|
| |
| |
|
 |
Pekingeser
Lýsing
Pekinghundurinn er hugrakkur, líflegur, viðkvæmur og
sjálfstæður hundur, sem verður mjög háður eiganda sínum,
en varkár gagnvart ókunnugum. Þeir eiga það til að gelta
mikið og eru því góðir varðhundar. Pekinghundurinn þolir
ekki alltaf að vera innan um börn. Hann þolir borgarlíf
mjög vel og er yfirleitt góður með öðrum hundum og
gæludýrum. Ljónslegur í útliti, árvakur og greindur í
framkomu. Pekinghundur er ekki hentugur til mikillar
þjálfunar.
Uppruni
Þetta er ein elsta hundategund heims og var eitt sinn
einkaeign kínversku keisarahirðarinnar. Saga
Pekinghundsins nær lagt aftur, til 2000 f.k. Í margar
aldir var hann tilbeðinn í musterum Kína.
Pekinghundurinn var stöðugur félagi keisarans, og var
fórnað eftir dauða hans. Fyrstu fjórir hundarnir bárust
til vesturlanda árið 1860 með Breska hernum. Þeir voru
gefnir Viktoríu Drottningu, hertogaynjunni af
Wellington, og hertogaynjunni af Richmond.
Umhirða
Dagelg burstun og kembing. Regluleg böðun. Fylgjast þarf
með, og þrífa þarf augun og fellingar í trýni.
Hreyfing
Pekinghundur er hentugur fyrir íbúðarlíf. Hann þarf
aðeins stutta, daglega göngutúra, því hann er ekki
mikill sporthundur.
Leyfilegir litir
Allir litir og litasamsetningar leyfilegar, að frátöldum
albína og lifur lituðum. Marglitir jafnvel brotnir.
Staðreyndir
Upprunaland: Kína
Upprunatími: Miðaldir
Fyrstu not: Félagi
Í dag: Félagi
Lífsskeið: 12-13 ár
Önnur nöfn: Pekingese, Peking Palasthund
Hæð á herðakamb
15 - 25 sm.
Þyngd
2.5 - 5.5 kg.
Heimild: www.hvuttar.net
|
|
|
|
|
|
| |
|
|