifin af dýrunum en vildi ekki hafa þau alveg ofan í
sér. Hún gaf kindunum hey og horfði á þær borða það úr öruggri fjarlægð. Hún var hrifnust af litlu kettlingunum
og lýsti því yfir að hana langaði í einn svona.
Hún varð bílveik bæði á leiðinni upp eftir og á leiðinni tilbaka. Þeir voru ansi margir pokarnir sem hún gubbaði
í, litla greyið. Það var ekkert verið að hafa fyrir því að stoppa þó einn væri ælandi, betra bara að hnýta hnút á pokann
og keyra greitt á áfangastað.
17. maí 2010
Bergi gekk þokkalega á fótboltamótinu um helgina þótt liðið hefði tapað báðum leikjunum. Hann tók þátt og var ekkert
tapsár. Þetta var líka ekkert stórmót - hehehehe.
Ingveldur fór í fyrsta vinkonuafmælið á Uppstigningardag til vinkonu sinnar á leikskólanum. Hún fékk að hjóla
þangað með gjöfina í körfunni. Mamma hennar var auðvitað með í för rétt eins og mæður hinna krakkanna, þannig að
þetta varð nokkurs konar mömmuklúbbur í leiðinni. Stórskemmtilegt. :)
Við grilluðum á nýja kolagrillinu í fyrsta skipti í gær með góðum hópi gesta. Einar, Elín og dætur komu og Óskar og
Gísli litli. Á eftir prófuðum við spilið Kollgátu sem reyndist mjög fyndið og skemmtilegt.
10. maí 2010
,,Pabbi, ég fékk gráan fisk í hádegismat á leikskólanum í dag," sagði Ingveldur við matarborðið
í kvöld. ,,Hann var grár eins og bíllinn okkar." Þau eru stórskemmtileg þessi kríli. :)
Eftir fótboltaæfingu í dag sagðist Bergur vilja taka þátt í fótboltamóti næsta sunnudag. Pabbi hans
gekk því frá skráningunni hið snarasta.
Nú er gróðurinn allur að taka við sér. Það eru útsprungin blóm í öllum görðum og græn lauf hvert sem litið er.
Eftir þrjá daga verður sennilega eins og það hafi alltaf verið sumar. Gaman að því.
Slatti af nýjum myndum í albúminu.
5. maí 2010
Bergur tók þátt í sínu fyrsta fótboltamóti um helgina og hans lið vann þrjá leiki af fjórum. Það
er bara ansi gott. Hann var svo ánægður með medalíuna sína að hann tók hana varla niður alla helgina.
Myndir á myndasíðunni.
23. apríl 2010
Nýjar myndir í albúminu :)
16. apríl 2010
Ingveldur var heima í gær og í dag með magakveisu. Hún virðist sem betur fer vera að ná sér.
Bergur sýndi dans með bekknum sínum í upphafi skóladagsins í gær. Ég setti inn eina mynd af honum mjög
einbeittum á svip.
Ingveldur er hætt að nota Hókus pókus stólinn sinn og hann býðst því áhugasömum til kaups. Á hann vantar
bæði borðið og stýrið, en hentar vel sem matarstóll. Við keyptum hann notaðan á Barnalandi fyrir nokkrum árum.
14. apríl 2010
Ég fór með Berg til rakarans í dag. Bergur bað um rokkaraklippingu og kom út með hanakamb.
Alsæll.
Nokkrar nýjar myndir í albúminu.
12. apríl 2010
Ég og Ingveldur fórum saman í Krónuna úti á Granda í dag. Á leiðinni sáum við nokkur skip í slippnum. Ingveldur
spurði hvort við gætum farið í eitt skipið. Þegar ég sagði að það væri ekki hægt, því það þyrfti að gera við skipið,
hrópaði hún: ,,Við getum lagað það!"
5. apríl 2010
Ég og Siggi tókum okkur til í gær og gengum Fimmvörðuhálsinn upp að eldstöðvunum.
Var með myndavélina við höndina, lét inn það helsta sem bar fyrir augu inn í albúmið.
B.G
5. apríl 2010
Við höfðum það gott yfir Páskana og vonum að allir hafi notið helgarinnar líka.
Nýjar myndir í albúminu.
27. mars 2010
Ég leyfði Bergi og Ingveldi að horfa á bíómyndina Back to the Future í fyrsta skipti í dag. Þeim fannst hún
skemmtileg þó það þyrfti að þýða jafnóðum og útskýra hvað væri að gerast. Í atriðinu þar sem Marty McFly er í tímavélinni og
reynir að komast undan Lýbíumönnunum, sem skjóta á hann viðstöðulaust, segir Ingveldur með áhyggjurödd: ,,Mamma, hann
er að reyna að komast í Kringluna!"
Pabbi minn á afmæli á morgun og í tilefni af því hittumst við fjölskyldan í kvöld heima hjá Herborgu og Bjössa
sem buðu stórfjölskyldunni í mat. Þetta var mjög skemmtilegt kvöld :)
Ég tók nokkrar myndir og setti þær sem heppnuðust vel í myndaalbúmið.
21. mars 2010
Fullt af nýjum myndum í myndaalbúminu :)
18. mars 2010
Ég var að setja inn myndir í mars, júní, október og desember möppurnar frá árinu 2007. Það er svo gaman að fara í gegnum þessar
,,gömlu" myndir og sjá hvað börnin eru búin að breytast mikið á ekki lengri tíma.
Annars er best að smella alltaf á last uploads. Við bætum inn í safnið annað slagið og þá ekkert endilega glænýjum myndum.
15. mars 2010
Nokkrar nýjar myndir komnar í albúmið af Ingveldi að borða ís með krökkunum á deildinni á afmælisdaginn.
Hún var víst frekar vandræðaleg yfir allri athyglinni en á leikskólanum er venjan að flagga íslenska fánanum
afmælisbarninu til heiðurs og síðan syngja allir afmælissönginn.
Annars líður tíminn ansi hratt, mars er hálfnaður og það styttist í Páska. Krakkarnir eru löngu búnir að ákveða
hvernig páskaegg þau vilja fá sér. Það var ánægjulegt að sjá að þau völdu ekki páskaegg eftir stærð, heldur
hvað er á toppinum.
8. mars 2010
Afmælisveisla Ingveldar gekk vel og hún er himinlifandi með allar gjafirnar sem hún fékk, eins
og sjá má á myndunum í myndaalbúminu.
Á laugardagskvöldið fórum við í partý og Bergur og Ingveldur fengu að gista hjá ömmu sinni og afa. Það er eitt
það skemmtilegasta sem þau vita og ekki skemmdi fyrir að fá að fara í freyðibað líka.
Krakkarnir höfðu líka gaman að því að fara í afmæli í gær til langömmu sinnar. Þar hittu þau meðal annarra Maríu
frænku sína, sem Ingveldur á örugglega eftir að leika meira við seinna.
2. mars 2010
Ég fór með Berg og Ingveldi á bókasafnið í Kringlunni og við fengum að láni geisladiskinn ,,Pétur og úlfurinn"
sem Bessi Bjarnason les við undirleik. Við hlustuðum á diskinn á leiðinni heim og Bergur sagði nokkrum sinnum
,,Mamma, finnst þér þetta ekki falleg tónlist?" Hann er svo yndislegur. :)
Við fundum líka ævintýrabók eftir Rudyard Kipling og krakkarnir fengu að taka tvær barnamyndir. Ingveldur valdi
Barbie mynd og Bergur mynd um fíl.
Ingveldur bjó sjálf til afmæliskórónuna sína á leikskólanum í dag og var mjög spæld yfir því að mega ekki fara með hana
heim. Hún er mjög spennt yfir því að fá að taka með sér ís á leikskólann á afmælisdaginn.
