|
| |
| |
|
 |
West
Highland White Terrier.
Lýsing
Hvítur West Higland Terrier, kallaður Westie, varð
heimsþekktur ásamt Skoska Terrier, vegna mynd af þeim
sem prýðir frækt skoskt Wisky. Westie er blíður og
fallegur og á það stórann þátt í vinsældum hans. Hann er
lífsglaður og vinalegur og með mikla kímnigáfu. Westie
er yfirleitt góður með börnum og skemmtilegur
fjölskylduhundur, sem þolir vel bæði heita og kalda
veðráttu. Westie er sjálfstæður, hugrakkur og þrjóskur
hundur sem hefur sterkan persónuleika og Terrier eðli.
Hann er ágætis varðhundur sem lætur vita ef ókunnugir
nálgast húsið.
Uppruni
Nafnið segir í raun mikið um uppruna hans, hvítur
Terrier frá vestur hálendi Skotlands. Refaveiðimenn
fyrri alda lóguðu öllum hvítum hvolpum sem fæddust þegar
þeir voru að fullrækta tegundina fyrir nokkuð hundruð
árum. Ástæðan var sá misskilningur að þeir væru ekki
eins kjarkmiklir og hundar í öðrum lit. Malcolm
fjölskyldan í Poltalloch var ekki á sömu skoðun og
safnaði saman öllum hvítum hvolpum sem fæddust og tók að
rækta undan þeim. Eftir nokkur ár voru farnir að fæðast
aðeins hvítir hvolpar sem urðu vel þekktir sem fyrsta
flokks veiðihundar. Hvítur West Higland Terrier var
notaður sem refa og greifingjaveiðari. Talið er að
tegundin sé komin af Cairn Terrier. Breski West Highland
White Terrier Klúbburinn var stofnaður árið 1905 og
tegundin var viðurkennd 1909.
Umhirða
Bursta þarf yfir feldinn reglulega. Westie er reyttur
sérstaklega til að viðhalda strýhærða feldinum. Klær eru
klipptar eftir þörfum.
Hreyfing
Hann getur labbað ansi langt með eigandanum án þess að
þreytast. Westie þarf helst nokkuð langar, daglegar
gönguferðir.
Leyfilegir litir
Hvítur.
Staðreyndir
Upprunaland: Bretland (Skotland)
Upprunatími: 1800
Fyrstu not: Meindýraveiðari
Í dag: Félagi
Lífsskeið: 14 ár
Önnur nöfn: West Higland White Terrier, Westie
Hæð á herðakamb
28 sm.
Þyngd
6 - 8 kg.
Heimild: www.hvuttar.net
|
|
|
|
|
|
| |
|
|