Ég er svo          
    sniðugur      
    
 
 
Pug.

Lýsing
Pug er ljúfur, ástúðlegur, fjörugur og töfrandi hundur. Hann er nokkuð erfiður í þjálfun, og ætti hún að byrja snemma. Honum semur vel við aðra hunda og dýr, en sumir Pug eru ekki miklir barnahundar. Pug þarf mikla athygli og verður afbrigðissamur ef eigandinn hunsar hann. Hann geltir sjaldan og er ekki heppilegur varðhundur. Ofsalega fjörugur og skemmtilegur hundur, fullur af karakter og sjarma með skemmtilegt lítið andlit. Pug þolir illa heita veðráttu. Hann er góðlyndur en getur verið tortryggur og viðkvæmur.

Uppruni
Mjög forn tegund, talin vera upprunalega frá Kína. Pug var minnkaður niður frá stærri Mastiff hundum fyrir minnst 2.400 árum síðan. Forfeður Pug voru eitt sinn gæludýr Búddapresta. Hann barst fyrst til Hollands í kringum 1600 og var þróaður frekar í Bretlandi á 17 öld. Þessir hundar urðu síðan vinsælir sem gæluhundar kónga og mikilmanna. Fyrsta kona Napoleons átti Pug sem félaga. Pug er nefndur svo, eftir stutta trýninu. í Þýskalandi og víðar er hann þekktur sem ,,Mops,” og í Frakklandi sem ,,Carlin” eftir Ítalska leikaranum Carlo sem var með svarta grímu þegar hann lék trúð.


Umhirða
Augun eru viðkvæm fyrir ryki og óhreinindum og þarf að fylgjast vel með þeim og hreinsa vel, eins með fellingarnar í andlitinu. Bursta þarf yfir hann reglulega með mjúkum bursta. Pug fer nokkuð mikið úr hárum.

Hreyfing
Pug þarf ekki mikla hreyfingu, hann getur þrifist á stuttum göngutúrum, því hann er ekki sporthundur. Það má ekki ofkeyra hann, sérstaklega ekki í heitu veðri.

Leyfilegir litir
Apríkósulitaður með svarta grímu, ljósgulbrúnn með svarta grímu, silfur, eða einlitur svartur. Trýnið og eyrun eiga alltaf að vera svört. Ef hundurinn er ljós á litinn getur leigið dökkur áll eftir bakinu, svartir blettir eru á hvorri kinn.

Staðreyndir

Upprunaland: Kína
Heimaland: Bretland
Upprunartími: Fornöld
Fyrstu not: Félagi
Í dag: Félagi
Lífsskeið: 9-12 ár
Önnur nöfn: Mops, Carlin.

Hæð á herðakamb
U.þ.b. 30 sm.

Þyngd
6.3 - 8.1 kg.
Heimild: www.hvuttar.net