28. febrúar 2010
Bergur og Ingvar léku sér saman úti í snjónum í garði heima hjá foreldrum mínum fram að kvöldmat en við
vorum þar saman komin öll stórfjölskyldan í mat. Það er alltaf gaman að sjá hvað krakkarnir eru góðir
saman (þrátt fyrir hávaðann).
Áður en við fórum uppeftir í mat, fórum við mæðgur í Kringluna. Ingveldur fékk nýjar nærbuxur með
Gurru grís og gulan sundbol með mynd af Gurru grís. Hún er í miklu uppáhaldi hjá Ingveldi, þannig að
ef afmælisgestir eru að velta því fyrir sér hvað þeir geti gefið henni í afmælisgjöf, þá er mikið til af
Gurru grís vörum í NEXT í Kringlunni. Hún er líka hrifin af Barbie dúkkunni sinni, en hún þarf ekki fleiri
dúkkur, frekar væri sniðugt að kaupa föt handa dúkkunni eða aðra fylgihluti. Ein dúkka er nóg til að byrja með.
Þá er Ingveldur líka dugleg að fara í göngutúra með dúkkuvagninn sinn og sýnir móðurlega tilburði með dúkkurnar
sínar. Hún hefði gaman að því að fá föt á dúkkurnar.
27. febrúar 2010
Þegar við Bergur renndum upp að skólanum hans í gærmorgun sagði hann hugsi: ,,Mamma, það hefur
einhver gert vanhæf ríkisstjórn við skólann minn." Ég spurði hann hvað hann ætti við og þá benti
hann á einn húsvegginn og sagði að einhverjir hefðu kastað snjóboltum í húsið eins og eggjum.
Dagurinn í dag er búinn að vera mjög fínn. Bergur valdi að fá fótboltaspjöld í stað nammi og voru
spjöld dagsins þau fyrstu sem hann eignast. Hann fór líka með Gumma og fjölskyldu að sjá Thriller,
en þau áttu aukamiða.
Á meðan Bergur var í leikhúsinu fórum við mæðgur heim til foreldra minna í kaffi. Herborg og fjölskylda komu
líka, þannig að það var mikið stuð.
Rétt áður en við lögðum af stað heim byrjaði að snjóa og það snjóaði
svo mikið að ég sá illa út um gluggana. Snjórinn þakti allar hliðar bílsins og hliðarspeglana á meðan
ég keyrði þannig að fljótlega leið mér eins og ég væri að keyra snjóhús. Mjög stressandi, sérstaklega
þegar maður keyrir um með jafn dýrmætan farþega og barnið sitt.
Þegar heim var komið fórum við fjölskyldan út í garð og bjuggum til risavaxinn snjókarl. Bergur hafði
gaman að því að snjókarlinn væri stærri en pabbi hans.
Nýjar myndir í myndaalbúminu.
24. febrúar 2010
Ingveldur heimtaði að fara í kjól í leikskólann í gærmorgun. Þegar hún sá gula kjólinn í skúffunni á
kommóðunni sinni tók hún andköf og hrópaði ,,ER HANN HREINN?! Ég ætla að fara í honum á leikskólann."
Henni fannst síðan ekki annað koma til greina en að taka með spariskó til að vera í inni á leikskólanum.
Ég keypti þennan kjól á þrjú pund í Primark í fyrra og bjóst alls ekki við að hann myndi slá svona í gegn.
Hún á eftir að slíta honum út með ofnotkun.
Þegar ég og Bergur sóttum hana sat hún eins og prinsessa í hásæti að drekka mjólk og borða piparkökur.
Hún er núna á leikskólanum, í gula kjólnum að sjálfsögðu.
22. febrúar 2010
Bergur gat lesið heila blaðsíðu í bókinni Sætabrauðsdrengurinn: Piparköku-Páll. Hann var
himinlifandi yfir árangrinum, rétt eins og mamma hans.
Ég spurði Berg áðan hvað hann vildi verða þegar hann verður stór og hann sagðist vilja verða
gröfumaður. Ingveldur sagðist þá vilja verða risastór kona í bleikri gröfu. Þau kannski stofna
saman fyrirtæki um reksturinn...hehehehe.
Slatti af myndum kominn í myndaalbúmið. Best er að ýta á last uploads.
21. febrúar 2010
Veikindi eru búin að stinga sér niður á heimilinu. Við erum bæði hálfslöpp hjónin þannig að
foreldrar mínir náðu í börnin og fóru með þau í afmæli til Ingu og Kristins. Þau gerðu gott
betur en það, því þau fóru líka með börnin heim til sín og skiluðu þeim síðan til okkar söddum og
tilbúnum í háttinn. Alveg yndisleg :)
Bjössi er núna að lesa Gosa fyrir þau inni í hjónaherbergi (eða Ingveldar herbergi - fer eftir hver
er spurður). Síðan fara þau í bælið. Vetrarfríi er lokið og þau þurfa nægan svefn.
19. febrúar 2010
Krakkarnir skemmtu sér mjög vel á Öskudaginn. Bergur var vampýra og kom heim hvítmálaður með ,,blóð" í
munnvikunum. Ingveldur ákvað á síðustu stundu að fara sem ljón á leikskólann en ekki í prinsessukjólnum. Þá
var nú eins gott að það var til ljónabúningur á heimilinu frá því Bergur var yngri.
Núna á sunnudaginn verður afmælisveisla Ingu og Kristins, en hún Inga á einmitt afmæli í dag. Bergur og Ingveldur fara í fylgd ömmu og afa þar sem
mamma þeirra þarf að vinna. Þau eru strax farin að hlakka til, en Ingveldur telur alltaf ástæðu til að minna á
að hún á afmæli í mars.
Ingveldur hefur alltaf sagst vilja fá græna köku í afmælisveislunni og mamma hennar verið ánægð með það því það
ætti að vera einfalt í framkvæmd. Í gær lýsti Ingveldur því yfir að hún vildi prinsessuköku. Mamman varð hálfkvíðin og
spurði hvernig prinsessukökur væru. ,,Bleik," svaraði daman og mamman andaði léttar.
Nýjar myndir í albúminu.
12. febrúar 2010
Beinagrind í svörtum kufli og bleik prinsessa fóru á grímuball með mömmu sinni í kvöld úti í skóla.
Grímuballið var á vegum foreldrafélagsins og hátíðarsalurinn var fullur af allskonar furðuverum.
Ingveldur hélt fyrst að við værum að fara á Grýluball og leist ekkert allt of vel á það, en þegar búið
var að leiðrétta það vildi hún fara með til að dansa við mömmu sína. Hún hélt greinilega að þetta yrði
einhvers kona prinsessudansleikur.
Þetta var mjög skemmtilegt og Bergur skemmti sér mjög vel. Ingveldur var orðin þreytt eftir daginn og vildi helst
kúra í fanginu á mömmu sinni.
Við fórum með afmælispakka til Ingu hennar Hrafnhildar í gær og lentum óvænt í afmælisveislu, Bergi og Ingveldi
til mikillar ánægju, enda vita þau fátt skemmtilegra en afmæli.
10. febrúar 2010
Herborg, Inga og Kristinn kíktu í heimsókn í lok skóladagsins og við fengum okkur pönnukökur og
krakkarnir léku sér saman. Mikið stuð, eins og búast mátti við af svona hressum krakkahópi.
Nýjar myndir á myndasíðunni.
5. febrúar 2010
Ingveldur er svo rosalega kvefuð að okkur þótti vissara að hún yrði heima í dag. Mamma hennar
er á kvöldvakt og mætir ekki til vinnu fyrr en klukkan fjögur, þannig að þetta verður bara huggulegur mæðgnadagur í dag.
