|
| |
| |
|
 |
Shih Tzu.
Lýsing
Shih Tzu er fjörugur, líflegur, kjarkmikill, ánægður og
harðger hundur, með mikinn persónuleika. Hann er
barngóður hundur og einnig góður með öðrum hundum og
gæludýrum. Shih Tzu verður strax einn af fjölskyldunni
og nýtur þess að vera í kringum hana. Hann þráir
mannlegt samfélag. Shih Tzu er virkur og athafnasamur,
og unir sér vel í borg sem byggð. Hann er góður
varðhundur sem lætur vita ef einhver ókunnugur nálgast
húsið. Nokkuð sjálfstæður og stundum þrjóskur, Shih Tzu
er rólyndur og góður félagi. þessi blíði og káti hundur
þarf mikla ást og umhyggju, hann er talin
mannblendnastur af Asísku tegundunum.
Uppruni
Shih Tzu var fyrst ræktaður í Kína (Tíbet) fyrir mörg
hundruð árum síðan. Kínverjar töldu þá heilaga. Að fá
Shih Tzu að gjöf þótti mikill heiður. Í mörg hundruð ár
var það siður hins andlega trúarleiðtoga, Dalai Lama, að
gefa kínverska keisaranum slíka hunda af bestu gerð að
gjöf. Kínverjar voru tregir að hleypa hundunum úr landi
og bárust fyrstu hundarnir til Englands 1908. Líklegast
er að Shih Tzu hafi orðið til við kynblöndun Lhasa Apso
við Pekinghund. Árið 1954 viðurkenndi FCI tegundina.
Heimaland Shih Tzu er Bretland.
Umhirða
Bursta og greiða þarf Shih Tzu daglega og baða
reglulega. Fylgjast þarf með eyrum og augum. Klær þarf
að klippa reglulega og klippa þarf hár á milli þófa.
Binda þarf toppinn upp, svo hárin fara ekki í augun.
Sumir eigendur klippa feldinn stutt, þá er feldhirða þar
af leiðandi minni. Shih tzu fer lítið sem ekkert úr
hárum.
Hreyfing
Shih Tzu er fjörugur hundur, hann ætti að fá daglegar
gönguferðir og að hafa aðgang að garði. Honum líkar ekki
að vera skilinn eftir.
Leyfilegir litir
Allir litir leyfilegir. Hvít blesa á enni og hvítt í
enda skottsins æskilegt á marglitum hundum.
Hæð á herðakamb
Staðreyndir
Upprunaland: Kína (Tíbet)
Heimaland: Bretland
Upprunatími: 1600
Fyrstu not: Hundur keisarahirðarinnar í Kína
Í dag: Félagi
Lífsskeið: 12-14 ár
Önnur nöfn: Krýsantemu hundur.
Hæð á herðakamb
Ekki hærri en 26 sm.
Þyngd
4 – 8 kg. (Helst af öllu 4.5 – 7.3 kg).
Heimild: www.hvuttar.net
|
|
|
|
|
|
| |
|
|