|
| |
| |
|
 |
Þýskur
Fjárhundur.
Lýsing
Þýski Fjárhundurinn eða Schäfer, er einn vinsælasti
hundur heims. Hann er notaður sem varðhundur,
hjálparhundur fyrir fatlaða, leitarhundur,
lögregluhundur og síðast en ekki síst félagi og
fjölskylduhundur. Þýski Fjárhundurinn er vöðvamikill og
yfirvegaður hundur, sjálfsöruggur, árvakur,
aðgengilegur, og óttalaus, Hann er hlýðinn, ævinlega
tryggur, og hefur mjög gott lyktarskyn. Þýski
Fjárhundurinn er líflegur og kappgjarn, og er mjög
auðveldur í þjálfun, vegna löngun hans til að hlýða.
Hann hefur mikla aðlögunarhæfni.
Uppruni
Max Von Stephanitz, Þýskur maður ræktaði fyrstur manna
Schäfer hundinn í enda 19 aldar, til að fá út mjög hæfan
vinnuhund. Til er bæði snögghærður og síðhærður Schäfer,
í flestum löndum er sá snöggærði aðeins leyfður til
sýningar.
Umhirða
Bursta þarf yfir feldinn reglulega. Klippa þarf klær
eftir þörfum.
Hreyfing
Þýski Fjárhundurinn þarf mikla daglega hreyfingu sem og
andlega örfun. Hann nýtur þess að stunda einhverskonar
vinnu.
Leyfilegur litur
Svartur og brúnn, grár og brúnn, einlitur svartur. Nefið
skal vera svart. Ef gríma er ekki til staðar, augun eru
ljós eða stingandi, ljósir og allt að því hvítir blettir
finnast á bringu eða innri hliðum er um litarefnisgalla
að ræða. Einnig ef klær eru ljósar og rauð hár eru á
enda skotts.
Staðreyndir
Upprunaland: Þýskaland
Upprunartími: 1800
Fyrstu not: Fjárhundur
Í dag: Félagi og fjlhæfur vinnuhundur
Lífsskeið: 12-13 ár
Önnur nöfn: Deutscer Schaferhund, Alsatian, German
Shepherd.
Hæð á herðakamb
Rakkar 60 - 65 sm.
Tíkur 55 - 60 sm.
Þyngd
Rakkar 30 - 40 kg.
Tíkur 22 - 32 kg
Heimild: www.hvuttar.net
|
|
|
|
|
|
| |
|
|