|
| |
| |
|
 |
Miniature
Pincher.
Lýsing
Dvergpinscher var skapaður til að hafa fulla stjórn á
líkama sínum. Glæsilegur, líflegur, hugrakkur,
gáskafullur og árvakur. Nokkuð taugaspenntur, og mjög
ástúðlegur fjölskyldu sinni. Dvergpinscher hefur sterkan
persónuleika, hann hentar oft ekki vel í sambúð með
öðrum hundum. Ákveðin þjálfun, sem og umhverfisþjálfun
er nauðsinleg. Hann Dvergpinscher hefur enn getuna sem
rottuveiðari og heldur hann sé miklu stærri hundur og
mundi ekki hika að ögra mun stærri hundum.
Uppruni
Uppruni Dvergpinscher er en dulin. Getgátur eru um að
hann sé komin af mjög gamalli þýskri tegund, sem er
skyld Schnauzer, aðrir trúa ð hann sé komin af Svarta og
gulbrúna Terrier (Black and Tan Terrier). Dvergpinscher
var upprunalega öflugur rottuveiðihundur, hann er ekki
smækkuð útgáfa af Dobermann. Fínu línurnar sem hann
hefur í dag er fínpússað útlit frá upprunalega
ræktunarmiðinu, hann var grófari.Tegundin var viðurkennd
árið 1879.
Umhirða
Þetta er mjög hreinleg tegund. Regluleg burstun nægileg.
Klippa þarf klær eftir þörfum.
Hreyfing
Dvergpinscher er mjög orkumikill hundur og þarf næga
hreyfingu.
Leyfilegir litir
Einlitir: ljósgulbrúnn eða litbrigði af brúnum dökk
rauðs. Tvílitir: Svartur og gulbrúnn, rauður, eða
ljósari auðkenni yfir augum, á hálsi, bringu, lægri
helming framfótanna, á innanverðum afturfórum, fyrir
ofan endaþarm, á lægri hluta hækilbeins, kinnum, og á
neðri kjálka.
Staðreyndir
Upprunaland: Þýskaland
Upprunartími: 1700
Fyrstu not: Rottuveiðari
Í dag: Félagi
Lífsskeið: 13-14 ár
Önnur nöfn: Miniature Pincher, Zwergpinscher
Hæð á herðakamb
25 - 30 sm.
Þyngd
4-6 kg.
Heimild: www.hvuttar.net
|
|
|
|
|
|
| |
|
|