Við mæðgurnar skoðuðum myndaalbúmið á netinu og hún hafði sérstaklega gaman að öllum myndunum frá því hún var lítil.
Nýjar myndir í myndaalbúminu.
2. febrúar 2010
Það eru foreldradagar í bekknum hans Bergs þessa dagana. Hvern dag koma foreldrar þriggja barna og
segja bekknum hvað þeir vinna við og fylgjast síðan með kennslunni. Ég fór með Bergi í dag og það var
gaman að fylgjast með honum í tímanum.
Þau eru að læra rím þessa dagana og verkefnið sem hópurinn hans fékk
var rím bingó. Bergur krafðist þess að ég fengi að vera bingóstjórinn og stelpurnar þrjár sem voru í hópnum
með honum samþykktu það. Ég las upp orð á miðum og þau áttu að finna á bingóspjaldinu sínu orð sem rímaði við
það. Síðan fékk sá sem vann að vera næsti bingóstjóri og svo koll af kolli.
Bergur var ánægður að hafa mömmu
sína með sér, brosti út að eyrum og faðmaði mig af og til. Algjört krútt.
Morgunsöngur er alla morgna í Laugarnesskóla. Þá fara allir nemendurnir fram á gang og syngja saman. Skólastofurnar
eru á þremur hæðum og krakkarnir standa á svölunum og á jarðhæðinni. Annað lagið sem var sungið þennan morguninn
var lagið hennar Soffíu í Kardimommubænum. Þegar ræningjarnir segja NEI! í laginu hrópuðu allir krakkarnir af mikilli
innlifun. Þetta var mjög skemmtilegt.
1. febrúar 2010
Það styttist í afmæli Ingveldar sem er búin að lýsa því yfir að hún vilji græna köku í
afmælisveislunni. Hún er spenntust fyrir öllu sem tengist prinsessum hvort sem það eru
föt, bækur eða hárskraut. Hún er líka mjög hrifin af kjólum og gengur í þeim hvort sem það
er veisla eða bara mánudagur.
Uppáhaldslagið hennar þessa dagana er Chasing Pirates með Norah Jones, en hún kallar það mömmulagið
því í viðlaginu heyrist henni Norah vera að syngja ,,mamma."
Nýjar myndir á myndasíðunni, bæði í desember og janúar möppunni.
19. janúar 2010
Ingveldur er mjög skýr og á auðvelt með að tjá sig. Fyrir nokkru síðan sátu þau systkin saman inni í
eldhúsi og Bergur hellti súrmjólk í skál og kornflexi út í. Þegar hann var búinn spurði hann systur sína
hvort hún vildi hella sjálf líka. Ingveldur svaraði þá: ,,Nei ég get það ekki Bergur, ég er bara tveggja ára."
Í gær voru þau að dást að rútu við leikskólann. Ingveldur sagði þá stóra bróður að pabbi Bryndísar Láru (stelpu
á leikskólanum) ætti rútu. Bergur sagði þá að það væri kannski ekki þessi rúta. Ingveldur svaraði þá: ,,Ég veit það
ekki Bergur, ég hef ekki komið í hana." Þetta er ekki þýðing úr smábarnamáli, hún talar yfirleitt mjög skýrt.
Ingveldur getur núna alveg sagt nafnið sitt. Fyrst var það alltaf Iddedur, síðan Íldedur en núna er það hátt og skýrt
ING-veldur. R-hljóðið kom mjög fljótt, rétt eins og hjá Bergi.
Þau voru bæði veik heima í dag hjá pabba sínum, sem sjálfur var veikur. Ingveldur er með hita og hálsbólgu. Bergur með gubbipest.
Örfáar nýjar myndir eru komnar á myndasíðuna. Best er að smella á last uploads, vinstra megin á myndasíðunni, þá sjást allar
nýjustu myndirnar.
17. janúar 2010
Ingvar er átta ára í dag og við fórum til hans í afmæliskaffi. Það var mjög skemmtilegt að vanda.
Við sóttum börnin til foreldra minna á leiðinni í afmælið en þau fengu að gista þar í góðu yfirlæti.
Í gær fórum við nefnilega á vel heppnað þorrablót hjá föðurfjölskyldu Bjössa. Það var mjög góð mæting, báðir bræðurnir
komu að norðan og Halli og Maiken komu frá Danmörku í rúmlega sólarhringsferð.
Sem betur fer hafði verið ákveðið að láta hefðbundinn þorramat eiga sig í þetta skiptið og matur frekar keyptur frá Austur Indíafjelaginu. Hrikalega
góður matur.
Systkinin höfðu ákveðið að slá saman þorrablótinu og 100 ára ártíð Guðjóns, langafa Bjössa. Gunni Kalli
hafði tekið saman fróðlega myndasýningu og voru margar myndirnar mjög lifandi og skemmtilegar. Gaman var að sjá að ættarsvipurinn er enn greinilegur. Gömul fermingarmynd af
Maju Jó hefði rétt eins getað verið af Svövu Rós. Við sáum líka að Helga hafði rétt fyrir sér þegar
hún sagði um daginn að Ingveldur væri svolítið lík Löbbu þegar hún var lítil. Ekki leiðum að líkjast. :)
2. janúar 2009
Síðasta jólaboðið var í dag og það var mjög fínt. Krakkarnir hittu fullt af frændsystkinum sínum,
sum sem þau þekktu, en öðrum kynnast þau vonandi seinna.
Það virðist einhvern veginn svo tilgangslaust að hafa jólatré í stofunni eftir að Aðfangadagskvöld er liðið
og öll jólahátíðin. Þó flestir taki niður skrautið um eða eftir Þrettándann, erum við Bjössi yfirleitt komin
með nóg nokkru áður.
Nýjar myndir eru komnar á síðuna, þær fyrstu af mörgum sem fara í janúarmöppuna 2010.
1. janúar 2010
Nýtt ár er gengið í garð og við vonumst auðvitað öll til að það verði betra en það fyrra. Brúðkaupið
bætti þó árið 2009 töluvert að okkar mati..hehehe.
Við fögnuðum nýju ári heima hjá foreldrum mínum ásamt Þóri og fjölskyldu. Við borðuðum kalkún og gómsætt
meðlæti og skutum síðan upp flugeldum eins og brjálæðingar. Allt eins og það á að vera.
Það var blankalogn
sem gerði það að verkum að við sáum eiginlega enga aðra flugelda en okkar eigin en heyrðum í flugeldum hinna.
Ég var að vinna á gamlársdag þannig að Þórir var svo vænn að ná í Bjössa og börnin og fara með þeim að kaupa flugelda.
Við höfum aldrei keypt jafn mikið af flugeldum og í ár en okkur finnst það vel þess virði. Bergur dýrkar flugelda
og síðan fara peningarnir í gott málefni.
Það eru komnar nýjar myndir á myndasíðuna. Myndirnar með jólasveininum eru úr jólaboði móðurfjölskyldu minnar á Annan í
jólum, heima hjá Rúnu frænku. Síðan er fjöldi mynda frá Gamlárskvöldi.
25. desember 2009
Aðfangadagur var notalegur hérna á Rauðalæknum þó krakkarnir væru mjög spenntir fyrir því að fá
að opna gjafirnar. Þau fengu margt fallegt og við líka og við erum mjög þakklát fyrir allt. Vonandi
voru allir ánægðir með það sem við gáfum.
Við erum nýkomin heim úr tveimur jólaboðum og erum svo södd að tilhugsunin um mat er nánast óbærileg, en
samt virðist alltaf vera pláss í maganum fyrir meira.
Í dag byrjuðum við daginn á að fara til foreldra minna í síðbúinn hádegisverð þar sem margar kræsingar voru í boði. Við vorum allt of sein vegna
þess að fröken Ingveldur harðneitaði að fara í spariföt. Á endanum leyfðum við henni að fara í fötum að eigin
vali, svo við kæmumst nú að heiman.
