Ég er svo          
    sniðugur      
    
 
 
Poodle Standard.

Lýsing
Virkur, sprækur, mjög árvakur og greindur. Púðlinn er vinalegur, tryggð hans er goðsögn, en hann getur verið ráðríkur. Mjög aðlögunarhæfur, mannblendinn og góðlyndur. Púðlar eru frábærir félagar, mjög greindir, auðveldir og skemmtilegir í þjálfun. Í dag aðalega félagi, en hefur en svolitla veiðigetu eins og forfeður hans, hann er nokkuð góður sundhundur með mjög gott lyktarskyn. Ef Púðli fær ekki ákveðna þjálfun, getur hann verið erfiður. Hann þolir vel bæði heita og kalda veðráttu. Púðlinn er yfirleitt barngóður hundur. Til eru fjögur viðurkennd afbrigði af púðla.

Uppruni
Tegundin hét upprunalega Caniche, sem þýðir Andarhundur. Púðli var eitt sinn veiðihundur, komin af Barbet frá Suður Afríku og var líklega seinna blandað við Portúgalska Vatnahundinn. Til eru 4 afbrigði af Púðlum, flokkaðir eftir stærð. Litlu Púðlarnir eru minni afbrigði af Stóra Púðla. Litli Púðli, sem er örlítið stærri en gælu Púðli var eitt sinn vinsæll fjölleikahús hundur. Púðlinn festi rótum í Frakklandi og var það skráð sem upprunaland hans. Árið 1936 var ræktunarmiðið viðurkennt. Tegundin varð einstaklega vinsæl á milli 1950 – 1960, en þá var hugsað meira um magn en gæði og ýmis vandamál komu upp í tegundinni, þannig að vanda verður vel valið á ræktanda.

Umhirða
Bursta þarf Púðla daglega, baða þarf hann reglulega og klippa klær eftir þörfum. Fara þarf með þá til fagnyrtis á u.þ.b. 2 mánaða fresti. Það eru til margskonar klippingar á Púðlum t.d. Ljónaklippingin, ræktunar klippingin (þá er hárið klippt í sömu lengd, um allan líkamann), Enska hnakkklippingin (með armbönd um fæturna), og hvolpaklippingin (meginlandsklipping með buxum), og lambaklipping (nokkuð stuttur með lengri hár á fótum, höfði og skotti). Eyrun ætti að skoða reglulega. Púðlar fara ekki úr hárum, og eru hentugir fyrir fólk með ofnæmi.

Hreyfing
Hann hefur gaman af göngutúrum og þarf daglega meðallanga hreyfingu. Honum líkar ekki að vera skilinn einn eftir.

Staðreyndir

Upprunaland: Frakkland
Upprunatími: 1500
Fyrstu not: Vatnasækir, félagi.
Í dag: Félagi
Lífsskeið: 11-15 ár
Önnur nöfn: Poodle, Caniche

Hæð á herðakamb
Stóri Púðli 45 - 60 sm.
Meðalstóri Púðli 35 - 45 sm.
Litli Púðli 28 - 35 sm.
Gælupúðli, minni en 28 sm.

Þyngd
Stóri Púðli u.þ.b. 22 kg.
Meðalstóri Púðli u.þ.b. 12 kg.
Litli Púðli u.þ.b. 7 kg.
Gælupúðli, minni en 7 kg.

Heimild: www.hvuttar.net