|
| |
| |
|
 |
Snögghærð
Ungversk Vízla.
Lýsing
Ungverskur Vizsla eða Ungverskur Bendir er mjög
aðlögunarhæfur og líflegur hundur með frábært lyktarskyn
sem þolir hita vel. Á veiðum leitar hann ekki víða af
bráð, þess í stað heldur hann sig nálægt eiganda sínum.
Hann bendir nákvæmlega, er góður sækir sem og
sundhundur. Til eru tvö afbrigði af tegundinni,
Snögghærður og Strýhærður. Snögghærða afbrigði hefur
skjótt stökk og er þess vegna aðalega á flötum
veiðisvæðum. Strýhærða afbrigðið ber af á veiðum á
lítilli bráð, þar á meðal skógarsnípu. Hann er einnig
notaður við að leiti uppi stóra bráð. Ungverski
Bendirinn er jafnlyndur, hlýðinn, viðkvæmur, greindur og
auðveldur í þjálfun, mjög þægilegur fjölskyldu hundur.
Uppruni
Snögghærða afbrigðið er eldra. Forfeður Ungverska Vizsla
eru m.a. Sloughi og Tyrkneskur gulur hundur. Bætt var
við blóði annarra veiðihunda þ.á.m. Þýska Bendinum.
Snögghærða afbrigðið er vinsælla og var viðurkennt árið
1938 af FCI. Sá Strýhærði er talin vera kynblanda
Snögghærða Vizsla við Drahthaar. Afkvæmin mega ekki eiga
afkvæmi saman.
Umhirða
Bursta þarf yfir hundinn reglulega og fylgjast þarf með
eyrum. Klær eru klipptar reglulega.
Hreyfing
Vizsla þarf bæði nóg pláss og næga hreyfingu.
Leyfilegir litir
Dökk gylltur eða litbrigði af dökk ljósgulbrúnum. Litlir
hvítir blettir á bringu og fótum telst ekki galli.
Hæð á herðakamb
Snögghærður: Rakkar 56 - 61 sm. Tíkur 52 - 57 sm.
Stríðhærður: Rakkar 58 - 62 sm. Tíkur 54 - 58 sm.
Þyngd
Snögghærður: 22 - 30 kg. Stríðhærður: 25 - 32 kg.
Heimild: www.hvuttar.net
|
|
|
|
|
|
| |
|
|