Þaðan fórum við til Mumma og Siggu og þar var stór hluti föðurfjölskyldunnar samankominn. Alltaf gaman að koma þangað,
mikið spjallað og hlegið. Krakkarnir höfðu næga leikfélaga í báðum boðunum og tíminn var fljótur að líða.
Á morgun hittist móðurfjölskyldan mín hjá Rúnu frænku. Það verður örugglega gaman eins og alltaf. Farið í leiki og síðan
má fólk troða upp ef það vill. Bergur segist vilja syngja Maístjörnuna og sýna leikrit. Við sjáum til hvort það verði
af því.
Við settum inn myndir frá því í gærkvöld. Þar má sjá hvað krakkarnir voru ánægðir með allar gjafirnar, svo sæt og fín.
17. desember 2009
Ingveldur var mjög dugleg í klippingu í dag, sat stillt og prúð allan tímann. Ekki reyndist nauðsynlegt að taka mikið af hárinu en það sést þó
að hún hefur farið í klippingu.
Ingveldur er hálfhrædd við köttinn í næsta húsi, en þetta er vinalegur svartur skógarköttur sem
kemur yfirleitt hlaupandi þegar hann heyrir í krökkunum. Hann kemur líka þegar við opnum útidyrahurðina.
Ingveldur hleypur alltaf aftur inn og tekur sveig framhjá kettinum, en stundum harkar hún af sér og klappar honum.
Á leiðinni á leikskólann fyrr í vikunni sagði hún við mig: ,,Mamma hlauptu. Kisa kemur," og hljóp sjálf á
harðaspretti út á leikskóla.
Á morgun er jólatrésskemmtun bæði hjá Bergi og Ingveldi. Þau mega fara í sparifötum í skólann og leikskólann, en
það er sennilega vissara að láta þau ekki fara of fín, því þau verða að geta leikið sér.
Við fengum okkur myndavél í dag fyrir inneignarkortið sem við fengum í brúðkaupsgjöf. Það útskýrir hversvegna myndgæðin
á nýjustu myndunum í myndaalbúminu eru mun betri en á þeim sem þar voru fyrir.
15. desember 2009
Ingveldur fékk tíma í klippingu á fimmtudaginn þannig að hún verður fín fyrir jólin. Ég fékk
tíma hjá hárgreiðslukonunni minni sem hefur klippt mig í 8-9 ár. Hún á líka börn þannig að Ingveldur
átti alla hennar samúð.
Þeir sem vilja sjá klippinguna sem hún fékk hjá Bergi hafa því tækifæri til þess í dag eða á morgun. :)
Um daginn fékk ég nokkra litla hluti úr geymslunni hjá foreldrum mínum. Þetta voru smáhlutir sem ég átti þegar ég var lítil.
Þeirra á meðal var lítið jesúbarn í jötu, en ég man ekki hvar eða hvenær ég fékk það. Ingveldur var mjög
hrifin af ,,litla barninu" og sérstaklega af geislabaugnum sem jesúbarnið var með yfir höfðinu. Svo hrifin
var hún af geislabaugnum að hún sleit hann af og tróð á fingurinn á sér. Jesúbarnið fékk síðan að sofa í
rúminu hennar um nóttina.
14. desember 2009
Ingveldur er mjög hrifin af afmæliskortunum sínum, sem hafa öðlast ígildi bóka hjá henni. Eitt kortið
er með glimmer framan á og hún heldur mikið upp á það. Kallar það prinsessubókina sína. Ég las fyrir hana
afmæliskveðjuna sem stóð skrifuð í því og hún leit á mig og sagði: ,,Ég á afmæli í mars!" Gott að hún hefur það á hreinu.
Í gær var hún að leika sér á sparkbílnum og var með dúkkuna sína aftan á. Dúkkan datt af og Ingveldur kallaði í
móður sína: ,,Viltu taka dúkkuna. Hann er dauður."
Ingveldur er mjög mikil dama. Í gær vildi hún fara í rúmið með armband, hring á fingri og í Hello Kitty inniskónum
sínum. Henni fannst hún svakalega fín.
Í hvert skipti sem hún fer í kjól eða sér mömmu sína í kjól vill hún dansa. Hún vill hins vegar alls ekki dansa ef hún
er ekki í kjól. Hún er stundum svolítill sérvitringur.
13. desember 2009
Bergur og Ingveldur voru í jólasveinaleik inni í herbergi í kvöld á meðan ég pakkaði inn nokkrum
jólagjöfum. Bergur kemur nokkru síðar fram og segir:,,Sjáðu mamma hvað ég er með flott skegg." Ég lít upp
og sé að skeggið virðist vera alvöruhár. Sítt hár. Hann sér að mér líst ekki á þetta og hleypur inn í
herbergi og felur sönnunargagnið, sem hann reyndar sýnir mér síðan þegar ég bið hann um það. Í lófanum
var hann með litla hárkúlu, sem ég spurði hann hvar hann hefði fengið. Hann náði ekki að svara áður en
litla systir hans, sem þar til þá hafði haldið sig til hlés, sagði: ,,Bergur var að klippa mig." Og var
hæstánægð með það.
Við getum verið ánægð með að hafa farið í fjölskyldumyndatöku í síðustu viku.
7. desember 2009
Bergur vaknaði með heljarinnar hálsríg en harkaði af sér skóladaginn því farið var í Laugardalinn í dag
með kakó, smákökur og vasaljós.
Eftir skóla var síðan strákaafmæli hjá einum bekkjarfélaganum. Þar sem hann
var enn með hálsríg í lok dagsins þótti okkur vissara að láta kíkja á hann. Læknirinn sagði að þetta væri ekkert
alvarlegt, og reyndar nokkuð algengt hjá börnum á hans aldri.
Bergur sagði honum að hann vildi verða læknir en að
hann ætlaði að vera með lokað á laugardögum. Lækninum leist vel á það og sagði Bergi að hann væri skemmtilegur
strákur.
1. desember 2009
Bergur tók sig til, steig upp á stól íklæddur lopapeysu og hóf upp raust sína syngjandi Maístjörnuna
föður sínum til undrunar og gleði. Hann hefur nefnilega ekki verið mikið fyrir það að syngja fyrir okkur áður.
En þarna var hann og fór með öll erindin eins og hann hefði aldrei gert neitt annað og stoltur faðir sem hlustaði.
Nú er hann inni í herbergi syngjandi systur sína í svefn, búinn með "lilla lagið" úr Dýrunum í Hálsaskógi, Maístjörnuna, & bíbí & blaka.
B.G.
25. nóvember 2009
,,Ís og allir búnir að skreyta fyrir jólin! Þetta er besti dagur lífs míns," sagði Bergur glaður í
aftursætinu á leiðinni heim í dag.
Ísinn var í verðlaun fyrir að vera dugleg í bólusetningu gegn svínaflensu. Ég fékk að skreppa
úr vinnunni og hitti mömmu og börnin á heilsugæslunni, en mamma var það góð að ná í börnin fyrir mig.
Þegar við vorum komin inn á heilsugæsluna sagði Bergur að hann vildi vera sprautaður síðastur.
Ég byrjaði til að sýna að þetta væri ekkert mál. Ingveldur var hrædd á meðan hún var sprautuð og grét.
Bergur sat í fanginu á ömmu sinni á meðan og hún sagði að hann hefði dregið ermina meira niður og sagst ætla frekar
að koma á morgun. Hann var síðan algjör hetja og grét ekkert þegar hann var sprautaður. Kveinkaði sér ekki neitt.
