Ég er svo          
    sniðugur      
    
 
 
Dvergschnauzer.

Lýsing
Til eru þrjú afbrigði af Schnauzer: Dverg Schnauzer, Milli Schnauzer og Risa Schnauzer. Schnauzer er fjörmikill, líflegur, orkumikill, ákafur (þó stöðugur), haðrger, stoltur, og vill vera ríkjandi. Risa Schnauzer er rólegri en djarfi Dverg Schnauzerinn sem er einnig keligrís. Þessi tryggi, ástúðlegi hundur elskar börn og er frábært gæludýr. Stöðugt árvakur, og á verði gagnvart ókunnugum, mjög traustur, Milli Schnauzer og Risa Schnauzer eru góðir varðhundar og njóta sín sem vinnuhundar. Tegundin þarfnast ákveðis yfirráðs og mikla athygli. Schnauzer er alltaf til í að leika.

Uppruni
Schnauze þýðir trýni á Þýsku, þannig að tegundin er nefnd eftir einkennandi stríðhærða trýninu. Allt að 19 öld voru stríðhærðir Schnauzer álitnir stríðhærðir Pinscherar. Forfeður Schnauzer eru óþekktir, þar sem að hann er mjög gömul tegund. Kannski á hann rætur að rekja til Biberhund og Stríhærða rottuhunds, eða fjárhunda tegunda. Milli Schnauzer var aðallega notaður sem meindýraeyðir. Risa Schnauzer er talin vera útkoma kynblöndunar Milli Schnauzer, Stóra dana og Belgíska nautgripa hunds. Auðvitað gæti Risa Schnauzer verið stækkuð mynd af Milli Schnauzer en ekki er það víst en í dag. Eins og fram kom í málverki listamannsins Albrecht Dürer, var Risa Schnauzer líklega þróaður í Wurtemberg, Þýskalandi. Þessi hundur varði kerrur búgarða og hélt gripahúsum lausum við meindýr. Dverg Schnauzerinn var til um 1880, með því að velja og rækta undan litlum Milli Schnauzerum. Í Evrópu, er Risa Schnauzer vinsælasta afbrigðið, en í enskumælandi löndum er Dverg Schnauzer vinsælli.

Umhirða
Bursta þarf feldinn regulega og fagmannleg umhirða er nauðsinleg á u.þ.b. þriggja mánaða fresti. Af því að Snauzerinn hefur strýhærðan feld þarf að reyta hann reglulega svo hann haldist stýfur, sem hann þarf að vera.

Hreyfing
Schnauzer ætti ekki að vera lokaður mikið innandyra. Þetta eru virkir hundar sem þurfa pláss og töluverða hreyfingu. Dverg Schnauzer þarf ekki jafn mikla hreyfingu og þeir stærri.

Leyfilegir litir
Einlitur svartur, eða pipar og salt. Dökk gríma. Hvítir flekkir eru ekki æskilegir. Hjá Dverg Schnauzer er einnig leyfilegt að vera einlitur hvítur, og svartur og silfur.

Staðreyndir

Upprunaland: Þýskaland
Upprunartími: Miðaldir/1400
Fyrstu not: Varðhundur og vinnuhundur
Í dag: Félagi og vinnuhundur
Lífsskeið: 12-14 ár
Önnur nöfn: Giant Schnauzer, Standard Schnauxer, Miniature Schnauzer

Hæð á herðakamb
Dvergschnauzer 30 - 35 sm.
Milli Schnauzer 45 - 50 sm.
Risa Schnauzer 60 - 70 sm.

Þyngd
Risa Schnauzer 30 - 40 kg.
Milli Schnauzer að meðallagi
15 kg.
Dvergschnauzer 4 - 7 kg.
Heimild: www.hvuttar.net