|
| |
| |
|
 |
Pomeranian
Lýsing
Pomeranian er minnsti Spísshundurinn. Hann er líflegur
og greindur hundur, sem er svolítið refslegur í útliti.
Hann geltir þó nokkuð mikið sé ekki tekið fyrir það, það
gerir hann að góðum varðhundi. Pomeranian er fyrirtaks
gæludýr, vinalegur og tryggur. Hann er þolir nokkuð vel
kalda veðráttu. Greindur, líflegur, árvakur og
mannblendinn. Svolítið montinn í framkomu, og yfirleitt
fálátur gagnvart ókunnugum. Umhverfisvenja þarf Pommana
vel gagnvar börnum og hundum.
Uppruni
Viktoría drottning gerði þessa tegund vinsæla þegar hún
bætti nokkrum slíkum hundum við ræktun sína. Pomeranian
er uppruninn í Þýskalandi, hann var ræktaður úr Þýskum
Spísshundum sem síðan voru líklega blandaðir við aðra
Spísshunda. Fyrr á öldum var hann stærri en hann er nú,
hvítur var algengasti liturinn og voru hundarnir upp í
13 kg. Ræktendur kusu að hafa þetta hundakyn smærra og
völdu minnstu hvolpana úr hverju goti og hófu að rækta
undan þeim. Þeir ræktuðu einnig upp núverandi
litamismuni. Viktoría drottning er talin hafa minnkað
tegundina enn þá meira. Þeir voru vinsælir meðal
yfirstéttarfólks.
Umhirða
Tvöfaldur feldur þeirra þarf umhirðu. Þó má ekki bursta
Pomeranian of mikið, því þá er hætta á að bursta allan
undirfeldinn burt, þó skal bursta þá þannig þeir fari
ekki í flækju. Pomeranian fer þónokkuð úr hárum, tvisvar
sinnum á ári. Klær skal klippa eftir þörfum.
Hreyfing
Þótt Pomeranian sé lítill hefur hann gaman að
gönguferðum og getur labbað þó nokkuð langt án þess að
þreytast. Hann ætti að fá daglega göngutúra.
Leyfilegir litir
Allir litir leyfilegir, þó án hvítra og svartra
litbrigða. Heilir litir eru hvítur, svartur, brúnn,
dökkur og ljós, blár (eins fölur og mögulegt er).
Appelsínugulur, sem á að vera einlitur og eins bjartur
og hægt er. Hvítir hundar eiga að verða að lausir við
gulleitan lit, sem og aðra liti. Nokkur hvít hár á
einlitum hundum leyfileg, en frekar óæskileg.Á marglitum
hundum (parti-color) ættu litirnir að vera jafn vel
dreifir á líkaman í skellum. Sable litaðir hundar ættu
að vera skyggðir hvarvetna með þremur eða fleiri litum,
hárið á að vera eins samræmd eins og mögulegt er, án
einlitra skellna.
Hæð á herðakamb
18 - 22 sm.
Þyngd
Pomeranian tíkur eru þyngri en rakkarnir. Rakkar 1.8 - 2
kg.
Tíkur 2 - 2.5 kg.
Heimild: www.hvuttar.net
|
|
|
|
|
|
| |
|
|