Við settum upp lítið gervijólatré á kommóðunni inni hjá börnunum. Bergur bætti skrauti á tréð og Bjössi bjó
til stjörnu úr pappír sem Bergur litaði gula. Litli jólaálfurinn okkar er gjörsamlega að farast úr spenningi og
hlakkar mikið til jólanna.
21. nóvember 2009
,,Það er að kvikna í, það er að kvikna í! Það er að brenna, það er að brenna!" Söng Bergur hástöfum í
Bónus í dag og fékk aðra í búðinni til að brosa.
Jólaföndur og laufabrauð á morgun.
20. nóvember 2009
Við ákváðum að skella okkur í bíó klukkan sex í kvöld með börnin. Við sáum A Christmas Carol (Jólasögu eftir
Charles Dickens) í þvívídd með íslensku tali og skemmtum okkur mjög vel. Krakkarnir urðu hræddir á nokkrum stöðum en komust yfir það
fljótt. Ingveldur var mjög hrifin, benti á skjáinn og hrópaði upp það sem hún sá. Við reyndum að sussa á hana og
hún mundi að hafa hljótt í nokkrar mínútur áður en hún byrjaði aftur að kalla. Hún hefur bara farið einu sinni áður
í bíó og það var líka á mynd í þrívídd, Ísöld 3. Bergur hefur farið oftar í bíó og
kann reglurnar betur. Við þurftum því ekkert að hafa áhyggjur af honum.
Eftir bíó náðum við í pizzu í kvöldmatinn. Mjög góður dagur.
Á sunnudaginn er jólaföndur í skólanum hjá Bergi og síðan laufabrauðskurður með stórfjölskyldunni. Það verður gaman.
19. nóvember 2009
,,Sjáðu mamma! Þarna er litla systir mín!" hrópaði Ingveldur glöð þegar við vorum að skoða
saman myndir af henni nokkurra mánaða gamalli í kvöld.
15. nóvember 2009
Bergi fer sífellt meira fram í lestrinum og heimanámið gengur núna hratt og örugglega
fyrir sig.
Það styttist í aðventuna og jólaundirbúningurinn fer að fara á fullt. Í gær hittumst við
systkinin með börnin og föndruðum
aðeins saman. Vonandi gefst tækifæri til að föndra meira saman síðar.
Við erum búin að kaupa
meirihlutann af jólagjöfunum sem betur fer. Þannig er hægt að slappa meira af í desember og
hitta ættingja og vini.
Ég er búin að lofa Bergi að við bökum saman piparkökuhús og að við búum til jólanammi. Það
verður gaman.
Ég skannaði tvær teikningar eftir Berg og setti inn í myndaalbúmið um daginn. Hann er orðinn
mjög klár að teikna, að minnsta kosti eru myndirnar hans alltaf skemmtilegar.
9. nóvember 2009
Bergur fór í karate í dag. Við vorum svolítið sein fyrir þannig að ég lagði bílnum og við
gengum rösklega í átt að húsinu. ,,Mamma, ertu ekki að gleyma einhverju?" spyr þá Bergur á hlaupunum.
Ég spyr hvað það geti verið og hann segir: ,,Löggan segir að þegar maður gengur á götunni eigi maður alltaf
að leiða foreldrið sitt. Hvað heldurðu að löggan segði við þig núna?" Ég var sem sagt ekki að leiða hann og
gat því ekki sagt annað en að löggan yrði varla ánægð með mig.
Bergur tekur framförum í karate, þó hann segi að sér finnist ekki gaman í því. Hann er alltaf að læra meira
af reglunum, aðallega með því að brjóta þær...hehehe. Ekkert alvarlegt samt. Reglurnar felast aðallega í því
að fara ekki út úr salnum án þess að spyrja um leyfi, gjamma ekki fram í og hneigja sig bæði við komuna inn í salinn
og þegar farið er út. Þeir sem koma of seint verða að krjúpa rétt innan við dyrnar, snúa fram í salinn og rétta upp
annan handlegginn. Þannig verða þeir að sitja þangað til kennarinn, eða sensei-inn, leyfir þeim að koma inn.
Ingveldur fór í tveggja og hálfs árs skoðun í morgun og gekk glimrandi í þeim hluta sem ég bjóst ekki við að hún
myndi geta. Hún vildi hins vegar ekki taka þátt í því sem ég var viss um að hún gæti. Hún fékk því falleinkunn..hehehe.
Hjúkrunarfræðingurinn ætlar að fá upplýsingar frá leikskólanum um hreyfiþroskann, því ekki er hægt að taka mömmuna á orðinu.
Þá er betra að treysta á hlutleysið frá leikskólanum. Ekki er langt síðan við fórum í foreldraviðtal á leikskólanum
og þá fékk Ingveldur glimrandi umsögn. Við höfum því engar áhyggjur af þroska hennar. Deildarstjórinn á deildinni hennar
segir að hún skilji orsök og afleiðingu, sem sé óvenjulegt fyrir börn á hennar aldri og að hún sé mjög skýr.
3. nóvember 2009
Svanhvít, nýi kennarinn hans Bergs, hringdi áðan til að láta vita hvernig honum gengi í skólanum.
Hann er víst ánægður í nýja bekknum, virkur í tímum og leikur við hina strákana í bekknum. Hann hefur
samt ekki hætt að leika við Gumma og Bjart, þannig að breytingin hefur ekki eyðilagt vináttu þeirra, sem
er gott.
Mamma hans Bjarts hringdi í gær og sagði að Bergur hefði neitað að hætta að vera vinur Bjarts þegar
Gummi lýsti því yfir að hann væri hættur að vera vinur Bjarts og vildi að Bergur gerði það líka. Það er gott
að vita að Bergur lætur vini sína ekki stjórna sér.
29. október 2009
,,Oh, hvað þetta er yndislegt. Viltu gera svona handa mér?" sagði Bergur þegar við sátum saman
fjölskyldan og horfðum á matreiðsluþátt Jóhönnu Vigdísar, sem að þessu sinni var að búa til
heitan brauðrétt. Ég sagðist geta gert það og sneri mér að
pabba hans til að segja eitthvað við hann. Þá kallar Bergur: ,,Mamma fylgstu með, svo þú getir lært
þetta." :)
Ingveldur, eða Lína langsokkur eins og hún kallar sig, vildi fá tígó í hárið og fór síðan inn í stofu
þar sem hún söng hástöfum ein með sjálfri sér. Hún heldur mikið upp á bleika kærleiksbjörninn sinn þessa
dagana og kallar hann herra Níels.
Mamma hans Sigurjóns hringdi í mig síðdegis og sagði að Sigurjón væri miður sín því það væru bara stelpur
væntanlegar í vinahópinn hans. Bergur átti að vera í vinahópnum en er nú kominn í annan því hann er kominn í
nýjan bekk. Vinahóparnir eru skipulagðir af foreldrum og öllum bekkjunum skipt upp í jafnstóra hópa. Hver
hópur á að gera eitthvað skemmtilegt saman tvisvar í mánuði. Bergur var meira en til í að fara til Sigurjóns
og redda partýinu.
Bergi líkar ágætlega í nýja bekknum þó hann hafi sagst vilja vera áfram í 1.L á leiðinni heim úr skólanum í dag.
Bjössi segir að hann hafi verið ósáttur við komuna í skólann í morgun og haft allt á hornum sér. Hinir krakkarnir
í bekknum buðu honum öll góðan daginn og stelpurnar voru víst mjög hrifnar af því að sjá að
hann væri kominn í þeirra bekk. Hann var hinsvegar hinn ljúfasti á leiðinni heim og okkur finnst hann vera betri
í skapinu. Vonandi heldur þetta svona áfram.
