|
| |
| |
|
 |
Tíber Spaniel
Lýsing
Tíbet Spaniel er mjög sjálfstæður, stoltur, rólegur en
lífsglaður smáhundur. Hann er góður fjölskylduhundur og
tiltölulega auðveldur í þjálfun, svo framarlega sem hann
sér einhvern tilgang með henni. Þessi hundur er ekki
Spaniel, Það eina sem er líkt með Spaniel og þessari
tegund er nafnið, því að hann hefur aldrei verið notaður
við veiðar. Tíbet Spaniel er kröftugur, hraður og kvikur
hundur, hann er ástúðlegur, blíður og greindur. Hann
vantreystir ókunnugum og er því góður varðhundur.
Uppruni
Uppruni Tíbet Spaniels er enn óljós. Þessi tegund gæti
verið mjög gömul, líklega skyld Shih Tzu og
Pekinghundinum, jafnvel gæti blöndum Tíbet Spaniels við
Pug hafa skapað Pekinghundinn. Tíbet Spaniel var einn af
uppáhalds hundum munkanna, þeir notuðu hann m.a. til að
snúa bænahjólum sínum. Hann hefur lengi verið félagi
munka og starfaði líklega einnig sem varðhundur (þar sem
hann sat upp á klaustursveggjunum og lét vita um
mannaferðir) og sem hitapoki (lág upp í bólum munka og
hélt á þeim hita) í klaustrum þeirra.
Umhirða
Bursta þarf yfir feldinn reglulega, sérstaklega hár á
skotti, makka og buxum. Fylgjast þarf með augunum. Klær
eru klipptar eftir þörfum. Baða þarf hundana þegar þess
er þörf, þó ekki of oft.
Hreyfing
Tíbet Spaniel hefur gott og gaman af hreyfingu. Hann
þarf daglega, meðallanga göngutúra.
Leyfilegir litir
Allir litir og litasamsetningar leyfilegar.
Staðreyndir
Upprunaland: Tíbet
Heimaland: Bretland
Upprunatími: Félagi munka
Í dag: Félagi
Lífsskeið: 13-14 ár
Hæð á herðakamb
Rakkar u.þ.b. 27 sm.
Tíkur u.þ.b. 24 sm.
Þyngd
4 - 7 kg.
Heimild: www.hvuttar.net
|
|
|
|
|
|
| |
|
|