Bergur er búinn að velja sér nýtt nafn eina ferðina enn. Núna vill hann heita Jón. Eins og Jón spæjó. Um daginn
svaraði hann ekki kennaranum nema hún kallaði hann Hógar og ekki alls fyrir löngu heimtaði hann að fá að heita
Gyrðir. Sem betur fer er hann sáttur við að heita Bergur Kári, svona yfirleitt.
26. október 2009
Bergur var orðinn svo veikburða og lasinn í gærkvöldi að við þorðum ekki annað en að hringja eftir
lækni. Hjúkrunarfræðingur hjá 1770 hafði spurt okkur út í einkennin og var farin að spyrja út í einkenni
fyrir heilahimnubólgu. Það gerði mömmu hans meira hrædda. Læknirinn kom, skoðaði Berg og útilokaði heilahimnubólgu -
sem betur fer. Hann sagði að Bergur væri líklega með svínaflensu, það væru ca. 60% líkur á því. Læknirinn lét okkur
fá samheitalyf tamiflu og fór.
Í dag var Bergur orðinn hitalaus og ef hann verður það líka á morgun getur hann sennilega farið í skólann á
miðvikudaginn.
Ég setti inn þrjár af myndunum frá ljósmyndaranum.
25. október 2009
Bergur er orðinn hálfslappur og Bjössa líka. Vonandi eru þeir ekki að fá svínaflensuna.
Við allavega krossum fingur.
Ég setti tvær myndir til viðbótar á myndasíðuna. Myndalbúmið neitar að taka við sumum myndunum
og vill engar frá ljósmyndaranum. Þær eru sennilega of stórar.
23. október 2009
Við erum búin að setja nokkrar myndir úr brúðkaupinu á myndasíðuna. Nanna á allan heiðurinn af
þeim og við þökkum henni kærlega fyrir allar fallegu myndirnar. Fleiri myndir gætu ratað inn á síðuna.
Við erum líka búin að fá myndir frá ljósmyndaranum en þær eru of stórar til að setja á myndasíðuna.
22. október 2009
Bergur er búinn að fara til hjúkrunarfræðingsins í hæðar-og þyngdarmælingu. Hann er orðinn
118 cm hár og 20,4 kg. Hann er með fullkomna sjón og heyrn.
Fleiri fréttir af Bergi. Skólastjórinn ákvað í gær að flytja Berg og Gumma í sinnhvorn bekkinn.
Þeir trufla hvorn annan of mikið. Við hittum nýja kennarann áðan og leist vel á hana. Hún er
ákveðnari en fyrri kennarinn. Vonandi líst Bergi jafn vel á hana, þegar hann fer í heimsókn í bekkinn
á eftir. Hann byrjar í 1.K á miðvikudag, eftir vetrarfrí.
19. október 2009
Ingveldur er öll að koma til og sennilega var þetta slæm flensa þó ekki megi útiloka svínkuna. Hún
er aftur farin að reyna að skipa okkur fyrir verkum, sem eitt og sér er mikið batamerki.
16. október
Ingveldur er að öllum líkindum með svínaflensu. Hún veiktist snögglega í gærkvöldi. Blossaði upp hiti,
svo er hún orðin hás og með þvílíkt nefkvef.
Stílar, drekka og sofa er það sem er í gangi núna hjá henni, en í þessum rituðum orðum þá steinsefur hún uppi í rúmi.
Fréttum það í morgun þegar við hringdum á leikskólann að það er búið að greina tilfelli þar sem svínaflensu. Líkurnar benda
þar af leiðandi sterklega til þess að þetta sé svínflensan.
B.G.
Sonur okkar var að koma heim úr skólanum með skilti sem hann hafði búið til. Á því stendur skýrum stöfum ,,Vanhæf ríkisstjórn."
Hann sagðist ætla að taka það með sér næst þegar eigi að mótmæla. :p
12. október 2009
Okkur hjónin langar til að þakka öllum fyrir að vera með okkur á brúðkaupsdaginn. Bæði veislan og
athöfnin heppnuðust jafn vel og við vonuðumst eftir. Við þökkum kærlega fyrir okkur. :)
8. október 2009
Salurinn verður skreyttur á morgun. Við sóttum lykilinn í kvöld og stefnum á að byrja að skreyta
upp úr hádegi. Síðan gerum við ráð fyrir liðsauka síðdegis og miklu stuði að sjálfsögðu! ;)
Það eina sem er eftir er að kaupa blómvönd fyrir kirkjuna og gosið. Það er allt og sumt, nema auðvitað
að eitthvað hafi gleymst. Það eina sem er á dagskránni á morgun er að skreyta og það ætti ekki að taka
mikinn tíma. Ekki má síðan gleyma því að við tökum létta æfingu á morgun. :)
7. október 2009
Nú er allt að verða klárt fyrir brúðkaupið. Við fáum lykilinn að salnum á morgun og getum
byrjað að skreyta á föstudaginn. Herborg og Bjössi Hjalta komu í kaffi í gærkvöldi og við ræddum
aðeins veislustjórn og annað skemmtilegt. Við Herborg prófuðum líka skreytiefnið og það kom mjög
vel út og passar vel við árstímann. Við erum orðin mjög spennt. :)
Við erum búin að setja nokkrar nýjar myndir á myndasíðuna. Þar á meðal er mynd af Bergi í karate og
nokkrar af honum og vinum hans á skólalóðinni.
5. október 2009
Nú er innan við vika í brúðkaupið og næstum allt tilbúið. Stærstu verkefnin sem eru eftir
eru að kaupa ljósbleika eða hvíta skó handa Ingveldi og rautt bindi handa Bergi. Það virðist
hins vegar vera lítið um drengjabindi á höfuðborgarsvæðinu.
Lífið gengur sinn vanagang. Bergi gengur vel í karate og Ingveldur er búin að pikka upp nokkrar
karateæfingar.
24. september 2009
Bjössi á afmæli í dag og af því tilefni setti ég kerti á afmælisköku sem við borðuðum í eftirrétt í kvöld.
Bjössi leyfði síðan Bergi að opna pakkann frá okkur.
Það styttist í brúðkaupið og nánast allt er tilbúið. Við viljum minna fólk á að staðfesta við okkur í síðasta
lagi á morgun, svo við getum látið kokkinn vita um endanlegan gestafjölda.
20. september 2009
Á leiðinni heim úr leikskólanum á föstudag sagði ég Bergi að það væri að koma fasteignasali til að
skoða íbúðina okkar. Bergur spurði þá hvort hann ætlaði að búa í íbúðinni okkar og ég sagði nei. Maðurinn
ætlaði að auglýsa íbúðina okkar til sölu og ef einhver vildi kaupa hana, þá myndum við flytja annað.
,,Jess, þá fæ ég trampólín og kisu!!" hrópaði Bergur þá glaður. Mamma hans áttaði sig hins vegar ekki alveg
á samhenginu þarna á milli...hehehehe.
12. september 2009
Bergur okkar er orðinn sex ára. Það er eins og það hafi gerst í gær að við fengum hann oggoponsulítinn
í fangið. Hann er byrjaður í skóla og gengur alveg ágætlega.
Við héldum tvískipta afmælisveislu en drógum aðeins úr umfanginu. Það var aðallega til að létta mér lífið
því á laugardagskvöldið var árshátíðin í vinnunni hjá mér. Engu að síður náðum við að bjóða nánustu fjölskyldu
í hádegismat á laugardag og á sunnudeginum var hér hressilegt strákaafmæli. Bergur fékk margar gjafir og var
ánægður með þær allar og þakkaði vonandi vel fyrir sig. :)
Bergur er líka byrjaður í karate og á auðvelt með að fylgja kennaranum, eða sensei-inum eftir. Í næsta tíma ætti hann að fá karate-búninginn sem hann hefur
beðið spenntur eftir.
30. ágúst 2009
Það eru 12 strákar í bekknum hans Bergs og hann er þegar farinn að kynnast nýjum vinum.
Einn þeirra heitir Alex og á heima nokkrum húsum frá okkur. Okkur fannst skrýtið að hafa ekkert
séð hann fyrr og töldum að það hlyti að skýrast af því að hann hefði verið á öðrum leikskóla en
Bergur. Mamma hans kom í dag að leita að honum og sagði okkur að þau væru tiltölulega nýflutt í hverfið.
Þau bjuggu áður í Vesturbænum eins og við og eru líka fallin fyrir þessu hverfi.
29. ágúst 2009
Bergur var svo upptekinn af því að leika við vini sína í dag að við Ingveldur fórum bara tvær með
mömmu, Herborgu, Ingu og Kristni á myndlistarsýningu Guðfinnu frænku. Myndirnar voru mjög fallegar og
Ingveldi fannst gaman að skoða þær á milli þess sem hún borðaði saltstangir.
Ingveldur heldur áfram að vilja gera allt sjálf. Það nýjasta er að hún neitar konunum á leikskólanum
að hjálpa sér á klósettinu. Hún vill fá að þurrka sjálf. :p
28. ágúst 2009
Nú þegar styttist í afmæli Bergs eru sennilega margir farnir að velta fyrir sér hvað væri sniðugt að
gefa honum í afmælisgjöf. Hann vantar ýmislegt t.d. húfu, vettlinga, ullarsokka, flíspeysu og pollagalla.
Allt þetta er orðið of lítið eða slitið. Hann langar auðvitað í allskonar dót og þá eru traktorar og
bílar mjög ofarlega á óskalistanum. Hann leikur sér líka mikið með playmo.
27. ágúst 2009
Fyrsti skóladagur Bergs í gær gekk vel að öðru leyti en því að kennarinn hans færði hann og Gunnar Eystein
að kennaraborðinu því þeir töluðu of mikið saman. Það var reyndar bara ágætt að hann var færður því hann
sneri áður að veggnum og þurfti að horfa á töfluna frá hlið. Núna er hann á besta stað í stofunni..hehehe.
23. ágúst 2009
Bergur hefur ekki viljað fara að sofa síðustu tvö kvöld nema móðir hans syngi fyrir hann Maístjörnuna. Það
kom mömmunni skemmtilega á óvart að hún kann öll þrjú erindin. Lagið er bara ansi viðeigandi um þessar mundir.
Það verður bara að segjast eins og er.
Kisu líkar vel hjá okkur. Hún sést ekki allan daginn, því hún felur sig inni í geymslu þar sem krakkarnir ná
ekki til hennar. Fyrst þegar þau eru sofnuð kemur hún trítlandi fram. Hún hefur samt enga ástæðu til að óttast
krílin okkar því Bergur kann alveg að umgangast ketti og Ingveldur verður hrædd ef kettir koma of nálægt henni.
Hún heldur einhverra hluta vegna að kettir séu spenntir fyrir skónum hennar.
Ingveldi gengur vel í aðlögun og er farin að hafa meiri áhuga fyrir því að láta setja teygjur í hárið á sér.
Hún bað meira að segja pabba sinn um að setja í sig tíkó í vikunni og hann lét sig hafa það. Þetta kom bara
mjög vel út hjá Bjössa - leyndir hæfileikar þar. :)
20. ágúst 2009
Ingveldur er byrjuð í aðlögun á leikskólanum og gengur vel. Hún er auðvitað löngu tilbúin til að fara
á leikskóla og eina ástæðan fyrir því að hún er ekki nú þegar á leikskóla er sú að við vildum engan annan
leikskóla. Bergur hefur verið mjög góður við Ingveldi og duglegur að sýna henni um á leikskólalóðinni. Síðasti
dagurinn hans á leikskólanum er á morgun og fyrsti dagurinn í grunnskóla er á miðvikudag.
Ég var í fríi í dag og gat því farið með börnin og hitt Einar, Elínu, Regínu, Herdísi, Patty og Elínu systur hans Gumma í Fjölskyldu-og
húsdýragarðinum. Við enduðum síðan daginn á því að fara og fá okkur kaffi og köku í Súfistanum í Iðuhúsinu en Patty
fullyrti að kökurnar þar væru æði. Það reyndist rétt. Bjössi kom síðan og hitti okkur þar eftir að hafa farið með
köttinn hans Bjössa Hjalta heim til okkar. Kisa verður í pössun hjá okkur næstu daga. Greyið reyndi að láta sem
minnst fara fyrir sér þangað til börnin voru sofnuð.
9. ágúst 2009
Við höfum skemmt okkur æðislega vel í sumarfríinu. Við fórum á mjög skemmtilegt ættarmót á Leirubakka
(við erum strax farin að hlakka til næsta), gistum þar eina nótt í tjaldi (allt of langt síðan síðast) og keyrðum í hádeginu daginn eftir beinustu leið vestur á Þingeyri.
Þar gistum við í viku hjá Elínu og Einari vinum okkar.
Á Þingeyri fengum við að kynnast því hvernig það hljóti að vera að búa í kommúnu því fleira fólk var í húsinu á
sama tíma og við. Þarna voru Gummi og Patty, Binna og Arnór (9 ára sonur hennar) og Gunnar. Það var alltaf mikið fjör
bæði á morgnana og um kvöldmatarleytið. Við spiluðum, spjölluðum saman yfir varðeldi og sykurpúðum og fórum til Ísafjarðar
að fylgjast með mýrarboltamótinu.
Bjössi er byrjaður í vinnunni eftir sumarfrí, Bergur á að byrja á leikskólanum á morgun og ég í vinnunni á
miðvikudag. Ingveldur byrjar síðan í aðlögun á mánudaginn eftir viku. Síðan styttist í að hann Bergur okkar byrji í skólanum.
Ég verð sem betur fer á seinni vakt fyrsta daginn þannig að ég get fylgt honum í skólann. Ætli við förum ekki á morgun að
kaupa handa honum skólatösku.
Við erum alltaf að bæta í albúmið, þannig að best er að velja ,,last uploads" í listanum vinstra megin. Þannig sjást
þær myndir sem síðast voru settar inn. Við erum nefnilega líka að bæta við nokkurra mánaða og jafnvel nokkurra ára
gömlum myndum.
23. júlí 2009
Ingveldur er mjög skýr, ákveðin og skemmtileg stelpa. Þegar hún kom inn í eldhús í vikunni sagði ég
við hana: ,,Þarna ertu, gullið mitt!" Þá svaraði hún: ,,Ég heiti Ingveldur." Kjáni get ég verið...hehehe.
Bjössi fór í morgun og keypti dýnu í neðri kojuna fyrir Ingveldi. Þegar ég var að kyssa systkinin góða nótt
segi ég við Ingveldi að hún sé orðin svo stór stelpa. Þá svarar Ingveldur: ,,Ég er tveggja ára."
Um helgina förum við á ættarmót í fjölskyldu Bjössa og við hlökkum mikið til. Bergur hefur ekki talað um annað
en tjaldið alla vikuna. Eftir ættarmótið förum við beinustu leið vestur....gaman, gaman. :)
14. júlí 2009
Við erum búin að njóta síðustu daga saman í sumarfríi, sem reyndar byrjaði með þvílíkri bongóblíðu að maður
fór inn til að kæla sig niður. Foreldrar mínir eru búnir að taka fram uppblásnu sundlaugina og ef veðrið verður
áfram svona býst ég ekki við öðru en að hún verði í garðinu fram að hausti. Bergur og Ingveldur eru alveg jafn
spennt fyrir sundlauginni og það þarf eiginlega að neyða Ingveldi upp úr þegar komið er að því að fara heim.
Við erum búin að plana ferðalög sumarfrísins. Við förum á ættarmót í föðurfjölskyldu Bjössa í lok júlí og þaðan
beinustu leið vestur á firði, uppáhaldslandshlutann okkar. Þangað til er planið að vera sem mest í sundlaugunum,
hjólatúr eða að gera annað skemmtilegt saman fjölskyldan.
Ingveldur hefur tekið vaxtarkipp og þykir frekar löng, sérstaklega leggjalöng. Ég keypti t.d. buxur handa henni
í númer 98 og þær áttu að vera kvartbuxur, en reyndust vera nánast hnébuxur á henni.
8. júlí 2009
Á föstudag er síðasti dagurinn á leikskólanum hjá Bergi og minn í vinnu fyrir sumarfrí. Hann fer
þangað á leikskólann í nokkra daga eftir fríið og nær að sýna Ingveldi um.
Þau láta oft svo fyndna hluti út úr sér. Um daginn vorum við fjölskyldan í hjólatúr og fórum alla leið
þangað sem skemmtiferðaskipin eru. Eitt stórt skip var við Skarfagarða og við hjóluðum þar fram hjá. Bergur
stoppaði til að laga hjálminn sinn og einn áhafnarmeðlimanna notar tækifærið og smellir af honum mynd.
Þegar við hjólum af stað spyr Bergur: ,,Hversvegna er þessi maður að taka mynd af ókunnugu fólki?" Hann gat
ekki skilið hversvegna einhver maður sem hann hafði aldrei séð vildi eiga mynd af honum.
Ingveldur er mikill spekingur. Einn daginn í síðustu viku vorum við úti og hún var í kerrunni. Ég sá hund og
sagði ,,Sjáðu Ingveldur! Voffi!" Hún leiðrétti auðvitað móður sína og sagði ,,Nei, hundur." Hvernig datt mér í
hug að nota svona smábarnaleg orð við hana. Hún er nú orðin tveggja ára .... hehehehe.
Litla stelpan okkar er farin að segja nafnið sitt. Hún vildi aldrei segja það og kallaði sig Kalla ef hún var
spurð. Ætli hún hafi ekki viljað ná því alveg réttu áður en hún færi að segja nafnið sitt opinberlega. Núna þegar
hún er spurð að nafni segir hún hátt og snjallt: ,,Indeddur!"
25. júní
Ljósleiðari kominn í gang.
Nýr eldveggur kominn upp og stilltur, albúmið ætti því að vera orðið aðgengilegt aftur og hraðara.
Við vorum að skipta um internetþjónustuaðila. Heimasíðan er komin með nýja slóð. ->www.simnet.is/xanthos<- mun því brátt hætta að virka.
Ný slóð er http://internet.is/xanthos
B.G.
24. júní
Var að færa albúmið yfir á aðra tölvu.
Gagnagrunnur og myndir eru komin yfir og eru keyrandi á uppfærðu gallery.
Ef linkarnir til þess að komast inn í albúmið (Myndaalbúm & myndin af okkur) eru ekki að virka.
Þá þarftu að reloada" (endurhlaða) síðuna hjá þér.
Það er gert með því að ýta á "reload" takkann á vafranum eða með því að halda inni "ctrl" takkanum og ýta á "F5" takkann.
Einnig ætti hraðinn að aukast á myndasíðunni um leið og ljósleiðarinn hérna á heimilinu fer í gang.
Þeir sem hafa verið að nýta sér vefsvæði hér hjá mér, þá er það ekki virkt eins og er.
Ætti að vera búinn að færa það yfir í kvöld eða á morgun.
B.G.
21. júní 2009
Ég fór með börnin í nýju Álftaneslaugina í dag. Laugin er mjög flott og rennibrautin enn stærri en hún var á myndinni
í blaðinu. Ég fór eina ferð með börnin í henni og var örugglega hræddust af okkur þremur því við fórum svo hratt. Við
steyptumst síðan á bólakaf úr rennibrautinni og það fyrsta sem Ingveldur sagði við mig var ,,ekki aftur." Bergur fór því
einn aðra ferð, rosalega hugrakkur. Við Ingveldur biðum hans fyrir neðan.
Þegar við komum upp úr biðu okkar skilaboð frá Herborgu um boð til þeirra í grillaða pizzu. Við stóðumst ekki boðið og
borðuðum ljúffengar pizzur í góðum félagsskap.
Ég setti nýjar myndir á síðuna.
17. júní 2009
Hæ hó og jibbí jei og jibbí jei - það er kominn sautjándi júní!!!
Við fórum auðvitað niður í bæ í skrúðgöngu, börnin fengu blöðru, popp, kandífloss og
sleikjósnuð og gátu ekki orðið klístraðri. Bergur fékk líka að hoppa og skoppa í hoppikastala
í Lækjargötunni. Við hittum fullt af fólki sem við þekkjum og nokkra sem við höfum ekki séð lengi.
Um kaffileytið kíktum við snöggvast á Bjössa og Lísu og dáðumst að dóttur þeirra.
Ég kíkti síðan örstutt með börnin til foreldra minna í vöfflukaffi og við komum síðan heim tímanlega í
grill a la Bjössi. Fullkominn endir á frábærum degi.
Ég setti nokkrar myndir inn á myndasíðuna.
14. júní 2009
Ég fór í dag með börnin að hitta aðra þremenninga úr móðurættinni minni. Við hittumst á Kaffi Flóru í
Grasagarðinum, spjölluðum og borðuðum góðan mat. Þó það hafi rignt í morgun var veðrið orðið það gott þegar
við hittumst að við enduðum á að borða úti. Þetta var mjög skemmtilegt.
Ég tók nokkrar myndir og setti nokkrar á myndasíðuna. Aðrar setti ég á Facebook síðuna mína.
5. júní 2009
Ingveldur fékk að prófa hjólið hennar Ingu á pallinum heima hjá henni í dag. Hún lærði að hjóla undur
fljótt og var strax farin að hjóla sjálf án þess að ég héldi við hana. :)
Ég setti inn mynd af hreykinni hjólastelpu.
3. júní 2009
Bergur útskrifaðist formlega frá Laugaborg í dag og tímamótunum var fagnað í safnaðarheimili
Laugarneskirkju. Foreldrar drengjanna komu með brauð og foreldrar stelpnanna komu með kökur. Kokkur
leikskólans bauð síðan upp á matarmikla og góða súpu. Krakkarnir tóku lagið fyrir foreldrana og fengu
síðan afhentan geisladisk með myndbandi sem tekið var í útskriftarferðinni í síðustu viku. Við horfðum
saman á það í kvöld fjölskyldan og skemmtum okkur mjög vel. Þá sem langar til að sjá það eru velkomnir í heimsókn. :)
Þetta er virkilega skemmtileg hugmynd að gera svona myndband og við erum mjög þakklát fyrir það. Það verður
líka gaman fyrir Berg að eiga þetta þegar hann verður stærri.
Bergur kom með mér að ná í Ingveldi og á leiðinni tilbaka sagði hann allt í einu. ,,Þórey vill giftast mér en ég
vil ekki giftast henni." Ég spurði hann hversvegna ekki en fékk ekkert svar. Þá spurði ég hann hvort Þórey væri
skotin í honum og hann neitaði því. ,,Hversvegna vill hún þá giftast þér?" spurði ég þá forvitin. ,,Af því að hún
elskar mig."
1. júní 2009
Við fórum í eins árs afmæli Rakelar Söru í dag og það var svo gott veður að við gátum setið úti
á palli. Þórunn sló sjálfri sér við og var með meistaralega flotta marsípantertu, sem ég fattaði ekki
að taka mynd af. Ég náði hins vegar nokkrum myndum af krökkunum og er búin að setja á myndasíðuna.
|